Efnahagsaðgerðir
Þriðjudaginn 25. október 1988

     Danfríður Skarphéðinsdóttir:
    Herra forseti. Ég hlýt að hefja mál mitt á því að gagnrýna þær aðferðir sem ríkisstjórnir virðast vera farnar að tileinka sér með þeim vinnuaðferðum sem birtast í að setja æ ofan í æ bráðabirgðalög. Síðustu ríkisstjórn lá mikið á að senda okkur þm. heim sl. vor og um leið og við vorum horfin úr þingsölum voru sett tvenn bráðabirgðalög og önnur í lok ágúst rétt áður en sú ríkisstjórn leið undir lok. Þetta þótti okkur þm. að vonum alls óviðunandi, hefðum að sjálfsögðu átt að fá tækifæri til að að sitja lengur fram á sumarið og taka afstöðu til þeirra mála sem svo mjög lá á að leysa. Til þess erum við kjörnir fulltrúar inn á Alþingi. Nú, með nýrri ríkisstjórn jafnréttis og félagshyggju, megum við enn búa við þau ólýðræðislegu vinnubrögð sem birtast í því að setja bráðabirgðalög svo skömmu fyrir þingsetningu sem raun ber vitni. Það hefði verið hæstv. ríkisstjórn í lófa lagið að boða til þings heldur fyrr en hefðin segir til um til þess að fjalla um þær alvarlegu horfur sem uppi eru í efnahags- og atvinnulífi þjóðarinnar. Það eru bæði ólýðræðisleg og óþingræðisleg vinnubrögð sem menn hafa hér gripið til.
    Landsmenn allir og þá ekki síst þeir sem vinna við undirstöðuatvinnugreinarnar hafa búið við öryggisleysi vegna skammtímahugsunar stjórnvalda sem hefur viðgengist allt of lengi. Nú á milli þinga vor og haust á þessu ári hafa fjórum sinnum verið gefin út bráðabirgðalög sem öllum hefur verið ætlað að leysa bráðan vanda. Og hvar sér þess stað að lausn vandans sé í augsýn?
    Við kvennalistakonur eins og flestir aðrir viðurkennum nauðsyn þess að grípa til aðgerða til að rétta við hag fyrirtækja, fyrst og fremst í útflutningsgreinum, en spurningin er auðvitað sú hvaða leið skal velja til þess að ná því marki. Hin nýja ríkisstjórn jafnréttis og félagshyggju hefur valið það sem einn lið í aðgerðum sínum að gera að engu helgasta rétt hvers vinnandi manns, réttinn til að semja um kjör sín sjálfur og réttinn til þess að neita að vinna náist samningar ekki. Ég vil ekki gera lítið úr réttinum til þess að hafa atvinnu, en allir vita til hvers það getur leitt ef samningsrétturinn er tekinn af fólki æ ofan í æ. Við kvennalistakonur höfnum því algerlega þessari leið og langar mig, með leyfi forseta, að lesa fyrir þm. ályktun samráðsfundar Kvennalistans sem haldinn var á Húsavík 7.--9. október þar sem efnahagsmál voru rædd. Þar segir:
    ,,Samráðsfundur kvennalistakvenna víðs vegar af landinu haldinn á Húsavík 7.--9. október sl. ítrekar eindregna andstöðu Kvennalistans gegn árásum stjórnvalda á réttindi og kjör launafólks. Vandinn í íslensku efnahags- og atvinnulífi er ekki fólginn í of háum launatöxtum, heldur fyrst og fremst of miklum fjármagnskostnaði. Það er því forgangsatriði að ná tökum á þeim þætti efnahagslífsins.
