Efnahagsaðgerðir
Þriðjudaginn 25. október 1988

     Guðmundur H. Garðarsson:
    Virðulegi forseti. Í umræðum hér fyrr um frv. til laga um efnahagsaðgerðir sagði hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir eitthvað á þá leið að hún teldi að það sem fælist í frv. væri á mörkum þess að vera lögbrot. Hún kom inn á mörg atriði sem ég get tekið undir og varpaði m.a. fram þessari spurningu í ræðu sinni: Hvað hefur Framsfl. verið að gera og hvað hafa stjórnarflokkarnir yfirleitt verið að gera í sambandi við samningsréttinn? Hv. þm. undirstrikaði það atriði sem er rétt að samningsrétturinn er grundvallarmannréttindaatriði fyrir verkalýðshreyfinguna á Íslandi.
    Það hafði komið fram í umræðum að það væri álit sumra hv. þm. að kvennalistakonur væru ábyrgðarlausar og mótmælti hv. þm. því og ég get tekið undir það. Einnig get ég tekið undir það og sagt að kvennalistakonur eru ekki einar um að vilja virða þau sjálfsögðu mannréttindi sem eru samningsrétturinn. Það er grundvallaratriði.
    Í ræðu hv. þm. kom einnig fram að mörg félög, verkalýðsfélög, hafa mótmælt þessu frv. til laga um efnahagsaðgerðir eða bráðabirgðalögunum og taldi þm. m.a. upp Blaðamannafélagið, Póstmannafélagið, Landssamband ísl. verslunarmanna, formannafund ASÍ, stjórn Iðju, Framtíðina o.fl. Ég vil taka það fram að Sjálfstfl. hefur í gegnum tíðina leitast við að virða þennan rétt. Þó það hafi komið fyrir að í hans valdatíð hafi verið gripið inn í kjarasamninga hefur Sjálfstfl. ætíð virt samningsréttinn. Þessi lög ganga því lengra en tíðkast hefur yfirleitt í sambandi við laun og kjör verkalýðshreyfingarinnar. Hér er hreinlega um það að ræða að samningsrétturinn er tekinn af verkalýðshreyfingunni með þeim hætti sem bráðabirgðalögin gera ráð fyrir.
    Í ræðu hv. þm. Halldórs Blöndals kom það fram m.a. að hann væri þeirrar skoðunar að þessi bráðabirgðalög stæðust ekki stjórnarfarslega og einnig kom það fram í ræðu hv. þm. Guðrúnar Agnarsdóttur. Var það álit þessara tveggja hv. þm. að með bráðabirgðalögunum hefðu grundvallarreglur lýðræðisins verið brotnar af hálfu núv. ríkisstjórnar þegar hún var mynduð. Það vill svo til að síðan umræðan fór fram hér í hv. þingi fyrir tæpri viku hefur virtur lögmaður, bæjarfógetinn á Seyðisfirði og sýslumaður Norður-Múlasýslu, Sigurður Helgason, ritað mjög vandaða grein um einmitt þetta atriði, þ.e. hvort bráðabirgðalögin brjóti ekki í bága við svokallaða jafnræðisreglu. Ég vil, með leyfi forseta, lesa hér upp úr grein Sigurðar Helgasonar bæjarfógeta, sem er mjög virtur lögfræðingur, til þess að undirstrika það atriði því að það er sett fram með mjög skýrum og greinargóðum hætti í umræddri grein sem birtist í Morgunblaðinu 20. okt. Sigurður Helgason bæjarfógeti á Seyðisfirði segir m.a.:
    ,,Ein af grundvallarreglum í stjórnarskrám lýðræðisríkja byggist á því að stjórnskipunin sé lýðræðisleg. Slíka meginreglu má leiða af einstökum ákvæðum stjórnarskrár okkar enda þótt enga almenna yfirlýsingu um það sé að finna í henni.

    Á sama hátt er eitt mikilvægasta atriði mannréttinda í stjórnarskrám að allir séu jafnir fyrir lögum, enda þótt ekkert beint ákvæði sé um það heldur í stjórnarskrá okkar. Það er þó ljóst af langri venju og hefð að öll ákvæði í lögum sem fela í sér ákveðin sérréttindi vissum hluta íbúa landsins á kostnað annarra eru marklaus, þar sem það bryti gegn grundvallarreglum lýðræðisins.
    Við athugun á bráðabirgðalögum um efnahagsmál kemur í ljós að þar er að finna ákvæði sem telst útilokað að viðhafa í lýðræðisríki og fær því ekki staðist.
