Viðskilnaður ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar
Þriðjudaginn 18. október 1988

     Þorsteinn Pálsson:
    Herra forseti. Ein spurning til hæstv. fjmrh. Hann getur farið á fund í flokksfélaginu með upplýsingar um það hver staðan er í ríkisfjármálum, en segir svo: Það er ekki hægt að gera Alþingi grein fyrir því fyrr en þetta liggur fyrir. M.ö.o.: þessar upplýsingar virðast ekki hafa legið fyrir þegar hann hélt sína ræðu á flokksfundinum á laugardaginn var.