Jöfnun á námskostnaði
Miðvikudaginn 19. október 1988

     Flm. (Guðrún J. Halldórsdóttir):
    Frú forseti. Mér var kunnugt um að þessi endurskoðun var langt komin, en mér er líka kunnugt um að mörg góð mál hafa verið unnin fyrir ráðuneyti og þegar skipt hefur verið um ráðherra hafa þessi mál verið svæfð. Það er þess vegna m.a. sem ég hóf máls á þessu.
    Í annan stað er það þannig að það eru vissir aðilar sem mér virðast oft gleymast við setningu laga og við ákvarðanatöku í skólakerfinu, þar á ég einkum og sér í lagi við það fólk sem stendur höllustum fæti, þ.e. það fólk sem hefur minnsta skólagöngu og þarf í rauninni á mestum stuðningi að halda. Það er líka þess vegna sem ég hóf máls á þessu.