Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Það var nokkuð sérkennileg ræða sem hv. 1. þm. Reykv. flutti hér áðan. Það mætti ætla að hann hefði dvalist erlendis langdvölum síðustu mánuðina og a.m.k. ekki verið ráðherra í þeirri ríkisstjórn sem sagði af sér í síðasta mánuði. Það er gaman að hlusta á svona umræður og hlusta á hvað menn eru langt frá veruleikanum. Hvernig var staðan þegar hæstv. síðasta ríkisstjórn fór frá völdum og sem hv. 1. þm. Reykv. var ráðherra í? Hvað sögðu ráðherrarnir sjálfir? Það mátti ekki bíða nema í nokkra daga til þess að taka á þeim efnahagsvanda sem við blasti. Þetta eru þeirra orð. Þrátt fyrir frelsi gráa markaðarins eða kannski vegna hans m.a. ( ÓÞÞ: Var hann ekki bara erlendis?) Sennilega hefur hann bara verið erlendis, a.m.k. með hugann.
Eitt af því sem hv. þm. sagði var að það mætti telja það af hinu verra að það væri hátt hlutfall í ríkisbönkunum af sparifé landsmanna. Hverjir eru það sem standa fyrst og fremst undir atvinnulífinu í þessu landi? Er það grái markaðurinn eða eru það einkabankarnir eða skilur hv. þm. ekki nokkurn skapaðan hlut á hverju þessi þjóð lifir, hverjir það eru og hvar fæst það fjármagn sem stendur undir framleiðslu þessarar þjóðar? Og svo talar þessi fyrrv. ráðherra um að það megi ekki skerða frelsi gráa fjármagnsins. Það er það eina sem kemst að í hans huga ef það á að marka mál hans. Voru það margar setningar sem hann sagði í sambandi við rekstrarerfiðleika þjóðarinnar, þann vanda sem við horfum nú fram á? Það að það eru fleiri milljarðar sem hafa farið frá fólki og fyrirtækjum --- ja hvert? Það væri gaman að hv. þm. kæmi hér upp í ræðustólinn og skýrði frá því hvert það hefur farið. Og hver ber ábyrgð á slíku? Veit hann virkilega ekki að það eru ekki hundruð heldur þúsundir einstaklinga sem eru komin í vandræði út af háum fjármagnskostnaði, út af því að lánskjaravísitalan hefur verið sett saman eins og hefur verið gert? Og hvernig er með atvinnureksturinn? Um að gera að auka frelsi gráa markaðarins.
Nei, ég er hættur að skilja þessa menn. En nóg um það í bili. Það er eitt sem þyrfti auðvitað að gera og það er að taka út rækilega hvernig viðskilnaður síðustu ríkisstjórnar var þannig að það fari ekkert á milli mála. Því miður takmarkaði hæstv. forseti umræður í sambandi við það sem fjmrh. sagði um viðskilnaðinn og ég sé ekki annað en að það sé ætlað tveimur mönnum að skipta þar ræðutíma á milli sín og mun knappt vera. Aðrir eiga þar ekki að komast á mælendaskrá eða a.m.k., ef það verður farið eftir þessum ströngu reglum, skil ég ekki í að það verði mikið eftir af þessum tíma. ( Forseti: Samkvæmt þeim ákvæðum í þingsköpum sem gert er ráð fyrir að fylgja geta allir hv. þm. tekið til máls en það er skammtaður ræðutími.) (Gripið fram í.) Það verður erfitt a.m.k. að lesa upp . . . (Gripið fram í.) Ja, huldufólkið er nú víða og væri betur ef það hefði varðveitt störf síðustu ríkisstjórnar, en það er alveg áreiðanlegt að það hafa verið frekar einhverjir árar sem þar hafa verið á bak
við. (Gripið fram í.) Ég treysti mér varla til að halda ræðu minni áfram á meðan hér er myrkur nema þá að ég tali meira til hv. 1. þm. Reykv. og annarra fyrrv. ráðherra. ( Forseti: Forseti getur að sjálfsögðu fallist á að hv. þm. geri hlé á máli sínu ef honum svo hentar vegna rafmagnsleysisins og legg ég það í vald hv. 6. þm. Norðurl. e. hvort hann óskar eftir að gera hlé á máli sínu meðan leitað er eftir rafmagninu.) Forseti, ég skil nú ekkert í því að það er ljós hér frammi en ekki í salnum þannig að þetta er allt með undarlegum hætti.
Þetta frv. er breyting á lögum nr. 27/1986 sem voru þá nýmæli. ( Forseti: Það skal tekið fram að gengið hefur verið úr skugga um það að hátalarakerfið er í lagi.) Þetta frv. fjallar um mikilvægan og vaxandi þátt í okkar þjóðlífi sem nauðsynlegt er að fylgjast betur með en gert hefur verið fram að þessu. Lögin hafa ekki náð þeim tilgangi sem ætlast var til ef miðað er við þær umræður sem fram fóru hér á hinu háa Alþingi þegar málið var til umfjöllunar. Í þeim umræðum lét ég það álit mitt í ljós eins og frv. var lögfest mundi það reynast haldlítið og nú aðeins tveimur árum seinna er verið að breyta lögunum þannig að vonast er til að það veiti þessari starfsemi meira aðhald en hefur verið til þessa.