    Skv. 4. gr. nefndra bráðabirgðalaga skal forsrh. Steingrímur Hermannsson velja formann og valinn var Gunnar Hilmarsson. Sjútvrh. Halldór Ásgrímsson valdi Kristján Skarphéðinsson. Fjmrh. Ólafur Ragnar Grímsson valdi Jóhann Antonsson. Viðskrh., sem einnig er iðnrh., Jón Sigurðsson, valdi þá Pétur Sigurðsson og Björn Björnsson. Sömu aðilar velja varamenn.``
    Síðan segir Sigurður Helgason, með leyfi forseta: ,,Hér er ekki verið að setja út á nefnda stjórnarmenn persónulega, enda eflaust gagnmerkir menn. Það sem er fráleitt og andstætt því að stjórnskipun geti talist lýðræðisleg er að allir stjórnarmenn eru yfirlýstir stuðningsmenn þriggja stjórnmálaflokka með tæp 50% kjósenda á bak við sig. Stjórnarandstaðan fær engan mann kosinn í stjórn enda þótt hún hafi yfir 50% fylgi hjá þjóðinni. Þetta sjá allir að fær ekki staðist og verður að fella í meðförum Alþingis. Stofnfé sjóðsins skal vera 1000 millj. sem er hluti framlags til Atvinnuleysistryggingasjóðs 600 millj. kr., sem var þó samningsbundið framlag og jafnframt skal ríkissjóður leggja fram 400 millj. kr. sem afla skal með tekjuskattsauka, þ.e. væntanlega lögum sem eru ekki enn samþykkt. Á næsta ári er heimil lántaka hjá Seðlabanka Íslands 1000 millj. kr. Síðan er stjórninni heimiluð skuldbreyting allt að 5000 millj. af lausaskuldum útflutningsfyrirtækja og sjóðurinn ábyrgist skuldabréfin með eignum sínum. Það verður ekki sagt að öll sagan sé sögð með þessu því einhverjir verða skyldaðir til þess að kaupa bréfin, væntanlega með ,,handafli``, sem er vinsælt orð hjá stjórnmálamönnum í dag.``
    Síðan segir í umræddri grein, með leyfi forseta: ,,Nú nýlega hóf nefnd stjórn störf eða um svipað leyti og Alþingi kom saman. Formaður, Gunnar Hilmarsson, sagði í blaðaviðtali við Morgunblaðið að sjóðurinn hefði aðstöðu í húsakynnum Byggðastofnunar og síðan segir hann: ,,Ég held að regla númer eitt sé að fyrirtæki þurfi að vera rekstrarhæft eftir að hafa fengið fyrirgreiðslu úr sjóðnum. Hér er ekki lítið vald sem stjórnarmenn hafa, enda þótt gert sé ráð fyrir svokallaðri samstarfsnefnd frá bönkum og stofnunum. Það er alkunna að útflutningsfyrirtæki eru ýmist í einkaeign eða rekin á grundvelli samvinnureksturs. Óneitanlega nýtur sá rekstur sem rekinn er á samvinnugrundvelli meiri hylli hjá núveranadi valdhöfum, sem oft hefur komið fram í málflutningi þeirra. Standa þá þessar

rekstrareiningar jafnfætis gagnvart almennri fyrirgreiðslu? Hér verða svörin misjöfn, en samsetning stjórnarinnar fær ekki staðist og kallar á tortryggni og gömul reynsla segir okkur að hún sé ekki ástæðulaus. Grundvallarreglan um að allir séu jafnir fyrir lögum er miðuð við framangreindar aðstæður í hættu og ekkert í nefndum lögum gefur lántakendum rétt til að skjóta afgreiðslum til æðra stjórnvalds, ef þeir telja sig órétti beitta. Að leita réttar gegnum dómstóla er of seinvirkt.``
    Alþingi fer með æðstu stjórn fjármála, sbr. 41. gr. stjórnarskrárinnar: ,,Ekkert gjald má greiða af hendi nema heimild sé til þess í fjárlögum eða fjáraukalögum.`` Nefnd bráðabirgðalög ganga gegn þessu og öðrum meginreglum, sem fela Alþingi æðstu stjórn fjármála landsins. Alþingi velur stjórnendur helstu lánastofnana og á þann hátt á að vera öruggt að stjórnskipunin sé lýðræðisleg. Um það er ekki deilt að grípa þurfi til stórfelldra úrbóta fyrir atvinnulífið í landinu og þá sérstaklega til útflutningsgreina, en eðlilegast virðist að sniðganga ekki Alþingi í þeirri ákvörðunartöku, enda ber alþingismönnum að vera á verði gagnvart því að völd þess séu ekki skert. Bráðabirgðalög 12 dögum áður en reglulegt Alþingi skal koma saman fá ekki staðist nema á mjög takmörkuðu sviði eins og t.d. ákvörðunin um verðlags- og kjaramál, svo og hugsanlegar vaxtaákvarðanir. Öll ákvæði nefndra laga um stofnun nefnds sjóðs voru ekki svo aðkallandi að réttlætti setningu bráðabirgðalaga þar að lútandi. Fyrst eftir að Alþingi kom saman var raunhæft að tala um að sjóðurinn tæki til starfa. Hefði annað legið til grundvallar en löngun ákveðinna ráðherra til þess að hafa einir með höndum yfirstjórn sjóðsins mætti vænta þess að vinnubrögð hefðu orðið önnur. Að sjálfsögðu hefði verið eðlilegra að fela Byggðastofnun úthlutun á nefndum fjármunum, enda þar þjálfað starfslið til þeirra starfa.``
    Þá segir að lokum í fyrrnefndri grein: ,,Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um fyrstu aðgerðir segir orðrétt: ,,Þá er fjármálaráðherra heimilt að setja almennar reglur um uppgjör vangoldinna tekju- og eignarskatta, sem lagðir voru á áður en staðgreiðslukerfið kom til framkvæmda.``
    Nú hefur fjmrh. lýst því yfir að hann ætli að kanna sjálfur eða hans ráðuneyti einstök tilfelli, þar sem margir sökudólgar séu fyrir hendi. Hér sér enn á kollinn á ofstjórn og samfara henni er hætta á því að þegnarnir séu ekki jafnir fyrir lögum. Að sjálfsögðu er hér eðlilegast að fjmrh. setji almennar reglur og síðan verði innheimtumönnum ríkissjóðs falið að framkvæma þær.
