Smíði skuttogara fyrir Marokkó
Miðvikudaginn 19. október 1988

     Friðrik Sophusson:
    Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda fyrir að vekja athygli á þessu sérstaka máli sem hann hefur rætt og gert ítarlega grein fyrir en umræðan hefur farið nokkuð víðar. Tekist hefur verið á í umræðunum um íslenskan iðnað, ekki síst íslenskan skipasmíðaiðnað, og flestar ræður ágætar eða svo til allar að undantekinni þeirri síðustu, að sjálfsögðu. Hana hefur maður heyrt oft áður og er hættur að kippa sér upp við það að heyra hana og á sjálfsagt von á því að heyra hana oft aftur.
    Það er rétt, og það kom margoft fram á síðasta þingi, að það eru erfiðleikar í íslenskum skipasmíðaiðnaði, ekki síst ef til framtíðar er horft. Það kom fram í fyrirspurnum sem ég svaraði á síðasta þingi, þá sem iðnrh. Það er dálítið skondið að fyrrv. iðnrh., hv. 2. þm. Austurl. Hjörleifur Guttormsson, skuli skammast hér út í mig sem iðnrh. fyrir að ég skuli ekki hafa gætt þess að nota ,,dumping"-klásúlu tollalaga sem mér skildist helst á honum að mætti nota þegar um niðurgreiddan innflutning væri að ræða. Það mál snýr ekki að iðnrn., eins og ég býst við að hv. þm. hafi vitað hér á árum áður þótt hann hafi nú gleymt því. Um leið og hann hældi hæstv. núv. iðnrh. hefði hann þannig kannski mátt geta þess í leiðinni hver var viðskrh. í síðustu ríkisstjórn. Svona er nú komið fyrir þeim sem eru farnir að gleyma. (Gripið fram í.) Ég kem að hlut ykkar alþýðubandalagsmanna síðar í minni ræðu.
    Ég vil enn fremur taka það fram að það hafa ýmsir þm., þar á meðal hv. þm. Stefán Guðmundsson sem hér er í þingsalnum, haft áhuga á þessu máli og á grundvelli svars sem ég gaf í fyrra samdi hann þáltill. sem þá var til umræðu og þar var um að ræða skilaboð til sjútvrh., fyrst og fremst, en hann er yfirmaður þess sjóðs sem lánar til þessa hluta iðnaðarins því að það eru ekki lánasjóðir iðnaðarins sem sjá um lán til skipasmíðaiðnaðarins heldur Fiskveiðasjóður eins og flestum er kunnugt um.
    Það hefur jafnframt komið fram hve nauðsynlegt það er að tala okkar máli erlendis, ekki síst við viðskiptabandalögin í Evrópu, og benda á hve ríkisstyrkir geta verið hættulegir, ekki síst fyrir smáþjóðir eins og Íslendinga sem eiga mikið undir því að geta haldið áfram að byggja upp sinn iðnað. Þetta gerði sá sem hér stendur, fór til Brussel og vakti athygli á þessu, talaði við þann mann sem sér um iðnaðarmálin í Evrópubandalaginu. Honum var boðið hingað heim, hann kynnti sér mál hér og ég vonast til þess að það hafi a.m.k. ýtt undir skilning ráðamanna í Brussel hjá Evrópubandalaginu um það hver staða Íslands er og hvernig smáþjóð þarf að geta eflt sinn iðnað, ekki síst þann iðnað sem tengist að grundvallaratvinnuvegi íslensku þjóðarinnar.
    Ég vísa þess vegna á bug flestu því, ef ekki öllu, sem hv. síðasti ræðumaður flutti hérna úr þessum ræðustól. Ég er svo sem hættur að kippa mér upp við það og á von á því að hann muni síðar koma og halda áfram þessum úrelta söng sínum sem allir eru orðnir hundleiðir á.

    Það sem skiptir máli er að í tíð síðustu ríkisstjórnar var farin sú leið að gera faglega úttekt á þeim iðngreinum sem þá áttu í vandræðum, annars vegar ullariðnaðinum og hins vegar var tekið á skipasmíðaiðnaðinum. Í ullariðnaði voru sameinuð tvö stærstu fyrirtæki landsmanna og unnið var að því að gera tillögur sem gætu bjargað smærri fyrirtækjunum. Að því máli var unnið sleitulaust. Það var líka að mínu frumkvæði sem leitað var til Appeldore, ráðgjafarfyrirtækisins breska sem hér hafði starfað hjá skipasmíðastöð á Vestfjörðum, nánar tiltekið á Ísafirði. Ég átti fund með þessum mönnum og fulltrúum iðnaðarins, Landssambands iðnaðarmanna og Sambands dráttarbrauta og skipasmiðja, og til viðbótar fékk ég, og ég held að það hafi skipt ákaflega miklu máli varðandi skipasmíðaiðnaðinn, þá aðila sem málið snertir, alla, til að koma saman og mynda verkefnastjórn í þessu verkefni. Það var ekki aðeins iðnrn., ekki einungis lánasjóður iðnaðarins, heldur einnig Landsamband ísl. útvegsmanna, Fiskveiðasjóður og Byggðasjóður, auk þeirra sambanda sem skipasmíðaiðnaðurinn á aðild að. Þetta var gert vegna þess að hagsmunir skipasmíðaiðnaðarins eru miklu víðar en í iðnrn. og hjá lánasjóðum iðnaðarins.