Mér virðist frv. að flestu leyti vel unnið, en þó er mikill galli á því sem er mér undrunarefni. Hann varðar meginatriði verðbréfaviðskipta og raunar einnig eignarleigustarfseminnar, þ.e. hverjir gera viðskiptin og samninga, t.d. um eignarleigu. Ég legg til að frv. verði breytt þannig að ný upphafsákvæði verði í 2. gr. þess á undan ákvæðum sem nú eru og þau verði svohljóðandi:
Þeir sem lög þessi taka til og hafa atvinnu af viðskiptum með verðbréf skulu afla glöggra upplýsinga um hverjir viðskiptamenn þeirra eru og skrá nöfn þeirra, kennitölur og heimili á reikninga eða uppgjör vegna viðskiptanna. Einnig ber öllum sem atvinnu hafa af viðskiptum með verðbréf að geyma afrit eða ljósrit af öllum skjölum, sérgerðum vegna viðskiptanna, svo sem tékkum. Skal geyma afrit og ljósrit skjala, sem tengd eru einstökum viðskiptum,
sérgreind og tengja þau glögglega númeri og dagsetningu reikninganna.
Tilgangur þessara ákvæða er almennt að stuðla að glöggum og greinargóðum viðskiptum með verðbréf og auðvelda opinberum aðilum að afla upplýsinga þar um. Ef maður hefur t.d. týnt verðbréfi getur skipt miklu að geta fengið ljósrit af því hjá seljanda. Þá stuðlar tilvist og aðgengi að þessum gögnum að því að fylgt sé lögum og reglum um viðskiptin og tengd atriði. Ég tel upplýsingar um hverjir eigi hlut að verðbréfaviðskiptum slík höfuðatriði í löggjöf þar um að ekki beri að fallast á að lögfesta slík frumvörp án þess að þetta atriði sé þar inni í.
Þá kem ég að 30. gr. sem hv. þm. Friðrik Sophusson gerði hér mjög að umræðuefni. Ég tel að þessi grein eigi ekki að vera eins og hún er hér: ,,Ráðherra getur heimilað Seðlabanka Íslands að láta sömu reglur . . . `` o.s.frv. Ég legg til að greinin verði
þannig: Sömu reglur gilda um verðbréfafyrirtæki og verðbréfasjóði að því er varðar bundið fé og settar eru innlánsstofnunum o.s.frv. Ég sé enga ástæðu til þess að ekki séu alveg sömu kvaðir á þessum viðskiptum og eru í bönkum og sparisjóðum. Ég tel þetta vera meginmál og því sé alveg ástæðulaust að hafa þetta í heimildarformi. Mér er tjáð að erlendis sé það ýmist í heimildarformi eða ákveðin skylda og ég óska eftir því að hæstv. viðskrh., sem mun hafa kynnt sér þessi mál, hvernig þeim er fyrir komið annars staðar, erlendis, upplýsi það þá hér ef ég fer ekki með rétt mál. Ég veit hins vegar ekki betur. Eigi þetta ákvæði við um banka og sparisjóði og innlánsdeildir hlýtur það líka að eiga við í sambandi við þessa starfsemi.
Ég ætla ekki að ræða þetta í öllu lengra máli. Ég vil bara upplýsa það að ég var búinn að fá frv. í hendur áður en það var lagt fram, en ég var ekki búinn að koma með mínar athugasemdir til hæstv. ráðherra og tel mig þar með ekki bundinn að styðja þetta frv., a.m.k. ekki öðruvísi en að þessi tilgreindu atriði verði tekin til greina. Þetta mál er mjög flókið og erfitt að átta sig á hvernig ýmis atriði muni reynast í framkvæmd og ég játa það að ég er ekki búinn að athuga það nægilega vel í smáatriðum. Þess vegna kann að vera að ég eigi eftir að koma fram með einhverjar ábendingar eða athugasemdir síðar.
Ég vil svo að síðustu bara segja það að ég vonast til þess að hér á hinu háa Alþingi reyni menn að gera sér grein fyrir þeim vanda sem steðjar að okkar atvinnulífi og einstaklingum og reyni að snúa sér að því í sameiningu að leysa þau mál en eyða ekki miklum umræðum um það hvort frelsi gráa markaðarins, sem ég kalla, eigi að vera án nokkurra kvaða eða ekki. Það mun ekki leysa vandamálin þó að það frelsi verði takmarkalaust eins og mér skildist að væri efst í huga hv. þm. Friðriks Sophussonar, að berjast fyrir því.
Ég ítreka svo að það þarf að athuga þetta mál frekar og ég óska eftir því að geta síðar komið athugasemdum annaðhvort til nefndarinnar sem um þetta fjallar eða þá beint til hæstv. viðskrh.