    Af framanrituðu er ljóst að hér er verið að setja á stofn ríkisstjórn sem hefur það m.a. að markmiði að úthluta þegnunum gæðum að eigin geðþótta og gera þá á þann hátt sér háða. En slíkt er auðvitað gagnstætt jafnræðishugsjón lýðræðisins.``
    Ég taldi rétt, virðulegi forseti, að kynna hv. þm. þessa grein því í henni felst álit lögfræðings sem er óháður stjórnmálum, sem er óháður hæstv. ríkisstjórn. Þetta er einn af virtari lögmönnum þessa lands og

hefur hann aldrei verið vændur um að draga hlut eins flokks fram fyrir hlut annars ef því er að skipta þannig að ég held að sumir hv. alþm. og sérstaklega hæstv. ráðherrar hafi gott af því að fólkið skuli leyfa sér að ávarpa þá og vefengja þeirra gjörðir. Það getur vel verið að hv. þm. séu sumir upp yfir það hafnir að þjóðin tali til þeirra og þá er það fróðlegt ef það kæmi fram hér í þessum umræðum að svo sé.
    Í sambandi við þessi bráðabirgðalög er hægt að koma víða við. Ég ætla ekki að draga það í efa að nauðsynlegt hafi verið að hv. Alþingi gripi til aðgerða í efnahagsmálum. Ytri aðstæður hafa verið óhagstæðar íslensku þjóðarbúi. Það hefur verið verðfall á helstu útflutningsafurðum. Það var mikið og óvænt og innlendur framleiðslukostnaður hefur ekki lækkað að sama skapi á sama tíma. Hallinn í rekstri útflutningsfyrirtækja hefur þar af leiðandi verið mikill af þessum ástæðum.
    Þá hefur það einnig haft sín áhrif að ekki hefur tekist sem skyldi að ná niður verðbólgunni sem hefur haft það í för með sér að fjármagnskostnaður hefur verið verulegur þar sem allir leggja nú áherslu á að höfuðstóllinn rýrni ekki hvað sem líður verðbólgunni. Ég mun þó víkja nánar að því síðar í minni ræðu með fsp. til ráðherra um það hvernig hann hyggst framkvæma lánveitingar
samkvæmt útgefinni reglugerð sem hefur að vísu ekki verið kynnt hér á hv. Alþingi, en menn hafa þó heyrt um.
    Hugsanlegt er að aðalvandinn sem við er að glíma í dag stafi af því að á tímabilinu 1980--1983 hafi verið fjárfest of mikið með óhagkvæmum hætti. Það var í stjórnartíð hæstv. forsrh. í dag sem þá var sjútvrh., Steingríms Hermannssonar, en hann var áhrifamikill maður í þeirri ríkisstjórn sem sat hér við völd 1980--1983 ásamt hæstv. menntmrh. Þá fjölgaði togurum stórlega eins og kunnugt er og þar er líklegast um þann ofvöxt að ræða sem hefur valdið okkur hvað mestum vanda í sambandi við sjávarútveg og fiskiðnað og einnig í sambandi við þau miklu vandamál sem hafa verið að hrannast upp á síðustu árum í sambandi við útflutningsframleiðsluna. Á þessu tímabili, árunum 1980--1983, fór verðbólgan upp úr öllu valdi og var komin í 120--130% og voru menn hættir að geta mælt þann verðbólguhraða.
    Árið 1983 var mynduð ríkisstjórn sem reyndi að draga úr þessum neikvæðu áhrifum fyrri ríkisstjórnar. Sú ríkisstjórn gerði margt vel. Henni tókst að ná verðbólgunni niður og það lofaði góðu, en því miður tókst ekki að halda því verki áfram sem skyldi eftir myndun stjórnarinnar 1987. Raunverulega má segja að ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar hafi verið að glíma við hluta af því vandamáli sem við var að glíma eftir stjórnartíð þeirrar ríkisstjórnar sem sat frá 1980 til 1983.