    Það er einmitt af þessu starfi sem við búumst við að fá niðurstöður innan tíðar, fyrir jólin, og hæstv. iðnrh. hefur lýst því í sinni ræðu. Það er nefnilega ýmislegt hægt að gera fyrir íslenskan skipasmíðaiðnað og ég hygg að niðurstaðan verði sú að fram komi ábendingar um að skipasmiðjurnar á landinu sérhæfi sig meira og vinni meira saman. Og ég tel að jafnvel þótt ekki verði af því verkefni, sem hefur verið unnið að að undanförnu, hafi eitt tekist sem skiptir máli og það er að forstöðumenn þessara fyrirtækja hafa talað saman og eflt skilning sinn á þessum þætti málsins. Það skiptir ákaflega miklu fyrir þá sem á annað borð hafa kynnt sér málefni skipasmíðaiðnaðarins og ættu að vita. Ég minni á það jafnframt að við höfum verið útflytjendur á skipum og skipasmíðaviðgerðum. T.d. eru nýleg dæmi um það að Slippstöðin á Akureyri flutti út viðgerðarverkefni, fyrir örfáum árum síðan.
    Það er ákaflega mikilvægt, virðulegur forseti, að okkur takist nú og á næstu árum að undirbúa íslenskan iðnað, ekki einungis skipasmíðaiðnað heldur
annan iðnað einnig, fyrir 1992, undir þá samkeppni sem þá verður þegar innri markaðurinn í Evrópu tekur til starfa. Með honum kemur aukin samkeppni, lækkandi verð en um leið fleiri tækifæri fyrir okkur. Ég tek heils hugar undir það sem hefur komið fram í viðtölum við hæstv. núv. iðnrh. að þetta er eitt meginmálið sem þarf að vinna að fyrir íslenskan iðnað. Það þarf enga gæslumenn fyrir iðnaðinn eins og hv. síðasti ræðumaður og hans nótar eru að tala um. Það þarf eðlileg starfsskilyrði og að því ætla ég að koma nú. Í fyrsta lagi þarf að vera skilningur hjá stjórnvöldum og útgerðarmönnum, sem láta byggja skip, á því að hér á landi verður að vera til skipasmíðaiðnaður. Erfiðleikar iðnaðarins hér á landi, ekki síst skipasmíðaiðnaðarins, eru þeir að við búum við miklar hagsveiflur. Þetta er hagsveifluþjóðfélag og

þessar sveiflur eiga rætur í sjávarútveginum. Þegar vel gengur í sjávarútveginum --- og mig langar til að biðja hv. þm. Hjörleif Guttormsson að vera hér inni og hlusta á. Hann flytur hér ræður og beinir spjótum sínum til fyrrv. ríkisstjórnar. Svo þegar farið er að tala við hann ætlar hann að rjúka á dyr. Hann heimtar það að hæstv. ráðherra sé viðstaddur, en síðan beinir hann í sinni ræðu spjótum sínum til mín sem fyrrv. ráðherra og hefur svo ekki kjark til að standa hér inni þegar ég flyt mína ræðu. Blessuð sé nærvera hans. ( Gripið fram í: Fjarvera.) Nærvera þegar hún var, fjarvera þegar --- maður segir það líka um menn sem yfirgefa annað en þennan fundarsal. Sýnir það best kjarkleysi þessara manna að þora ekki einu sinni að hlusta á það sem skiptir máli og ég hélt líka að hæstv. ráðherrar úr Alþb. mundu vera hér inni. Ég sé að eini þm. þeirra sem hér er viðstaddur er Margrét Frímannsdóttir og ég bið hana að taka þessi skilaboð til þeirra þm. og ráðherra Alþb. (Gripið fram í.) Já, og hæstv. forseti sameinaðs þings. Það skiptir nefnilega ákaflega miklu máli að forustumenn --- og ég ætla kannski að biðja um fjmrh., hann er einn af þeim sem töluðu hér áðan, að koma í salinn. Það getur vel verið að hann hafi kjarkinn.
