Forseti Íslands setur þingið
Mánudaginn 10. október 1988

    Forseti Íslands (Vigdís Finnbogadóttir):
    Hinn 28. september 1988 var gefið út svofellt bréf:
    ,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:
    Ég hef ákveðið samkvæmt tillögu forsætisráðherra að Alþingi skuli koma saman til fundar mánudaginn 10. október 1988.
    Um leið og ég birti þetta er öllum sem setu eiga á Alþingi boðið að koma nefndan dag til Reykjavíkur og verður þá Alþingi sett að lokinni guðsþjónustu í Dómkirkjunni sem hefst kl. 13.30.

Gjört í Reykjavík, 28. september 1988.

Vigdís Finnbogadóttir.

    Steingrímur Hermannsson.
    Forsetabréf um að Alþingi skuli koma saman til fundar mánudaginn 10. október 1988.``

    Samkvæmt bréfi því, sem ég nú hef lesið, lýsi ég yfir því að Alþingi Íslendinga er sett.
    Bið ég yður að rísa úr sætum og minnast ættjarðarinnar.
    [Þingheimur stóð upp og forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson, mælti: ,,Heill forseta vorum og fósturjörð. Ísland lifi.`` Tóku þingmenn undir þessi orð með ferföldu húrrahrópi.]
    Samkvæmt 1. gr. þingskapa ber nú aldursforseta að stjórna fundi þar til kosning forseta sameinaðs Alþingis hefur farið fram og bið ég aldursforseta, Stefán Valgeirsson, 6. þm. Norðurl. e., að ganga til forsetastóls.