03.03.1977
Sameinað þing: 59. fundur, 98. löggjafarþing.
Sjá dálk 2386 í B-deild Alþingistíðinda. (1783)

64. mál, afnám tekjuskatts af launatekjum

Flm. (Gylfi Þ. Gíslason) :

Herra forseti. Þessi till. var flutt snemma á þessu þingi, en vegna anna Sþ. dróst nokkuð að hún kæmi á dagskrá.

Þegar hins vegar að því var komið að till. gæti komið til umr. tjáði hæstv. fjmrh. okkur flm., að innan skamms væri von á frv. frá hæstv. ríkisstj. um tekju- og eignarskatt. Varð því samkomulag um það milli hæstv. fjmrh. og okkar flm. till. að efnisumr. um það mál, sem hér er um að ræða, þ. e. niðurfellingu tekjuskatts af almennum launatekjum, skyldi sameinuð 1. umr. um frv. hæstv. ríkisstj. um tekju- og eignarskatt. Áð vísu dróst enn nokkuð að sú umr. færi fram, en hún hefur nú farið fram. Við þá 1. umr. um frv. hæstv. ríkisstj. um tekju- og eignarskatt gerði ég ítarlega grein fyrir sjónarmiðum okkar þm. Alþfl., sem flytjum þetta mál, varðandi æskileika þess og möguleika þess að afnema tekjuskatt af almennum launatekjum. Þess vegna sé ég ekki ástæðu til að efna til umr. um málið nú, heldur legg til, hæstv. forseti, að málinu verði vísað til hv. allshn.