    Kvennalistinn leggur áherslu á að fá sundurgreinda úttekt á stöðu og rekstri útflutningsgreinanna og að aðgerðum verði hagað í samræmi við niðurstöður hennar. Íslenskt atvinnulíf líður að mörgu leyti fyrir

ytri aðstæður, svo sem óhagstæða þróun gengis og verðlags á erlendum mörkuðum en einnig fyrir ábyrgðarleysi í rekstri, vanþekkingu og rangar áætlanir. Í þeim efnum sem mörgum öðrum er þörf fyrir breytt hugarfar, þar sem ábyrgð og virðing fyrir umhverfinu og sameiginlegum verðmætum okkar allra eru höfð í öndvegi.``
    Hv. 6. þm. Reykv., Guðrún Agnarsdóttir, gerði í síðustu viku ítarlega grein fyrir afstöðu okkar til launafrystingar og afnáms samningsréttar, en ég vil enn og aftur ítreka að við erum ekki einar á þessari skoðun því vart líður sá dagur að okkur sem og væntanlega öðrum hv. þm. berist ekki ályktanir og áskoranir frá verkalýðsfélögum víðs vegar um landið. Það er því að mínu mati ekki alls kostar rétt sem fram kom í máli hv. 7. þm. Reykn. hér fyrr í umræðunni að verkalýðshreyfingin sýndi enga viðspyrnu. En ég vil aðeins, með leyfi forseta, vitna til leiðara Þjóðviljans frá 15. sept. sl., en þar á bæ voru menn sömu skoðunar og við fyrir hálfum öðrum mánuði síðan. Í leiðara þessum segir m.a.:
    ,,Samtök launamanna hafa keppst við að mótmæla áformum stjórnvalda um að meginuppistaðan í efnahagsráðstöfunum stjórnvalda verði að lækka laun. Þessi afdráttarlausa neitun og góða samstaða verkalýðssamtaka virðist hafa komið sumum á óvart. Það er engu líkara en einhverjir hafi í raun og veru talið það raunhæfan möguleika að unnt væri að fá forustumenn launamanna til að leggja á ráðin um það hvernig heppilegast væri að lækka launin.
    Sl. mánudag efndu bæði ASÍ og BSRB til formannafunda. Skilaboð til stjórnvalda frá þeim fundi voru ákaflega skýr og einföld. Verkalaun almennra launamanna eru ekki orsök efnahagsvandans. Látið því launin í friði en snúið ykkur að því að skapa atvinnuvegunum lífvænleg skilyrði með því að ná niður vöxtum og hægja á verðbólgunni. Treysta verður atvinnuöryggi í útflutningsgreinum og leysa sérstaklega vanda þeirra fyrirtækja sem skipta sköpum fyrir atvinnu fólks. Leggja þarf áherslu á afkomuöryggi heimilanna.
    Áherslur verkalýðshreyfingarinnar eru mjög keimlíkar þeirri leið sem Alþb. hefur boðað að fara skuli og því eru þær í algerri andstöðu við þær hugmyndir sem ræddar eru í ríkisstjórninni, en þær eru allar því marki brenndar að miðast við skerðingu á kaupmætti.``
    Ég læt tilvitnun minni hér lokið en vil aðeins geta þess að 13 dögum síðar er þetta sama Alþýðubandalag komið inn í ríkisstjórnina sem nú situr. Ekki veit ég hvort talan 13 er þeirra óhappatala, en mér sýnist þessi aðgerð vera jafnmikið óhapp og aðgerð síðustu ríkisstjórnar þegar hún lagði á matarskattinn sem virðist eiga að viðhalda.
    Í síðari hluta ályktunar okkar kvennalistakvenna, sem ég vitnaði til áðan, bendum við á nauðsyn þess að gera úttekt á stöðu fyrirtækjanna og greiningu vandans með tilliti til þess að aðgerðum verði hagað í samræmi við niðurstöður hennar. Við viðurkennum nauðsyn þess að koma á laggirnar einhvers konar

skuldaskilasjóði, en spurningin er eins og ætíð hvaða leið skal velja. Er nauðsynlegt að stofna sérstakan sjóð sem þó er að flestu leyti í skjóli Byggðastofnunar og háður henni um margt, t.d. reikningshald, en hingað til hefur Byggðastofnun sinnt málum sem þessum? Er stofnun þessa nýja sjóðs ekki bara sjónhverfing þar sem reynt er að láta mjög venjulega og hefðbundna aðgerð í íslensku efnahagslífi líta öðruvísi út en hingað til, til þess að sannfæra fólk um að í raun sé verið að leysa vandann. Og ef á annað borð þykir nauðsynlegt að stofna nýjan sjóð, hvers vegna er ekki hugsað um að hafa á honum annan blæ en á hinum hefðbundnu pólitísku útdeilingarsjóðum sem við megum búa við? Ég vil spyrja hæstv. forsrh. hvort aldrei hafi komið til greina að skipa í sjóðsstjórnina fulltrúa atvinnulífs, launafólks og sveitarfélaga, þ.e. þeirra sem eiga afkomu sína einna helst undir útdeilingu frá þessum sjóði. ( KP: Það eru fulltrúar launafólks.) Það hefði verið eðlilegra í mínum augum að setja slíkum sjóði aðeins eina stjórn í stað þess að vera með tvöfalt kerfi þar sem til kemur sérstök samstarfsnefnd lánastofnana atvinnuveganna og Byggðastofnun til hliðar vð stjórn Atvinnutryggingarsjóðsins.
