Viðskilnaður ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar
Þriðjudaginn 18. október 1988

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Af þessu tilefni vill forseti taka fram að vissulega hefur verið að því stefnt að umræður utan dagskrár færu fram í sem ríkustum mæli í sameinuðu þingi, en sú regla er ekki án undantekninga. Það kom fram ósk um að hér yrðu umræður utan dagskrár í deildinni. Forseti taldi ekki að svo ásett væri enn um verkefni deildarinnar að ekki væri ráðrúm til að verða við þessari ósk. Hún var fram borin eins og ég hef áður lýst varðandi takmarkaðan ræðutíma og það hefur verið orðið við þessari ósk. Í því felst engin stefnubreyting af hálfu forseta þingsins um það að umræður fari almennt eða frekar fram í sameinuðu þingi, en hins vegar jafnframt eins og verið hefur komi fram ósk um að slík umræða fari fram í deild og sé til þess ráðrúm áskilja forsetar sér rétt til þess að verða við þeim óskum, enda er hlutverk forseta að greiða fyrir því að skoðanaskipti geti farið fram hér í Alþingi og jafnt í deildum sem sameinuðu þingi eftir því sem kostur er.