Kristín Halldórsdóttir:
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. 7. þm. Reykn. fyrir að hefja þessa umræðu og fyrir fróðlega ræðu hans. Hér er um stórt mál að ræða, stórt í tölum og öllu öðru tilliti. Saga þess er þó ekki löng þrátt fyrir stærðina. Um miðjan september sl. barst okkur þm. Reykn. bréf frá forráðamönnum Stálvíkur hf. og gögn varðandi samninga um smíði 10 skuttogara fyrir Marokkó sem yrðu þá aðeins að hluta til smíðaðir hér innan lands en að stærstum hluta í Perú eins og hv. 7. þm. Reykn. lýsti hér áðan. Eins og málið var þá kynnt fyrir okkur virtist ekki um mikla áhættu að ræða, hvorki fyrir fyrirtækin né heldur ríkissjóð, og freistingin var mikil að trúa því að þetta væri hið besta mál fyrir framtíð íslenskra skipasmíða sem lengi hafa átt erfitt uppdráttar.
Ástandið í stjórnmálunum um þessar mundir olli því að þetta mál ýttist nokkuð til hliðar og virtist komið í eindaga þegar það næst kom upp á borð hjá þm. Reykjaneskjördæmis, þ.e. í lok septembermánaðar. Þá áttum við fund saman og með forráðamönnum Stálvíkur hf., og þá kom í ljós að staðan var allmikið breytt og forsendur breyttar eins og þegar hefur verið lýst hér fyrr í umræðunni. Þá var farið að tala um miklu stærri hlut Íslendinga í þessu verkefni og þá um leið beina hlutdeild ríkissjóðs og miklu meiri áhættu vegna ábyrgðar sem var auðvitað alveg ný stefna í málinu.
Ég verð að viðurkenna að það sló mig strax þegar þessi gögn og aðstæður voru athugaðar að hér væri verið að tefla á tæpasta vað og ef þetta skref yrði stigið væri það hið fyrsta út á afar vafasama braut ríkisstyrkja og niðurgreiðslna sem engin leið væri að sjá fyrir endann á. Nú er það svo að margir telja slíka fyrirgreiðslu réttlætanlega til þess m.a. að bæta samkeppnisstöðuna gagnvart erlendum aðilum og þá ekki síst gagnvart frændum okkar Norðmönnum sem sagðir eru styrkja sinn skipasmíðaiðnað um á að giska 20%. Burtséð frá því hversu ógeðfelld leið það í rauninni er, þá held ég að við verðum einfaldlega að horfast í augu við að í þeim leik yrðum við alltaf veikari aðilinn og ég held að það séu nánast engar líkur til þess að við hefðum úthald og þrautseigju til þess að ná viðskiptum af öðrum þjóðum með þeim hætti. Það er heiðarlegra, geðfelldara og á allan hátt skynsamlegra að halda sig við það sem við getum sjálf betur en aðrir á sambærilegu verði.
Kannski er þetta fyrst og fremst spurning um heildarstefnu. Eigum við yfirleitt að greiða með iðnaði sem er illa samkeppnisfær við erlendan iðnað? Við höfum mörg dæmi um slíkt. Áttum við t.d. að styrkja með beinum framlögum íslenskan húsgagnaiðnað sem stóð með blóma fyrir nokkrum árum, en hrundi nánast á örskömmum tíma? Hefðum við átt að grípa í taumana og reyna að hefta þróunina í fataiðnaði sem hefur valdið atvinnumissi hundraða, jafnvel þúsunda kvenna? Og fleiri dæmi mætti nefna. Þetta er alltaf erfitt að vega og meta sérstaklega vegna hins mannlega þáttar. En sjaldnast er skynsamlegt að grípa inn í á þennan hátt því ávinningurinn er oft
skammvinnur. Í því tilviki sem við ræðum hér og nú var aðeins um haldlitla von að ræða.
Íslensk skipasmíði hefur átt erfitt uppdráttar að undanförnu eins og reyndar margar aðrar iðngreinar í landinu. Enginn vafi er á því að íslensk skipasmíði og skipaviðgerðir eru fyllilega samkeppnisfærar hvað gæðin varðar og við þurfum einfaldlega á því að halda að þessi iðnaður lognist ekki út af. Við þurfum að hafa hér traust fyrirtæki sem geta annast viðhald og stundað nýsmíði í einhverjum mæli. Sú þjónusta má vera eitthvað dýrari en sambærileg þjónusta erlendis án þess að það verði óhagkvæmt, það hljóta allir að viðurkenna, og lánafyrirgreiðsla á að taka mið af því. Skipasmíðaiðnaður hefur verið á niðurleið í Evrópulöndum og er því þeim mun meiri þörf fyrir öryggi í viðgerðarþjónustu hér heima því varla þætti hagkvæmt að sækja hana um langan veg, t.d. austur í Asíu. Svo kann auðvitað að fara að íslenskar skipasmíðar verði samkeppnisfærar við önnur lönd ef svo fer, sem margir virðast álíta, að Arabaþjóðir fari að kaupa sér fiskiskip í stórum stíl. Það er auðvitað freistandi að reyna að öðlast þátttökurétt í slíku kapphlaupi, en menn verða að sjást fyrir í þessum efnum, slíkt má ekki kaupa of dýru verði.
Í þessu tiltekna dæmi voru allt of mörg vafaatriði. Það var t.d. mál margra í skipasmíðaiðnaðinum að tilboðið væri of lágt, verðið væri of lágt þannig að jafnvel þótt umtalsverðir styrkir fengjust og jafnvel þótt gætt væri ýtrustu hagkvæmni og samvinnu íslenskra skipasmíðastöðva þá gengi dæmið ekki upp. Það yrði samt tap og engin trygging fyrir því að þetta verkefni leiddi til frekari verkefna og þar með uppsveiflu í hérlendum skipasmíðum. Ég kann auðvitað ekki að meta það sjálf, en það hefði þá ekki verið í fyrsta skiptið sem hugdjarfir athafnamenn reiknuðu inn á þjóðina verkefni sem hún þyrfti að greiða hærra verði en lofað var í upphafi. Við höfum satt að segja nóg af slíkum dæmum þar sem lagt er upp af lítilli fyrirhyggju og síðan er komið og talað um þjóðhagslegt gildi þess að allir leggist á eitt með að bjarga því sem brugðist hefur. Því miður voru baktryggingar ekki nógu góðar og heldur ótraust að Marokkómenn gætu staðið við sitt. Þeir eru víst ekki heimsins vinsælustu skuldarar um þessar mundir.
Hugmyndir um að fóðra stuðning úr ríkissjóði með því að um markaðsátak og þróunaraðstoð væri að ræða eru ekki sérlega snjallar. Ég sé ekki fyrir endann á því ferðalagi ef við færum út á slíkar brautir, sérstaklega hvað það varðar að reyna að kalla þetta þróunaraðstoð.
Að öllu samanlögðu tel ég því að stjórnvöld hafi tekið rétta afstöðu í þessu máli. Um leið hljótum við að vona að unnt verði að sinna þessu verkefni í samvinnu við erlendar skipasmíðastöðvar, svo sem enn er til athugunar, og að ekki verði tap á þeim viðskiptum. Ég hlýt að óska viðkomandi alls hins besta, tíma og ráðrúms til að vinna að því máli og að fara réttir og a.m.k. sléttir út úr því.