    Það eru margar fleiri spurningar sem vakna varðandi Atvinnutryggingarsjóðinn og mjög óljóst hver framvinda mála verður komist hann á legg. Munu þjónustufyrirtæki og sveitarfélög geta selt bréf útgefin af sjóðnum eða verða þau jafnvel seld með afföllum? Er yfirleitt hægt að líta á skuldabréf Atvinnutryggingarsjóðs sem eign þar sem hann hefur aðeins 1000 millj. kr. ríkisábyrgð? Svo mætti lengi spyrja, en væntanlega skýrast þau mál nánar í hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar.
    Um fjármögnun Atvinnutryggingarsjóðs skv. 5. gr. laganna vil ég tjá þá skoðun okkar kvennalistakvenna að við teljum ekki rétt að lækka framlag ríkissjóðs til Atvinnuleysistryggingasjóðs án nokkurrar tryggingar um að þeir peningar komi til baka. Í sameiginlegri yfirlýsingu Vinnuveitendasambands Íslands og Alþýðusambands Íslands um málefni Atvinnuleysistryggingasjóðs segir, með leyfi forseta: ,,Miðstjórn Alþýðusambands Íslands og framkvæmdastjórn Vinnuveitendasambands Íslands hafa fjallað um þá ákvörðun ríkisstjórnarinnar að skerða umsamin og lögbundin framlög ríkissjóðs til Atvinnuleysistryggingasjóðs um 600 millj. kr. og setningu bráðabirgðalaga í þeim tilgangi. Það er sameiginleg afstaða samtakanna að með þessu sé ríkisvaldið einhliða að rjúfa áratuga samkomulag aðila vinnumarkaðarins, ríkisvaldsins og sveitarfélaganna um uppbyggingu og fjármögnun Atvinnuleysistryggingasjóðs.`` Ég læt þessari tilvitnun lokið hér með en hún er lengri og ítarlegri og fjallar m.a. um ótryggar horfur í atvinnumálum. Ekki síst með tilliti til þeirra auknu verkefna sem sjóðurinn hefur orðið að taka á sig á síðustu árum, t.d. vegna eftirlauna aldraðra og fæðingarorlofs, hefðum við talið eðlilegt að þessi fjárhæð hefði verið fengin að láni. Það má heldur ekki gleyma því að þó að hinn nýi

sjóður hafi hlotið nafnið Atvinnutryggingarsjóður er ýmislegt sem bendir til þess að við getum þrátt fyrir allt átt von á atvinnuleysi í einhverjum mæli.
    Í nýlegri frétt Þjóðhagsstofnunar og Vinnumálaskrifstofu félmrn. kemur fram að tilkynningum um uppsagnir til félmrn. hefur farið fjölgandi að undanförnu og það mat er sett fram að atvinnuhorfur verði að teljast ótryggari nú en um langt skeið. Hinn tómi verðjöfnunarsjóður fiskiðnaðarins, þ.e. frystideildin sem er ein orsök í þeim vanda sem við eigum nú við að glíma, ætti að kenna mönnum á eftirminnilegan hátt að það er nauðsynlegt að eiga í sjóðum til að mæta tímabundnum erfiðleikum.
    Áður en ég lýk máli mínu vil ég loks aðeins benda á þá ósanngirni sem felst í því að frysta launin án þess að frysta verðlag um leið því erlendar hækkanir verða til þess að fólk missir alla yfirsýn og gerir framkvæmd verðstöðvunarinnar með öllu ómögulega. Þrátt fyrir þessa svokölluðu verðstöðvun og aðgerðir í vaxtamálum dugir það ekki til að snúa við því kaupmáttarhrapi sem verið hefur á þessu ári og kemur, eins og aðrar þær aðgerðir sem við teljum óviðunandi í þessum bráðabirgðalögum, fyrst og fremst niður á þeim sem vinna samkvæmt töxtum. Við munum að sjálfsögðu leggja til að
frysting launa verði afnumin og samningsrétti skilað aftur til fólksins en ætli menn að halda þeim til streitu í skjóli einhvers óljóss meiri hluta hlýtur jafnframt að verða að setja skilyrði um algjöra verðstöðvun.
    Að lokum, herra forseti, vil ég spyrja hæstv. forsrh. um eina grein laganna, 23. gr., þar sem fjallað er um 600 millj. kr. aukningu ríkisútgjalda, en mig langaði til þess að vita í hvað þær 600 millj. eiga að fara, til hvers á að verja þeim og þá vildi ég einnig spyrja um, vegna þess að á okkur hafa dunið fyrirspurnir áhyggjufulls launafólks undanfarið sem gjarnan vill vita hvort persónuuppbót eða desemberuppbót sem samið var um, hvort hún verði greidd þrátt fyrir þessa frystingu. Ég hef lokið máli mínu, herra forseti.