Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF Word Perfect.

Þingskjal 1560, 130. löggjafarþing 818. mál: Háskólinn á Akureyri (auglýsing starfa, tímabundin ráðning o.fl.).
Lög nr. 43 12. maí 2004.

Lög um breytingu á lögum nr. 40/1999, um Háskólann á Akureyri.


1. gr.

     Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. laganna:
  1. Við 9. mgr. bætist nýr málsliður, svohljóðandi: Háskólaráð getur mælt svo fyrir í reglunum að undanþiggja megi auglýsingu störf sem byggjast á sérstökum tímabundnum styrkjum, störf sem tengjast sérstökum tímabundnum verkefnum, störf sem nemendur stunda við háskólann samhliða rannsóknartengdu framhaldsnámi og störf við háskólann sem tengjast tilteknu starfi utan hans á grundvelli samstarfssamnings.
  2. Við bætast tvær nýjar málsgreinar, svohljóðandi:
  3.      Heimilt er að ráða kennara til háskólans tímabundinni ráðningu til allt að fimm ára. Um tilhögun slíkrar ráðningar skal háskólaráð setja reglur. Sama á við um þá sem eingöngu eru ráðnir til vísinda- og fræðistarfa.
         Kennara má ráða í hlutastarf í samræmi við reglur sem háskólaráð setur. Heimilt er að tengja starf kennara tilteknu starfi utan háskólans eða starfi við stofnanir hans samkvæmt reglum sem háskólaráð setur.


2. gr.

     Lög þessi öðlast þegar gildi.

Samþykkt á Alþingi 29. apríl 2004.