    Jæja, hér kemur hæstv. fyrrv. iðnrh. Þá get ég haldið áfram máli mínu, virðulegur forseti, en vænti þess þó að fá að sjá hæstv. fjmrh. innan tíðar. Ég var að ræða sveiflurnar í íslensku þjóðfélagi. Það er þar sem vandinn liggur. Þegar vel gengur í sjávarútvegi, ekki síst í útgerð, byrja menn að ákveða sínar fjárfestingar. Það þarf ekki að þýða það að illa gangi hjá íslenskum skipasmiðjum þótt hlutfall verkefna hjá íslenskum skipasmiðjum sé lágt miðað við heildarverkefnin á þessu sviði, einfaldlega vegna þess að nefnarinn, þ.e. allar framkvæmdirnar, hefur vaxið svo gífurlega. Það var þetta sem gerðist á þeim árum sem hv. síðasti ræðumaður var að tala um. Þar liggur vandinn. Lausnin felst í að jafna þannig rekstrarskilyrði útgerðarinnar hér á landi að ekki þurfi að byggja skip á Íslandi í jafnstórum stökkum og gert hefur verið. Þetta þarf hv. síðasti ræðumaður að skilja. Af hverju þarf hann sérstaklega að skilja þetta umfram aðra menn? Það er vegna þess að eitt það mikilvægasta sem þarf að gerast í þessum málum er að gengið sé rétt skráð á hverjum tíma og að komið sé í veg fyrir sveiflur en ekki farin sú leið að auka millifærslur og falsa gengið eins og hæstv. núv. ríkisstjórn stendur að. ( HG: Hvað gerðist á síðustu árum í gengismálum?) Ég þarf ekkert að rifja það upp fyrir hv. þm. Það sem ég er að reyna að segja honum og vonandi kemst inn í hausinn á honum, ef það er kannski sagt nægilega oft, er það að iðnaðurinn bað ekki um millifærslur þegar vel gekk í sjávarútveginum og illa gekk í iðnaðinum. Það gerist ekki þannig. En nú, þegar illa gengur í sjávarútveginum, hika menn við að leiðrétta gengið en dæla inn fjármagni í millifærslur. Þetta getur þýtt, hv. þm., dauðadóm yfir íslenskum iðnaði og það verða menn að skilja. Svo kemur hæstv. fjmrh. á fundi hjá Bílgreinasambandinu og segir, teinréttur og fínn með alkunnu lítillæti: Tími

ríkisstyrkja og ríkisábyrgða er liðinn á Íslandi. --- Þetta er maðurinn sem á sæti í ríkisstjórn sem dælir ríkisstyrkjum út í atvinnulífið og það til grundvallaratvinnugreinarinnar og það er einmitt þetta sem eyðileggur íslenskan iðnað.
    Það sem við getum gert í sameiningu, og ég óska eftir því við hæstv. fjmrh., við hv. þm. Hjörleif Guttormsson, við hæstv. iðnrh., er að menn skoði nú vel sinn hug áður en þeir afgreiða lögin um þann sjóð sem til hefur verið stofnað og er kallaður Atvinnutryggingarsjóður af því að menn vildu ekki nota nafn ákveðins þm. við stofnun sjóðsins, Atvinnutryggingarsjóður skal hann heita, að reglum þessa sjóðs verði breytt. Það sem skiptir máli þar er úr því sem komið er að sjóðurinn geti lánað til samkeppnisiðnaðarins, þar á meðal til skipasmiðja, og að þau lán verði fyrst og fremst lánuð til þess að styrkja eiginfjárstöðu þessara fyrirtækja. Þetta veit ég að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson skilur, þannig að mér er alveg sama þótt hann hafi nú aftur hlaupið á dyr en mér þykir vænt um að hæstv. fjmrh. situr og hlustar á þetta því þetta skiptir afar miklu máli ef menn meina það sem þeir eru að segja um íslenskan iðnað.
    Að lokum, virðulegur forseti, langar mig til þess að biðja hæstv. iðnrh. um eitt: Þegar sú skýrsla liggur fyrir sem unnið er að, en það verður væntanlega í lok þessa árs, óska ég eftir því, eftir að verkefnastjórnin hefur
lokið sér af og fyrir liggur stefnumótun frá iðnrn. varðandi þetta mál, að skýrslan verði lögð fram á hinu háa Alþingi. Í dag hefur nefnilega verið rætt um mál sem skipta afar miklu máli fyrir okkur landsmenn og það er kominn tími til þess að við ræðum þessi mál dálítið faglega og á faglegum grunni, þeim grunni sem síðasta ríkisstjórn lagði með þeirri vinnu sem þá var farið af stað með m.a. af Appeldore, þessu enska ráðgjafarfyrirtæki. Á meðan við höfum þá hæstv. ríkisstjórn sem hér situr, virðulegur forseti, verðum við að mælast til þess, þótt við getum ekki búist við miklu af henni, að hún hagi gerðum sínum þannig að þeir sjóðir sem eiga að nýtast atvinnulífinu fái einnig að renna til þeirra atvinnugreina sem standa í harðri samkeppni, jafnvel þótt þau fyrirtæki, sem innan þeirra atvinnugreina eru, stundi ekki útflutning. Það er nefnilega þannig að stundum verða fyrirtæki sem starfa á heimamarkaði í dag útflutningsfyrirtæki á morgun.