    Svo að ég víki nokkuð að umræddum bráðabirgðalögum gera þau ráð fyrir því, eins og fram kom fyrr í minni ræðu, að það eigi að millifæra hér umtalsverðar upphæðir. Með því er raunverulega ekki verið að tryggja rekstrargrundvöll atvinnuveganna,

heldur er verið að færa til fé til þess, eins og stjórnarherrarnir segja, að leiðrétta rekstrargrundvöll ákveðinna fyrirtækja án þess að það sé tilgreint um hvaða fyrirtæki sé að ræða. Þessi tilfærsla er raunverulega enn óútfærð og langt frá því að rekstrargrundvöllurinn verði tryggður. Þetta felur einnig í sér mjög mikla mismunun gagnvart öðrum atvinnugreinum. Ég nefni sem dæmi iðnaðinn. Iðnaðurinn mun fara mjög illa út úr þeirri leið sem valin hefur verið til þess að leysa vandamál útflutningsframleiðslunnar. Þá nefni ég einnig að ekki mun staða ferðamálaiðnaðar batna neitt með þessum millifærsluaðferðum núv. ríkisstjórnar nema síður sé.
    Í stuttu máli sagt er þessi leið, sem valin hefur verið, með þeim hætti að í henni felst raunverulega að það er verið að velta vandamálinu fram í framtíðina án þess að taka á því strax í dag.
    Ég vil leyfa mér að varpa einni spurningu til hæstv. forsrh. varðandi þau bráðabirgðalög sem hér eru til umræðu. Það er í sambandi við 3. gr. Og spurningin er: Hvernig hyggst ríkisstjórnin láta framkvæma þessa lagagrein? Það væri t.d. fróðlegt að fá að vita á grundvelli hvaða upplýsinga, hvaða gagna Atvinnutryggingarsjóður skuli fá heimild til að hafa milligöngu um skuldbreytingu fyrir allt að 5 þús. millj. kr. Þá væri einnig fróðlegt að fá að vita með hvaða hætti menn komust að þeirri niðurstöðu að umræddir tveir milljarðar skuli vera til ráðstöfunar að öðru leyti.
    Getur þingheimur fengið að sjá þessi gögn áður en hann greiðir atkvæði um frv. sem hér er til umræðu? Er hægt að fá að sjá meginforsendur jafnveigamikilla ráðstafana hér á Alþingi Íslendinga?
    Hæstv. forsrh. las upp úr reglugerð um Atvinnutryggingarsjóð. Ég hef því miður ekki séð þessa reglugerð. En hvernig á að mæla þarfir fyrirtækja t.d. í sambandi við lán og skuldaskil? Eiga allir að sitja við sama borð? Með hvaða hætti á að tryggja það? Eiga almennar reglur að gilda eða einhverjar sérstakar ótilgreindar reglur? Hvers vegna var Byggðasjóði ekki falið þetta verkefni? Og svo kemur náttúrlega sú spurning sem er hvað þýðingarmest: Er hægt að nota vandamál útflutningsatvinnuveganna eins og spilapeninga á borði valdabaráttu? Og þá kemur sú spurning sem fólk spyr: Á hvaða stigi eru stjórnmál á Íslandi í dag? Það leiðir hugann að því sem snýr að þeim þætti er lýtur að verkalýðshreyfingunni.
    Ýmsir þingmenn hafa í gegnum tíðina haft orð á því að Sjálfstfl. væri sá flokkur sem verkalýðshreyfingin skyldi helst vara sig á. Sem betur fer hefur íslenska þjóðin ekki hlustað á það. Þess vegna er Sjálfstfl. stærsti flokkur þjóðarinnar og á miklu fylgi að fagna meðal launafólks.
    Ýmsir forustumenn Alþb., sérstaklega þeir sem eru í áróðursdeildinni, hafa í áraraðir úthrópað Sjálfstfl. sem varg í véum í málefnum verkalýðshreyfingarinnar. En hvað eru þeir sjálfir nú? Ég hafði undirbúið mig undir það að gefa mína eigin skýringu á því hvað það væri, en það ómak var af mér tekið í Þjóðviljanum

laugardaginn 22. okt. af alþýðubandalagsmanni, miklum baráttumanni, Ragnari Stefánssyni jarðskjálftafræðingi. ( SkA: Frænda Brynjólfs Bjarnasonar.) Ekki er það lakara því Brynjólfur Bjarnason, þó ég hafi ekki verið honum sammála, var mjög greindur maður og örugglega mjög gegn maður fyrir sína hreyfingu þó ég væri honum mjög ósammála í flestu sem hann túlkaði og vildi færa íslensku þjóðinni af sínum hugsjónum. --- En hvað sem því líður
er Ragnar Stefánsson virtur maður á sínu sviði. Hann er talinn vandaður. Þó að hann hafi stundum deilt hart á okkur sjálfstæðismenn og haldið fast á sínum málstað í sambandi við baráttuna gegn því að hér væru varnir í landinu held ég að enginn alþýðubandalagsmaður dirfist að neita því að þar sé maður sem þeir hljóta að taka mjög mikið tillit til.
