Ferill 70. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
106. löggjafarþing 1983–1984.
Þskj. 897 — 70. mál.
Frumvarp til laga
um tóbaksvarnir.
(Eftir 2. umr. í Ed., 14. maí.)
Samhljóða þskj. 750 með þessum breytingum:
8. gr. hljóðar svo:
8.1. Tóbak má ekki selja einstaklingum yngri en 16 ára.
8.2. Bannað er að selja tóbak úr sjálfsölum.
8.3. Ekki má selja tóbak í skólum eða stofnunum fyrir börn og unglinga.
10. gr. hljóðar svo:
10.1. Tóbaksreykingar eru óheimilar:
1. Í grunnskólum, dagvistun barna og húsakynnum sem eru fyrst og fremst ætluð börnum og unglingum yngri en 16 ára til félags- og tómstundastarfa.
2. Á opinberum samkomum innanhúss fyrir börn eða unglinga hafi börn innan 16 ára aldurs aðgang að þeim.
3. Í heilsugæslustöðvum.
10.2. Yfirmanni stofnunar, skv. 1. og 3. mgr., er þó heimilt samkvæmt tillögu starfsmannafundar eða starfsmannaráðs að leyfa reykingar í hluta þess húsnæðis sem ætlað er starfsfólki sérstaklega, enda skal þess gætt að það valdi ekki óþægindum þeim starfs
10.3. Á sjúkrahúsum má einungis leyfa reykingar á tilteknum stöðum þar sem þær eru ekki til óþæginda fyrir þá sem reykja ekki.
17. gr. hljóðar svo:
17.1. Heilbrigðisnefndir, undir yfirumsjón Hollustuverndar ríkisins, hafa eftirlit með útsölustöðum tóbaks og fylgjast með því í umdæmi sínu að virt séu ákvæði II. kafla laga þessara um merkingar, auglýsingar og sölu tóbaks.
17.2. Nú er brotið gegn ákvæðum II. kafla og ekki farið að fyrirmælum heilbrigðisnefndar og getur nefndin þá beitt sömu úrræðum og talin eru upp í 27. gr. laga nr. 50/1981.
18. gr. hljóðar svo:
18.1. Heilbrigðisnefndir og Vinnueftirlit ríkisins fylgjast með því eftir því sem við á að virt séu ákvæði III. kafla laga þessara og skal þá farið skv. ákvæðum laga nr. 50/1981 og 1. nr. 46/1980.