Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Herra forseti. Eftir margar og ítarlegar ræður mætti flytja langt mál um frv., en ég mun þó reyna að stytta það eins og ég frekast get, enda verða fleiri tækifæri til þess að ræða það, ekki síst eftir að hv. þm. sem í viðkomandi nefnd sitja hafa fengið tækifæri til að fjalla um það.
Hv. þm. hafa fleiri en einn spurt að því hvort forseta hafi verið gerð grein fyrir því fylgi sem þetta mál hefði öruggt á þingi. Að sjálfsögðu var forseta gerð grein fyrir því. Þetta frv. var þegar undirbúið þegar stjórnin var mynduð og þá var forseta gerð grein fyrir því að þessi ríkisstjórn hefði meiri hluta í Sþ. og Ed. en jöfn atkvæði í Nd.
Hins vegar vil ég vekja athygli á því að um ýmis þessi mál hafði verið fjallað í fyrri ríkisstjórn t.d. M.a. lá þar fyrir tillaga frá hæstv. þáv. forsrh. um það sem menn nú kalla millifærslu eða greiðslu upp á 4% úr Verðjöfnunarsjóði til frystingarinnar og m.a. um sjóð sem var að vísu nokkuð minni en hér er en átti að fá framlag upp á 1 milljarð kr. og fleira gæti ég talið til. Einnig tel ég að a.m.k. sum ákvæði þessa frv., og það hefur reyndar komið fram, njóti stuðnings í stjórnarandstöðunni.
Um leið og ég segi þetta vil ég taka mjög undir það, sem hér var haft eftir svo mætum mönnum sem Bjarna heitnum Benediktssyni og Ólafi Jóhannessyni, að vitanlega er nauðsynlegt að gæta þess vandlega að líklegur stuðningur sé í Alþingi fyrir bráðabirgðalögum. Hitt er svo staðreynd að það er ekkert í stjórnarskránni, enda kom það fram hjá hv. þm. Halldóri Blöndal, sem bannar minnihlutastjórn að setja bráðabirgðalög og að því er mig minnir vísaði hv. þm. einnig til Gunnars Thoroddsens. Ég minnist þess vel, þegar þessi mál voru rædd í forsætisráðherratíð hans, að þótt hann vissulega teldi að varlega bæri að fara í slíka hluti væri ekkert sem það bannaði. Aðalatriðið er að sjálfsögðu sú brýna nauðsyn sem menn telja vera á því að setja slík lög. Mér er ljóst að hv. þm. hér gera sér grein fyrir því að vandinn er mikill, en ég er ekki viss um að við gerum okkur grein fyrir því hvað hann er brýnn og jafnvel miklu meiri en talið hefur verið til þessa.
Ég þarf ekki að vísa á fjölmörg gjaldþrot hér í Reykjavík sem eru daglega í fréttum. Mér heyrðist í morgun rætt um gjaldþrot upp á 900 millj. jafnvel hjá einu nýju hóteli í Reykjavík. Staðreyndin er vissulega sú að þessi gjaldþrot munu teygja anga sína um land allt og miklu víðar en menn hafa gert sér grein fyrir. Þau munu teygja anga sína inn í fjármálastofnanir og hafa áhrif á getu þeirra. Rétt er að yfirleitt hefur útflutningsatvinnufyrirtækjum verið haldið gangandi og oft hygg ég meira af vilja lánastofnana en vegna þess að þar hafi rekstrarstaðan verið svo góð. Við þekkjum að sjálfsögðu að þar hafa orðið stöðvanir, en ég get upplýst hér að samkvæmt athugun sem ég er að láta framkvæma er mér sagt að af 27 frystihúsum sem höfðu verið skoðuð séu 18 við það að stöðvast og hefðu stöðvast ef ekki hefði komið til fyrirgreiðsla viðskiptabanka umfram það sem þeim í raun bar
skylda til ef maður nefnir afurðalánin sem skylduútlán þeirra banka.