    Ég vil taka það fram að ég virði Ragnar Stefánsson sem vísindamann á hans sviði, en ég er alls ekki endilega sammála honum í hans pólitísku skoðunum. En þar sem þarna er nú um að ræða flokksmann í Alþb., einn af forustumönnunum, held ég að sé rétt að hv. þm. fái nú og þjóðin einnig að heyra betur hvaða vitnisburð hæstv. ráðherrar Alþb. fá frá þessum duglega og heiðvirða baráttumanni Alþb. Ég get því sparað mér það sem sjálfstæðismaður að tíunda mína skoðun. Með leyfi forseta ætla ég að lesa eftirfarandi úr grein Ragnars Stefánssonar. (Gripið fram í.) Hv. þm. Skúli Alexandersson þarf ekki að hafa áhyggjur því hann hefur virðingarsess í mínum huga. Hann er einn af þeim sem koma úr atvinnulífinu, útgerðinni, þó að hann sé í Alþb. þannig að ég þarf ekki að eyða mínum tíma í að ræða við hann. En ég vona bara að samviska hans ráði atkvæðinu þegar að því kemur að greiða atkvæði um þau bráðabirgðalög sem hér eru til umræðu með viðlíka hætti og fram kemur í grein Ragnars Stefánssonar. ( KP: Tekur hv. þm. undir þessa grein?) Ég sé að greinin kemur mjög við suma stjórnarsinna. Kannski eru þeir ekki stjórnarsinnar þegar á á að herða. Kannski leiðir þetta til þess, þegar kemur til atkvæða um bráðabirgðalögin, að þau geti jafnvel fallið hér í Ed. Það væri gott því að ég harma það út af fyrir sig ef svo illa er komið fyrir vinstri mönnum, þessum róttæku baráttumönnum verkalýðshreyfingarinnar, að þeir ætli að fara að greiða atkvæði með þessum bráðabirgðalögum með þeim hætti sem þau liggja hér fyrir. Ég skil vel að hv. þm. Karvel Pálmason sé með frammíköll á þessu stigi. En honum á eftir að líða enn verr á eftir, síðar undir minni ræðu, ( KP: Nei, nei, nei, nei.) þar sem hann greinilega vill að ég beini athygli minni að honum sérstaklega. Það skal þá gert. Þó hafði ég ætlað að hlífa hv. þm. við því. ( KP: Það er ekki beðið um það.)
    Ragnar Stefánsson, með leyfi forseta, nefnir greinina sína ,,Að komast í ríkisstjórn hvað það kostar sem.`` Það er ákveðin tilgerð í þessari fyrirsögn, en hvað sem því líður: að komast í ríkisstjórn hvað sem það kostar er það sem maðurinn á við. Síðan segir Ragnar Stefánsson, með leyfi forseta:

    ,,Það vakna margar spurningar nú þegar Alþb. er komið í ríkisstjórn, ekki síst hjá okkur ,,Vinstri sósíalistum``, sem höfum sumir hverjir talið vonarglætu í þeim flokki. Þess vegna starfa nokkur okkar í Alþb.
    Húllumhæið kringum stjórnarmyndunina er enn í fullum gangi. Þeir voru dáldið bráðir, piltarnir okkar, að komast í ráðherraembættin.``
    Síðan víkur hann nokkrum orðum að Guðrúnu Helgadóttur og mér finnst alveg óþarfi að koma með það inn í þessa umræðu, enda því ekki skylt sem máli skiptir, en síðan segir í grein Ragnars, með leyfi forseta:
    ,,Annars finnst mér þessi gassagangur að verða ráðherra lítt sæmandi forustumönnum í verkalýðsflokki sem ég hélt að væri meira umhugað um að efla stöðu og baráttu verkalýðsstéttarinnar en að koma sjálfum sér á toppinn.`` Þetta er hans mat.
    Síðar segir í greininni, með leyfi forseta: ,,Fyrir mann eins og mig, [þ.e. Ragnar Stefánsson] sem lengi hefur verið í hringiðu pólitískrar umræðu hér á landi, kemur mest á óvart hversu auðveldlega gekk að troða Alþb. inn í þessa stjórn sem hefur kjararán og afnám samningsréttar í stjórnarsáttmála sínum. Ég skil alveg löngun gleiðgosa og valdastreðara.`` --- Hverjir skyldu það nú vera? Ég flokka hæstv. ráðherra Svavar Gestsson ekki undir það og ekki heldur undir valdastreðara. Ég flokka það frekar undir slys að hann skuli vera í ríkisstjórninni. ( KP: En hina?) --- ,,Ég skil alveg löngun gleiðgosa og valdastreðara að komast í áberandi stöður. Það sem mér finnst miklu dapurlegra er að nú er svo komið að fjölda vinstri sinnaðs alþýðufólks finnst þetta, að koma flokknum sínum í ríkisstjórn, vera það eina sem skiptir máli. Það er eins og það hafi misst trú á sjálfu sér og öllum öðrum leiðum og veitir gleiðgosunum því ekkert aðhald lengur.``
    Þetta er þess eðlis að það er nauðsynlegt að hv. þm. heyri skoðun þeirra virtu alþýðubandalagsmanna og máttarstólpanna í þessari stjórn á því sem þeir eru að gera. ,,En þeir stjórnast ekki af neinni fórnfýsi í þessu tilviki [þ.e. að fara í ríkisstjórn]. Þeir stjórnast fyrst og fremst af pólitísku óþoli. Þetta óþol á sér margar rætur. Ein rótin er óseðjandi löngun í það að fá að tylla sér á hefðartindinn, önnur að fá kerfisbitlinga og aðstöðu fyrir sig og starfsemi sína og sú þriðja trúin á að menn geti komið einhverju til leiðar af hugsjónum sínum með þessum hætti, þó svo að það sé á mjög afmörkuðu sviði. Þetta fyrra tvennt er bara venjuleg mannleg eigingirni sem erfitt er að gera við. Hið síðasta, að fara í ríkisstjórn til þess að koma í gegn einhverju afmörkuðu framfaramáli, byggir oft á misskilningi.``
    Þetta er fróðleg skýring á sálrænu ástandi þeirra hv. þm. Alþb. sem hafa
tekið sæti í ríkisstjórn og varaþingmanns auðvitað, því að hæstv. fjmrh. er varaþingmaður.
