Smíði skuttogara fyrir Marokkó
Miðvikudaginn 19. október 1988

     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Hæstv. iðnrh. hefur nú þegar gert grein fyrir þeim meginsjónarmiðum sem mótuðu afstöðu ríkisstjórnarinnar í þessu máli og hv. þm. Kristín Halldórsdóttir hefur einnig í sinni ræðu lýst mjög rækilega viðhorfum sem í einu og öllu fara heim og saman við þau viðhorf sem einkenndu afstöðu mína og annarra ráðherra í ríkisstjórninni gagnvart þessu máli. Þess vegna þarf í raun og veru ekki neinu við að bæta efnislega til þess að skýra hvers vegna ríkisstjórnin, því miður, tók þá ákvörðun að hafna beiðni Stálvíkur.
    Ég vil hins vegar nota þetta tækifæri til þess að koma því á framfæri við stjórnendur þessa fyrirtækis og annarra fyrirtækja sem hyggja á hliðstæð verkefni, hvort sem það er í skipasmíðum eða öðrum greinum, að það er mjög mikilvægt að erindi til ríkisstjórnar og ríkissjóðs sérstaklega varðandi styrki og ríkisábyrgðir séu betur undirbúin en þetta erindi var, því miður. Það var ærið margt sem á skorti varðandi nauðsynlegan undirbúning og meðferð málsins og það er örugglega ekki vegna skorts á vilja heldur vegna þess að tíminn var naumur og menn gáfu sér ekki tóm til þess að skoða þetta nægilega vel. En það er auðvitað mjög mikilvægt að erindi af þessu tagi séu mjög ítarlega og faglega undirbúin.
    Ég vil einnig þakka hv. málshefjanda fyrir að hafa flutt jafnítarlega greinargerð fyrir málinu eins og hann gerði hér. Vissulega sýnir það að sem fulltrúi fjmrh. í stjórninni hefur hann verið iðinn og fylgst vel með málum. En þó var það einn kafli í hans ræðu sem ég tel nauðsynlegt að við fáum nánari lýsingar á og það var frásögn hans af samskiptum við bankastofnanir hérlendis og síðan í Danmörku.
    Ég er alveg sammála honum um það að það skortir töluvert á það í íslenska bankakerfinu að þar sé nægilega vel að verki staðið til þess að greiða fyrir útflutningsátaki eða þróun fyrirtækja eins og nauðsynlegt er ef við eigum að geta staðist alþjóðlega samkeppni. Ég vildi þess vegna beina þeim tilmælum til hv. þm. Júlíusar Sólnes að hann geri fjmrn. sérstaka grein fyrir þessum þætti málsins svo að hægt sé að nota þá reynslu í viðræðum við íslenska bankakerfið um það hvernig hægt sé að stuðla að nauðsynlegum breytingum, sparnaði og hagræðingu í íslenska bankakerfinu til þess að gera það, þ.e. íslenska bankakerfið, samkeppnishæft við bankakerfið í nágrannalöndum okkar. Vegna þess að við náum aldrei árangri í þróun okkar útflutningsgreina með því einu að gera framleiðslufyrirtækin samkeppnishæf ef það bankakerfi sem við búum við hér er það óhagkvæmt og dýrt í rekstri að það tekur til sín verulegan hluta af kostnaðinum.