Smíði skuttogara fyrir Marokkó
Miðvikudaginn 19. október 1988

     Júlíus Sólnes:
    Virðulegi forseti. Örfá orð að lokum. Ég ætla ekki að lengja umræðuna meira en orðnar eru. Ég vil þakka öllum sem hafa tekið til máls undir þessum dagskrárlið og þakka fyrir málefnalegar umræður. Ég er að vísu ekki sammála mörgu því sem kom hér fram, m.a. ekki í einu og öllu sammála hæstv. iðnrh.
    Það er rétt og ég get alveg fallist á það að það voru hugsanlega mistök að fara fram á ríkisstyrk til þessa verkefnis. Það er okkur ógeðfellt að þurfa að styrkja iðnað með beinum ríkisframlögum til þess að gera hann samkeppnisfæran. Á það sjónarmið get ég fallist. En lái okkur hver sem vill að við skyldum fara fram á þennan ríkisstyrk í ljósi stjórnarmyndunarviðræðna og þess sáttmála sem þá var myndaður um stjórnarsamstarf sem byggir á því að dæla gífurlegum fjármunum út í útflutningsatvinnugreinarnar meira eða minna í formi styrkja.
    Að lokum vil ég aðeins segja þetta að þó svo að mönnum hafi fundist þessi aðferð ógeðfelld og ekki viljað samþykkja hana, þá var enn þá og er hugsanlega enn þá hægt að ná þessu verkefni á þeim upphaflega grundvelli sem um var talað, þ.e. að vinna þetta í samstarfi við erlendar skipasmíðastöðvar til þess að ná niður kostnaðinum vegna innlendrar skipasmíði þannig að þetta sé íslenskt hugvit til útflutnings undir íslenskri stjórn. Það hjálpar ekkert að afhenda þetta verkefni erlendum skipasmíðastöðvum jafnvel þó svo við myndum leggja til teikningar og tæknilegan undirbúning. Þannig er það ekki lengur íslenskt verkefni.
    Ég vil því skora á ráðamenn að líta með okkur á þetta verkefni áfram og finna leiðir til þess að leysa þau vandamál sem hugsanlega koma upp ef ábyrgðir eru taldar ónógar eða áhætta of mikil. Er þá ekki nær að skoða það mál í sameiningu og sjá hvort er hægt að finna lausn á því að gera þær minna áhættusamar og finna ábyrgðir sem duga? Það skulu vera mín síðustu orð að ég skora á ráðamenn að hjálpa okkur við að leysa þetta verkefni fremur en að þurrka það út af borðinu eins og hér er verið að gera tilraun til.