    En síðan kemur það atriði sem ég skil vel að Ragnari sárni mikið. Hann segir, með leyfi forseta, um það sem lýtur að varnarmálunum: ,,Jú, seta í ríkisstjórn sem framfylgdi hersetunni gerði menn

meðábyrga. Þetta hjálpaði til við að skapa þá ímynd að það væri eitthvað óafturkallanlegt og eilíft að herinn verði hér, þegar baráttumennirnir gegn honum væru farnir að stjórna með honum, svo að segja.`` Þetta er dapurlegt fyrir jafnmikinn baráttumann og Ragnar Stefánsson.
    Um þann þátt Alþb. sem lýtur að verkalýðshreyfingunni segir Ragnar Stefánsson, með leyfi forseta, m.a. á þessa leið: ,,Þegar Alþb. var í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsens, þá varð það þátttakandi í að skerða samninga verkalýðsfélaga.``
    Enn fremur segir hann um verkalýðsþáttinn og þeirra hlut, alþýðubandalagsmanna, með leyfi forseta, ég vitna í grein Ragnars: ,,Við skömmum verkalýðsforustuna oft fyrir undanlátssemi og baráttudeyfð, og er ekki vanþörf á. Við gleymum hinu oft að það voru hinir pólitísku foringjar sem urðu til að gera verkalýðshreyfinguna eins máttlausa og raun ber vitni. Þeir nýttu æ ofan í æ tengsl sín og ítök í verkalýðshreyfingunni til að virkja hana fyrir eigin vagn. Það er hægt að benda á mörg dæmi um að forustumenn Alþb. ætluðust til þess að verkalýðshreyfingin héldi uppi harðri baráttu þegar þeir voru ekki í stjórn, en átti svo að halda að sér höndum þegar hún var búin að troða þeim inn í Stjórnarráðið. Þessir pólitísku foringjar undu hreyfinguna og skældu oft, eins og það var orðað, í þágu atvinnuvega hinna dreifðu byggða, þangað til ekki var meiri bógur í henni en raun ber vitni. Það er því hin pólitíska forusta og Alþb. nú í seinni tíð sem mestan þátt á í því hve verkalýðshreyfingin er veik og frumkvæðislaus.``
    Þetta er einhver harðasti dómur sem ég hef heyrt um afstöðu flokka eða flokks og gerðir gagnvart verkalýðshreyfingunni á Íslandi. Og ég segi fyrir mitt leyti: Guð hjálpi forseta Alþýðusambands Íslands, Ásmundi Stefánssyni, að vera í þvílíkum félagsskap sem hagar sér með þeim hætti gagnvart forustumönnum í verkalýðshreyfingunni innan síns flokks. Ég get sagt fyrir mitt leyti að ég var á sínum tíma í forustu verkalýðshreyfingarinnar og var í Sjálfstfl. og tók þátt í honum. Að svona hlutir gætu gerst hefði okkur aldrei órað fyrir í þeim ágæta flokki. Þetta er einhver harðasti dómur um flokksleg afskipti af verkalýðsmálum sem ég hef heyrt. (Gripið fram í.) Já, ég skil vel að nú líður kratanum, hv. þm. Karvel Pálmasyni, vel því að ekki er samkomulag alltaf gott á milli alþýðubandalagsmanna og alþýðuflokksmanna í verkalýðshreyfingunni. Það þekkjum við. Það er von að það kæti hann, hv. þm. og verkalýðssinnann í Alþfl., þegar hann veit að þrengt er að félögum hans, verkalýðsfélögum þó að það séu ekki flokksfélagar, með þeim hætti sem Ragnar Stefánsson, forustumaður í Alþb., lýsir, hvernig komið er fram við forustumenn verkalýðshreyfingarinnar innan Alþb. Ég harma að sjálfsögðu að stjórnmálaflokkur skuli með þessum hætti þjarma að sínum verkalýðsforingjum eins og Ragnar Stefánsson lýsir að gert er af hálfu alþýðubandalagsmanna, þ.e. stjórnmálaforustu flokksins. Þessi lýsing er einsdæmi um vinnubrögð í

pólitískum flokki og nú eru það ekki pólitískir andstæðingar sem eru að reyna að lýsa því, enda þekkja þeir ekki til hlutanna með sama hætti og þeir sjálfir innan síns eigin flokks.
