Ferill 103. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


106. löggjafarþing 1983–84.
Nr. 24/106.

Þskj. 1123  —  103. mál.


Þingsályktun

um lagahreinsun og samræmingu gildandi laga.


    Alþingi ályktar:
     1.      Að fela ríkisstjórninni að leita eftir samstarfi við Lagastofnun Háskóla Íslands um framhaldsvinnslu lagasafns með þeim hætti að
                  a.      fella nýja löggjöf inn í tölvuskráðan texta lagasafns 1984, þannig að ávallt sé tiltækur réttur texti gildandi laga í landinu,
                  b.      undirbúa hreinsun úreltra ákvæða úr núgildandi lögum og gera tillögur um niðurfellingu lagabálka sem engum tilgangi þjóna lengur og fella má úr gildi og um greinar gildandi laga sem eðlilegt er og nauðsynlegt að samræma,
                  c.      gera reglugerðum sömu skil um brottfellingu og samræmingu og
                  d.      leggja á ráð um framtíðarskipun á útgáfu laga og reglugerða og alhliða upplýsingamiðlun um réttarreglur, enda verði tölvutækni hagnýtt eftir því sem kostur er og henta þykir.
     2.      Að fela ríkisstjórninni að sjá til þess að maður verði ráðinn til framkvæmdar á þessu verkefni.
     3.      Að kjósa nefnd níu manna til ráðuneytis um framkvæmd framangreindra verkefna.

Samþykkt á Alþingi 22. maí 1984.