Ferill 70. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
106. löggjafarþing 1983–1984.
Þskj. 750 — 70. mál.
Frumvarp til laga
um tóbaksvarnir.
(Eftir 2. umr. í Nd., 3. maí.)
I. KAFLI
Markmið, gildissvið og stjórn.
l. gr.
2. gr.
2.2. Lög þessi taka einnig til varnings sem ætlaður er til neyslu með sama hætti og tóbak þótt hann innihaldi ekki tóbak, enda gildi ekki um hann önnur tög.
2.3. Lög þessi gilda ekki um tóbak sem notað er sem lyf, skv. lyfjalögum, nr. 49/1978, eða sem eiturefni, skv. lögum nr. 85/1968, um eiturefni og hættuleg efni.
3. gr.
4. gr.
5. gr.
5.2. Hlutverk tóbaksvarnanefndar er fyrst og fremst:
l. Að vera ríkisstjórn, heilbrigðismálaráðherra, Hollustuvernd ríkisins, Vinnueftirliti ríkisins og öðrum opinberum aðilum til ráðuneytis um allt er að tóbaksvörnum lýtur.
2. Að gera tillögur til stjórnvalda um ráðstafanir til þess að vinna gegn neyslu tóbaks í samræmi við lög þessi.
3. Að hvetja aðra aðila til átaks í reykingavörnum og leitast við að samræma störf þeirra.
4. Að veita aðstoð og leiðbeiningar varðandi tóbaksvarnir, m. a. með því að gefa út og útvega fræðslurit og önnur fræðslugögn.
5. Að fylgjast með tóbaksneyslu í landinu.
6. Að nýta reynslu og þekkingu annarra þjóða á sviði tóbaksvarna.
5.3. Fjármálaráðuneytið skal hafa samráð við tóbaksvarnanefnd um stefnumörkun varðandi innflutning og verðlagningu tóbaks.
5.4. Leita skal álits nefndarinnar um allar reglugerðir sem snerta tóbaksvarnir og tóbakssölu.
5.5. Tóbaksvarnanefnd starfar í samvinnu við Hollustuvernd ríkisins og Vinnueftirlit ríkisins.
5.6. Ráðherra er heimilt að setja nánari ákvæði um hlutverk og störf tóbaksvarnanefndar í reglugerð.
II. KAFLI
Sala og auglýsingar.
6. gr.
6.2. Ráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um merkingar þessar, þ. á m. um aðvörunartexta, stærð hans, letur og annað sem máli kann að skipta.
6.3. Tóbaksframleiðendur standa straum af kostnaði við merkingar skv. þessari grein.
7. gr.
7.2. Bannað er enn fremur að sýna neyslu eða hvers konar meðferð tóbaks eða reykfæra í auglýsingum eða upplýsingum um annars konar vöru eða þjónustu.
7.3. Með auglýsingum er í lögum þessum m. a. átt við hvers konar tilkynningar til almennings, eftirlíkingar af tóbaksvarningi, skilti og svipaðan búnað, útstillingar og notkun tóbaksvöruheita og auðkenna.
8. gr.
8.2. Bannað er að selja tóbak úr sjálfsölum.
8.3. Ekki má selja tóbak í spítölum, skólum eða stofnunum fyrir börn og unglinga.
III. KAFLI
Takmörkun á tóbaksreykingum.
9. gr.
9.2. Þar sem tóbaksreykingar eru óheimilar skv. 1. tl. skal það gefið til kynna með merki eða á annan greinilegan hátt.
10. gr.
1. Í grunnskólum, dagvistum barna og húsakynnum sem eru fyrst og fremst ætluð börnum og unglingum yngri en 16 ára til félags- og tómstundastarfa.
2. Á opinberum samkomum innanhúss fyrir börn eða unglinga hafi börn innan 16 ára aldurs aðgang að þeim.
3. Í heilsugæslustöðvum.
10.2. Yfirmanni stofnunar, skv. l. og 3. mgr., er þó heimilt samkvæmt tillögu starfsmannafundar eða starfsmannaráðs að leyfa reykingar í hluta þess húsnæðis sem ætlað er starfsfólki sérstaklega, enda skal þess gætt að það valdi ekki óþægindum þeim starfsmönnum sem ekki reykja.
10.3. Á sjúkrahúsum má einungis leyfa reykingar á tilteknum stöðum þar sem þær eru ekki til óþæginda fyrir þá sem reykja ekki.
11. gr.
12. gr.
13. gr.
13.2. Heimilt er forráðamönnum flugvéla að leyfa reykingar í hluta farþegarýmis í atvinnuflugi milli landa. Þess skal þó ávallt gætt að óþægindi skapist ekki fyrir þá sem ekki reykja.
13.3. Setja skal sérreglugerð í samráði við Siglingamálastofnun ríkisins um tóbaksreykingar um borð í skipum.
IV. KAFLI
Fræðslustarfsemi.
14. gr.
1. Í skólum landsins. Sérstök áhersla skal lögð á slíka fræðslu í grunnskólum og skólum þeim sem mennta fólk til starfa að uppeldis-, fræðslu- og heilbrigðismálum.
2. Í ríkisfjölmiðlum.
14.2. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið gengst fyrir aðstoð við þá sem hætta vilja að reykja:
1. Á vegum heilsugæslustöðva.
2. Með námskeiðum í samvinnu við félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki.
V. KAFLI
Almenn ákvæði.
15. gr.
15.2. Tóbaksvarnanefnd gerir tillögur til ráðherra um ráðstöfun fjárins.
16. gr.
VI. KAFLI
Eftirlit og viðurlög.
17. gr.
17.2. Nú er brotið gegn ákvæðum II. kafla og ekki farið að fyrirmælum heilbrigðisnefndar og getur nefndin þá beitt sömu úrræðum og talin eru upp í 27. gr. laga nr. 50/1981.
18. gr.
19. gr.
19.2. Brot gegn ákvæðum l. mgr. 8. gr. varða sektum. Fella má refsingu niður ef málsbætur eru miklar.
19.3. Brot gegn ákvæðum 2. og 3. mgr. 8. gr. varða sektum.
19.4. Um tilraun til brots eða hlutdeild gilda ákvæði almennra hegningarlaga, nr. 19/1940.
20. gr.
20.2. Sömu aðilar geta vísað hinum brotlega úr farartækinu eða húsakynnum láti hann ekki segjast.
21. gr.
VII. KAFLI
Gildistaka.
22. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
2. Reglugerð skv. 2. mgr. 6. gr., um merkingar á tóbaki, skal unnin þegar í stað og öðlast gildi um leið og lögin.