Ég held því að þörfin hafi svo sannarlega verið brýn. Bráðabirgðalög sem fyrri ríkisstjórn setti runnu út fyrir mánaðamótin september--október. Menn geta sagt: Það er hægt að framlengja þau bráðabirgðalög og láta þar við sitja. Það hef ég heyrt og vissulega kom það til álita, en ég leyfi mér að fullyrða að ef það eitt hefði verið gert hefðu stöðvanir í útflutningsgreinum orðið miklu, miklu fleiri og víðtækari en þær hafa hingað til orðið.
Ég hygg að það hafi verið hv. þm. Halldór Blöndal sem innti eftir því, sem ég hef sagt, að verði þessi lög felld hér á hinu háa Alþingi hljóti ríkisstjórnin að rjúfa þing og efna til kosninga. Mér sýnist það liggja í hlutarins eðli að þessar aðgerðir eru þær sem ríkisstjórnin hefur talið óhjákvæmilegt að grípa til til að koma í veg fyrir þann þjóðarvoða sem við blasir. Verði það stöðvað verður vitanlega að vísa málinu til þjóðarinnar með kosningum. Ég held að það hljóti að liggja í augum uppi.
Hv. þm. spurði um frestun á virðisaukaskatti og framkvæmd hans. Það er rétt. Eins og reyndar hefur verið talað um í fyrri ríkisstjórn er gert ráð fyrir því að framkvæmd virðisaukaskatts verði frestað líklega um eitt ár. Ég vil þó taka fram að endanleg afstaða til þess tíma hefur ekki verið tekin.
Hv. þm. Halldór Blöndal ræddi mjög um stjórnarslitin og aðdraganda þeirra og taldi að þar hefði verið um mikil óheilindi að ræða. Ég vísa því á bug. Ég vil leyfa mér að fullyrða að stjórnarflokkarnir hafa allir tekið þátt í tilraun til að ná samkomulagi um róttækar aðgerðir í þágu ekki síst útflutningsgreinanna og vitanlega þjóðfélagsins og efnahagslífsins í heild. Ég vek athygli á því að eftir að hæstv. fyrrv. forsrh. lýsti þeirri skoðun sinni í lok júlímánaðar að ekki væri um annað að ræða en ná samkomulagi um slíkar aðgerðir og það fyrir lok ágústmánaðar var mjög ötullega að þessum málum unnið. Skipuð var af hans hálfu nefnd fulltrúa atvinnurekenda sem ég tel að hafi verið góð tilraun til að ná samkomulagi um nauðsynlegar aðgerðir í þeirra þágu. Staðreyndin er hreinlega sú að ekki náðist samstaða um svokallaða
niðurfærsluleið. Af því að síðasti hv. ræðumaður spurði um hvers vegna hún hefði ekki verið farin verð ég taka undir það með fyrrv. hæstv. forsrh. að hún er ófær nema breið samstaða sé. Ég get einnig upplýst að formaður Alþfl. og ég spurðum fyrrv. hæstv. forsrh. að því hvort hann vildi veita minnihlutastjórn hlutleysi til að framkvæma niðurfærsluleiðina, en því var svarað neitandi. Að því svari fengnu hygg ég að öllum megi vera ljóst að sú afar erfiða og flókna leið var ekki fær, ég segi því miður, því að ég er sannfærður um að hún hefði ekki aðeins lagfært stöðu útflutningsgreinanna langtum fyrr en nokkur önnur leið heldur hefði hún einnig, með lækkun verðlags að sjálfsögðu, og ekki bara lækkun verðlags sem leitt hefði af lækkun launa heldur lækkun verðlags sem slíkri, lækkun á gjaldskrá opinberra fyrirtækja, jafnvel
á undan lækkun launa, fært launþegum kjarabót sem hefði verið ákaflega mikils virði.
