Ferill 166. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


109. löggjafarþing 1986–87.
Nr. 16/109.

Þskj. 1075  —  166. mál.


Þingsályktun

um skipulegt átak til aukinnar sjúkra- og iðjuþjálfunar í heilsugæslunni.


    Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að skipa sérstaka nefnd til að vinna að skipulegu, samræmdu átaki til þess að koma á sem bestri sjúkra- og iðjuþjálfun sem víðast um land. Kannað verði hvernig tengja megi þessa þætti sem best við kennslu í heilsurækt í efstu bekkjum grunnskólans.
    Jafnframt verði athugað hvernig unnið yrði að forvarnarstarfi á vinnustöðum þar sem leiðbeint yrði sem gleggst um grundvallaratriði réttra vinnubragða og vinnustellinga jafnhliða bættri vinnuaðstöðu. Leitað verði samráðs um átak þetta við samtök launafólks og vinnuveitenda, svo og þau félög heilbrigðisstétta sem málið varðar sérstaklega.

Samþykkt á Alþingi 18. mars 1987.