Frumvarp um hvalveiðibann
Þriðjudaginn 25. október 1988

     Forseti (Kjartan Jóhannsson):
    Svo vill til varðandi það mál sem hér er á dagskrá að hæstv. sjútvrh. sér sér ekki fært að vera hér í dag. Hann er bundinn af kirkjuþingi og hefur hann eindregið óskað eftir því að umfjöllun um dagskrármálið verði frestað. Ég hef rætt það við flm. þessa lagafrv. og þeir hafa á það fallist, en ég mun jafnframt gera ráðstafanir til þess að málið verði á dagskrá næsta fundar þessarar deildar sem verður á venjulegum tíma á morgun.