    Það er einn kafli annar í grein Ragnars Stefánssonar sem nauðsynlegt er að hv. þm., sérstaklega þingmenn Alþb., hugi vel að áður en til atkvæða kemur um þessi bráðabirgðalög. Það er kafli sem ég mun hafa sem lokakafla í mínum tilvitnunum í títtnefnda grein í Þjóðviljanum. Með leyfi forseta ætla ég að lesa það. Þar segir Ragnar Stefánsson á þessa leið:
    ,,Í nýlegri stjórnarmyndun Alþb. með meiri hluta síðustu ríkisstjórnar vottar ekki einu sinni fyrir sóknarfærum eða því að Alþb. sé að koma einhverjum mikilvægum málum í gegn. Helst virðist það vera hugsunin að hægt verði með stjórnarmyndun að hægja á auðvaldssókninni, eins og t.d. í sambandi við nýja námsskrá fyrir skóla, og svo í því að rétta einhverjum atvinnurekendum einhvern aur svo að vinnufólkinu hjá þeim auðnist að halda vinnunni. Þetta er nú öll reisnin. Hins vegar er tekið af snöfurleik þátt í að ráðast á kauptaxta verkalýðshreyfingarinnar, sem allir vita að verður fyrst og fremst til að lækka laun hinna lægst launuðu. Margt vinstra fólk og sósíalistar stendur agndofa frammi fyrir þessu og segir: Hvað hefur eiginlega gerst? Ég hef líka spurt sjálfan mig``, segir Ragnar Stefánsson, ,,þeirrar spurningar og svar mitt er eftirfarandi: Alþb. er ekki lengur flokkur af stétt venjulegs launafólks.``
    Þar höfum við það. Þetta er harður dómur. Þetta eru þeirra eigin orð. Þetta eru ekki einhverjir vondir íhaldsmenn úr Sjálfstfl. eða einhverjir pólitískir andstæðingar. Þetta eru þeirra eigin menn.
    Að lokum segir Ragnar í einni setningu, með leyfi forseta: ,,Stjórnin er þegar búin að gera þá árás á verkalýðsstéttina sem aldrei verður tekin til baka.``
    Mér hefur verið tíðrætt um álit alþýðubandalagsmanns á pólitískri afstöðu forustumanns þess flokks til verkalýðshreyfingarinnar. Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir hv. þm. og þingheim að vita þetta. Mér leikur grunur á að hv. þm. hafi ekki lesið Þjóðviljann jafn vel og ég gerði þennan dag. Þetta hlýtur að hjá pa samvisku þingmanna í hv. Ed. að gera upp sinn hug þegar kemur að því að fjalla um þetta frv. og fella það.
    Þá er annar þáttur í sambandi við þetta frv. sem hlýtur að vekja furðu manna og ég hlýt að beina máli mínu þá til hv. þm. Karvels Pálmasonar sem er einn af þeim forustumönnum sem hafa verið kosnir til hvað mestra mannvirðinga innan verkalýðshreyfingarinnar, alla vega þeirra sem núna eiga sæti á Alþingi Íslendinga. Það er hvernig gengið er freklega á samningsréttinn hvað varðar lög um Atvinnuleysistryggingasjóð. Það vita allir hv. þm. að atvinnuleysistryggingar urðu til með samningum milli verkalýðshreyfingarinnar og vinnuveitenda annars vegar og ríkisvaldsins hins vegar árið 1955 þannig að það var löghelgaður réttur sem verkalýðshreyfingin öðlaðist með þessu. Með lögum ætlar ríkisvaldið í

skjóli mjög naums meiri hluta á hv. Alþingi að grípa freklega inn í þennan rétt með þeim hætti að færa til hundruð milljóna úr Atvinnuleysistryggingasjóði til Atvinnutryggingarsjóðs þar sem því fé verður úthlutað að geðþótta þeirra sem stjórna þeim sjóði. Það er einsdæmi svo að ekki sé meira sagt ef verkalýðshreyfingin og ábyrgðarmenn verkalýðshreyfingarinnar sem sæti eiga á Alþingi ætla að láta það yfir sig ganga með þeim hætti að greiða því atkvæði á hv. þingi að skerða þennan löghelgaða rétt. Ég trúi því ekki að óreyndu að hv. þm. Karvel Pálmason láti hafa sig til þeirra verka.
    Forseti ASÍ og fleiri aðilar hafa mótmælt harðlega að þetta gerist með þeim hætti sem frv. gerir ráð fyrir. Í þessu felst auðvitað fordæmi sem er svo ólýðræðislegt sem frekast getur verið og ég segi bara fyrir mitt leyti að ég vara hv. þm. við því að ráðast gegn verkalýðshreyfingunni með þeim hætti sem þarna er gert og spyr: Hvernig getur verkalýðurinn treyst því að gerðir samningar við handhafa ríkisvaldsins eða löggjafarvaldið geti staðist ef hv. þm. að geðþótta við myndun einnar ríkisstjórnar grípa þannig inn í löghelgaðan samningsrétt verkalýðshreyfingarinnar? Ég vara alvarlega við slíkum vinnubrögðum.
