Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfa
Þriðjudaginn 11. október 1988

     Aldursforseti (Stefán Valgeirsson):
    Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 11. okt. 1988:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Jónas Hallgrímsson framkvæmdastjóri, taki sæti mitt á Alþingi í fjarveru minni.
Halldór Ásgrímsson,

1. þm. Austurl.``

    Þar sem Jónas Hallgrímsson hefur áður setið á Alþingi á þessu kjörtímabili þarf ekki að skoða hans kjörbréf og býð ég hann velkominn til starfa.