Ég vil einnig, af því að ég er að tala um niðurfærsluleiðina, andmæla því að hún hafi strandað á deilu um fiskverð eða lækkun tekna sjómanna. Á því var gerð nokkur úttekt og lögð fram í fyrri ríkisstjórn, m.a. Á því var gerð nokkur úttekt og lögð fram í fyrri ríkisstjórn, m.a. af hæstv. þáv. og núv. sjútvrh. Það var engin ákvörðun tekin eins og réttilega kom fram hjá hv. þm. Karvel Pálmasyni. Það náðist aldrei að ræða það mál. Því var í því sambandi m.a. velt upp að sjómenn höfðu aðeins fengið 5% hækkun í maí. En það var engin ákvörðun tekin um það hvort sú lækkun á tekjum sjómanna yrði látin nægja eða lengra gengið. Og ég tek undir það m.a. með fjölmörgum sem hafa vakið athygli á því að erfitt hefði svo sannarlega verið að lækka laun verkakonunnar í frystihúsinu en ekki laun sjómanna eins og hv. þm., ef ég man rétt, Guðmundur H. Garðarsson vakti hér athygli á. Það var því engin ákvörðun tekin um hvernig fara ætti með fiskverðið þegar þeirri leið hafði verið ýtt út af borðinu.
Síðasta ríkisstjórn fór frá einfaldlega vegna þess að við náðum ekki samkomulagi um þessa leið. Ég vísa algjörlega á bug þeim sleggjudómi, sem heyrist æðioft frá hv. sjálfstæðismönnum, og heyrðist frá hv. þm. Salome Þorkelsdóttur nú, að ég hafi verið í stjórnarandstöðu. Ég lýsti því hvað eftir annað yfir að farsælast væri fyrir íslensku þjóðina að þeir þrír stærstu flokkar sem að þeirri ríkisstjórn stóðu næðu saman um raunhæfar aðgerðir í þágu atvinnuveganna og íslensks efnahagslífs. Ég ætla hins vegar ekki að fara að ræða allt sem á milli fór í þeim málum, það yrði of langt mál að telja, og ég ætla ekki að kenna einum fremur en öðrum um að upp úr slitnaði. Við náðum einfaldlega ekki saman, það er staðreyndin. Eflaust eigum við allir nokkra sök á þegar þannig fer eins og venja er.
Rætt var um raungengið og það sem ég hef sagt í því sambandi. Ég hygg að bæði hv. þm. Halldór Blöndal og hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson hafi komið inn á það. Já, ég hef sagt að raungengið er eins og stendur of hátt fyrir íslenskar útflutningsgreinar, a.m.k. flestar. Það kunna að vera einhverjar sem búa við það markaðsverð erlendis nú, þó hygg ég að þær séu ekki margar, e.t.v. loðnumjölið og slíkar greinar, sem geta þolað þetta háa raungengi. Að mati Þjóðhagsstofnunar var raungengi um síðustu áramót á mælikvarða launa 30% yfir meðalraungengi undanfarinna ára. Einnig að mati Þjóðhagsstofnunar var raungengi á mælikvarða verðlags um 20% yfir meðalraungengi þessara ára. Ætla má að þetta hvort tveggja muni lækka fram í febrúar um u.þ.b. helming, þ.e. á mælikvarða launa niður í u.þ.b. 15% og mælikvarða verðlags niður í u.þ.b. 10%. Þetta er út af fyrir sig afar mikil lækkun. Það getur einnig ýmislegt fleira gerst sem lagfærir þetta raungengi. T.d. hafa ýmsir spáð því að hækkun muni verða á okkar afurðum á erlendum mörkuðum snemma á næsta ári, vegna þess að uppskerubrestur hefur orðið, m.a. í
Bandaríkjunum og reyndar víðar, sem muni leiða til hækkunar á matvælaverði. Sömuleiðis held ég því a.m.k. mjög ákveðið fram að sú lækkun í fjármagnskostnaði sem verður framkvæmd muni leiða til þess að atvinnuvegirnir þola betur það gengi sem er og vitanlega leiðir lækkun á slíku til lækkunar raungengis á grundvelli verðlags.