    Að lokum vil ég segja það í sambandi við þáttinn sem lýtur að verkalýðshreyfingunni að á sínum tíma sagði fyrrv. forseti Alþýðusambandsins, Björn Jónsson, eitthvað á þessa leið, þegar hann stóð frammi fyrir því samviskuspursmáli hvað hann ætti að gera í sambandi við erfið úrlausnarefni sem sneru að verkalýðshreyfingunni og að honum sem stjórnmálamanni er hann átti sæti á Alþingi Íslendinga: ,,Ríkisstjórnir koma og fara og falla eins og strá fyrir vindi.`` Síðan féll stjórn Ólafs Jóhannessonar. Það var ríkisstjórnin sem sat hér á árunum 1971--1974. Þess vegna vil ég bæta þessu við til áminningar fyrir hv. þm. Það getur vel verið að það sé í tísku hjá ýmsum stjórnmálamönnum að halda að þeir geti fótumtroðið verkalýðshreyfinguna. En ég vara þá menn við slíkum hugsunarhætti því að verkalýðshreyfingin mun standa hvað sem líður stjórnmálamönnum. Það eru stjórnmálamenn sem falla eins og strá fyrir vindi ef þeir ganga of nærri rétti launafólks með þeim hætti sem allt of oft á sér stað af hálfu íslenskra stjórnmálamanna. Það er mál að linni í þeim efnum og ég held að íslenskir stjórnmálamenn og hv. þm. ættu að fara varlega í þeim efnum að troða á samningsrétti og stöðu íslenskrar verkalýðshreyfingar. Ég tel mig hafa fullan rétt á að segja þetta með tilliti til þess að ég hef áratuga reynslu á sviði verkalýðsmála. Því miður tók ég einu sinni afstöðu gegn verkalýðshreyfingunni í veigamiklu máli í hv. Alþingi. Eftir á sá ég að sú afstaða var röng. Það er mjög hættulegt fyrir lýðræðið ef stjórnmálaflokkarnir og valdaklíkur flokkanna ætla að notfæra sér þann meiri hluta sem þeir hafa á Alþingi á hverjum tíma til að fótumtroða gerða samninga. Það er grundvallaratriði að þrískipting valdsins í þjóðfélaginu sé virt með tilliti til þess að verkalýðshreyfingin og samtök vinnuveitenda geti treyst því að gerðir

samningar og lög þeim tengd standist.
    Ég skal, herra forseti, ekki vera langorðari um frv. á þessu stigi, en vil segja að lokum að ég tel að þetta frv. um efnahagsaðgerðir sé ófullnægjandi. Það jaðrar við og það raunverulega meira en jaðrar við, og ég vísa til þess sem fagmaðurinn sagði í þeirri grein sem ég las upp áðan, að þessi gjörð öll sé ólögleg. Hún er ólýðræðisleg og ef hún verður framkvæmd með þeim hætti sem stuðningsmenn hæstv. ríkisstjórnar stefna að þá leysir hún ekki vanda útflutningsatvinnuveganna. Þessi lög munu ekki leysa vanda íslenskra atvinnuvega, því fer fjarri. Í þessum aðgerðum felst ekki varanleg bót. Það eina sem dugar við lausn þeirra erfiðu vandamála sem þjóðin á við að glíma, í sambandi við atvinnu- og útflutningsmál, er að jafnvægi komist á í gengismálum. Það jafnvægi verður að skapast og vera á grundvelli eðlilegrar rekstrarstöðu helstu útflutningsgreina, eða þeirra greina sem byggja afkomu sína á viðskiptum við útlönd. Og það er fleira heldur en útflutningur á sjávarvörum. Ég nefndi hér áðan ferðamálaiðnað, útflutning iðnaðarvöru o.fl.
    Skilningur er hjá þjóðinni fyrir því að þörf sé leiðréttinga á stöðu útflutningsatvinnuveganna. Það er hörmulegt að hæstv. ríkisstjórn skuli hafa valið þá leið sem frv. um efnahagsaðgerðir felur í sér vegna þess að þetta er bráðabirgðaleið sem mun ekki skila þjóðinni æskilegum árangri. Frv. snýst um millifærslur sem eru óheilbrigðar, ranglátar, ólýðræðislegar og brjóta í bága við öll þau atriði sem lúta að jafnrétti þegnanna. Í þessum lögum eru verðbætur sem jafnvel þeir aðilar hafa mótmælt sem eiga að njóta þeirra. Í frv. felst alvarleg tekjuskerðing. Með lögunum er verið að afnema samningsrétt og fleira þessu líkt. Að minni hyggju er fátt eða ekkert jákvætt í sambandi við frv. og æskilegt væri og nauðsynlegt að það verði fellt hér í meðförum á Alþingi þannig að hæstv. ríkisstjórn geti komið með úrræði sem duga, en ekki þetta hálfkák.