27.10.1977
Sameinað þing: 10. fundur, 99. löggjafarþing.
Sjá dálk 283 í B-deild Alþingistíðinda. (214)

22. mál, uppbygging þjóðvega í snjóahéruðum landsins

Flm. (Ingi Tryggvason):

Herra forseti. Ég vildi aðeins vekja athygli á því að þeir, sem búa fjarri verslunarstöðum, þurfa að borga mikla fjármuni vegna aðdrátta og flutnings á framleiðsluvörum og borga með því mjög háar upphæðir í Vegasjóð. Þetta gildir líka um þeirra persónulega aðdrætti. Og enn fremur, þó að það sé rétt að t.d. bóndi þurfi ekki að aka langar leiðir til atvinnu sinnar dag hvern, þá leiðir af strjálbýlinu að ýmsar aðrar vegalengdir verða mjög miklar, eins og t.d. það að fara í verslun og kaupa nauðsynjar sínar. Það er víða mjög langur vegur sem til þess þarf að fara. Ég veit ekki hvort gerð hefur verið nokkur könnun á þessum samanburði, en ég veit að þetta er mjög algengt, bæði í kaupstöðum og í sveitum, að eigendur bifreiða aka milli 10 og 20 þús. km á ári, auðvitað sumir meira, sumir eitthvað minna. Mér er ekki kunnugt um og ég efast um að það sé stórkostlegur munur á þessu eftir því hvar menn búa, þó að hitt sé rétt, að sjálfur aksturinn til og frá vinnunni sem slíkri er mismunandi.