Ég vil einnig leyfa mér að vona að sú hagræðing geti orðið í gegnum m.a. aðstoð Atvinnutryggingarsjóðs að atvinnuvegirnir fái nokkra framleiðniaukningu og þoli betur það gengi sem þeir búa við. Sem sagt, þótt sannarlega sé nauðsynlegt að fylgjast vandlega með því hvernig þessi mál þróast í upphafi næsta árs og fram eftir næsta ári er ýmislegt sem vekur von um að um frekari lagfæringu raungengis geti orðið að ræða, þ.e. annars vegar kostnaðarlækkanir innan lands, hagræðing í fyrirtækjunum og að sjálfsögðu ef við fáum hækkun á markaðsverði erlendis sem margir telja nú vera í botni.
Ríkisstjórnin taldi sér ekki fært að ganga lengra í að leiðrétta raungengi nú. Það hefði þýtt miklu meiri kjaraskerðingu en ríkisstjórnin treystir sér til að bjóða upp á.
Í þessu sambandi má jafnframt geta þess að mjög hefur dregið úr þenslu. Launaskrið er fallandi, yfirvinna er minnkandi. Það er vitað mál að í mörgum útflutningsgreinum hafa yfirborganir verið miklar og ætla má að úr þeim dragi þá einnig.
Hv. þm. hafa gagnrýnt þá millifærslu sem hér er um að ræða. Ég hef
reyndar nú þegar vakið athygli á því að t.d. í tillögum Sjálfstfl. var gert ráð fyrir að greiða 4% uppbót á frystan fisk úr Verðjöfnunarsjóði sjávarútvegsins. Ég vil leyfa mér að halda því fram að millifærslan sé ekki mikil í þessum tillögum og miklu minni en orð er á haft. Hún er fyrst og fremst þessi greiðsla úr Verðjöfnunarsjóði til frystiiðnaðarins. E.t.v. er hún ekki nægilega mikil. E.t.v. er hún ekki nægilega víðtæk í því erfiða ástandi sem við búum við nú. Ég tek undir þær áhyggjur sem menn hafa haft hér vegna samkeppnisgreina. Ég held að sannarlega sé ástæða til að hafa áhyggjur af því eins og m.a. kom fram hjá hv. þm. Júlíusi Sólnes. Það held ég að sé fullkomlega réttmætt og þarf áreiðanlega að athuga vandlega stöðu þeirra greina á næstu mánuðum. Ég viðurkenni að við teflum á tæpasta vaðið. Ég taldi hins vegar viðurkennt, m.a. af þm. fyrri ríkisstjórnar, a.m.k. lá það í tillögum þeirrar nefndar sem þá var skipuð, að uppfærsluleiðin væri ekki fær. Hefur það ekki reyndar sannast? Gengisfellingar höfum við reynt tvisvar fyrr á þessu ári. Runnu þær ekki út í sandinn á örskömmum tíma? Reyndum við það ekki 1982 með þeim afleiðingum að verðbólga varð 130%? Er það ekki rétt að atvinnuvegirnir hafa sjálfir haldið því fram, og mjög ákveðið, að lítil verðbólga sé mesta rekstrarbótin sem þeir geta bent á? Ég hef áður lýst niðurfærsluleiðinni. Hér er farin leið sem liggur á milli, sem stefnir að því að ná niður verðbólgu eins hratt og unnt er, með
þó þeirri gengisfellingu sem í var ráðist sem var 3% og leiðir til u.þ.b. 2% hækkunar á verðlagi.
