Ferill 149. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


108. löggjafarþing 1985–86.
Nr. 1/108.

Þskj. 178  —  149. mál.


Þingsályktun

um fullgildingu samkomulags um breytingu á samstarfssamningi Norðurlanda.


    Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samkomulag um breytingu á samstarfssamningnum frá 23. mars 1962 milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar sem undirritað var í Lundi 6. maí 1985. Samkomulagið er prentað hér sem fylgiskjal.

Samþykkt á Alþingi 28. nóvember 1985.