Kosning í fastanefndir í Nd.
Miðvikudaginn 12. október 1988

    Sighvatur Björgvinsson:
    Herra forseti. Ég vil eindregið fara þess á leit, þannig að það fari ekki á milli mála hvenær verið er að kjósa og menn séu ekki fjarstaddir, að virðulegur forseti hringi bjöllunni í hvert skipti sem gengið er til kosninga. Ég vek athygli á því að ekki virðist öllum hv. deildarmönnum vera það ljóst hvenær verið er að kjósa.