Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
Herra forseti. Til að fyrirbyggja misskilning tek ég það alveg skýrt fram að ástæða þess að ég fer ekki hér á tveimur mínútum í skömmtuðum ræðutíma utandagskrárumræðu í annarri deildinni, þótt hv. 1. þm. Suðurl., formanni Sjálfstfl., þóknist að hefja þá umræðu, að gera ítarlega grein fyrir stöðu ríkisfjármálanna á þessu ári, það bíður betri tíma, lengri umræðu og gerist í sameinuðu þingi þegar þau gögn liggja öll fyrir, það sem ég sagði í Garðabæ hef ég sagt áður og við mörg önnur tækifæri og tengist ekkert því hvar hinn ágæti fyrirrennari minn er staddur, er að útkoman úr ríkisstjórnarferli Þorsteins Pálssonar er verri en forustumenn þeirrar ríkisstjórnar, þar með talinn forsrh., höfðu sagt.
Eina tilefni þessarar utandagskrárumræðu, eftir því sem ég get best séð, er fyrir hvern og einn af ráðherrum Sjálfstfl. sem hér hefur talað að koma upp og endurtaka það að í september hafi þeir fengið einhverjar upplýsingar um annað. Þeir eru að þvo hendur sínar, svo maður orði það hversdagslega. Þeir eru að reyna að koma hér upp og segja: Ekki ég, ekki ég. Þeir eru að flýja frá ábyrgð, þeir eru að flýja frá fortíð sinni, þeir eru að flýja frá sinni eigin ríkisstjórn. Það er kjarni þessarar umræðu og ekkert annað. Þetta er upphafið að flótta Sjálfstfl. hér í þingsölum frá fortíð sinni og flóttann leiðir formaður Sjálfstfl. Þorsteinn Pálsson.
Ef það er ætlun hv. þm. Þorsteins Pálssonar að reyna að reka einhvern fleyg milli mín og formanns Alþfl. get ég sagt honum það að hann getur alveg sparað sér þær tilraunir, það mun ekki takast. Eins og ég sagði hér áðan: Okkar samvinna hefur verið, er og verður mjög góð vegna þess að við ætlum okkur báðir það sameiginlega verkefni að koma í veg fyrir það að Sjálfstfl. hafi um langan tíma forustu fyrir íslenskum þjóðmálum.