Um Atvinnutryggingarsjóðinn hefur mikið verið rætt og menn hafa gagnrýnt hann sem pólitíska úthlutun. Ég vil lýsa því hér að menn töldu sig einmitt vera að leita leiða þannig að ekki yrði sagt að um pólitíska úthlutun væri að ræða. Ég vil alls ekki ætla þeim embættismönnum, sem valdir eru í stjórn þessa sjóðs, að vera með pólitíska úthlutun. Og ég veit satt að segja ekki á hverju slíkar fullyrðingar byggjast. Jú, það kom vel til greina og var reyndar til umræðu að fela stjórn Byggðastofnunar að sjá um úthlutun úr þessum sjóði. Ég sé satt að segja ekki hvers vegna pólitískir fulltrúar leita eftir því að úthluta slíkum bjargráðum. Ég vil taka það fram að þótt ég beri fullt traust til þeirra þm. sem sitja í stjórn Byggðastofnunar eru t.d. ekki þar fulltrúar allra kjördæma og kann að vera að einhverjar deilur yrðu um þá úthlutun og því kannski haldið fram að þess hafi gætt að þar væru ekki fulltrúar allra kjördæma. Fram hjá þessu vildu menn sneiða með því að setja á fót sérstaka stjórn sem væri skipuð embættismönnum og við töldum, það má vera að okkur hafi þá yfirsést, að þannig yrði síður sakað um pólitíska úthlutun á þessu fé. Hér er auk þess um tímabundna aðgerð að ræða sem á aðeins að vera í tvö ár. Ég er þeirrar skoðunar að Byggðastofnun með því byggðaátaki sem þarf að gera hafi sannarlega nægilegt á sinni könnu þótt þessu væri ekki bætt þar ofan á. Hins vegar er sjóðurinn staðsettur inni í Byggðastofnun. Ætlast er til þess að hann njóti þeirrar miklu vitneskju sem þar er til um stöðu atvinnuveganna og starfsmenn Byggðastofnunar sinni sjóðnum eins og þeir geta þótt nauðsynlegt kunni að reynast að ráða eitthvert viðbótarstarfslið.
Hv. þm. Halldór Blöndal spurði hvort yrði um tekjuskattsauka að ræða á árinu 1988. Það verður ekki. Honum verður að sjálfsögðu ekki breytt. Ég hygg að hann hafi þá verið að vísa til hinna 200 millj. sem ganga eiga til Atvinnutryggingarsjóðs á árunum 1988 og 1989. En tekjuskattur verður hækkaður, eins og ég hygg að menn viti og ýmsir flokkar hafa talið eðlilegt, á árinu 1989.
Hér var nokkuð rætt um vextina og lækkun þeirra og hafa fleiri komið inn á það. Ég er þeirrar skoðunar að vextir hér séu allt of háir og að sú stjórn peningamála sem við höfum fylgt frá árinu 1985 hafi mistekist. Stjórn peningamála sem er í flestum grundvallaratriðum svipuð og stunduð er í okkar nágrannalöndum í Vestur-Evrópu þar sem aðstæður eru allt, allt aðrar en hér er um að ræða. Reyndar taldi ég mig koma nokkuð inn á þetta en ef ég man rétt spurði hv. þm. Skúli Alexandersson hvers vegna svona hefði farið. Ég skal gjarnan reyna að rekja það í nokkrum orðum. Mér er ljóst að um þetta er deilt og mönnum sýnist sitt hvað. En ég hef sagt að ég tel að mistekist hafi að ná jafnvægi í efnahagsmálum með þeirri stjórnunarleið sem var valin, þ.e. í gegnum peningakerfið. Þetta virtist takast sæmilega á árinu 1986. Þá voru raunvextir skikkanlegir, af útlánum
u.þ.b. 4--5%, þá voru innlán vaxandi og uxu meira en útlán. Hins vegar var mjög áberandi í lok þess árs og í upphafi ársins 1987 að jafnvægisleysis gætti og í vaxandi mæli. Enn einu sinni fór svo að góðæri í sjávarútvegi jók mjög fjármagn í umferð þrátt fyrir viðleitni til að binda fjármagn í Seðlabankanum og setja viðskiptabönkunum mjög ströng skilyrði um lausafjárstöðu. Og ég get reyndar að ýmsu leyti tekið undir það með hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni þegar hann hefur lýst andstöðu sinni við bindinguna. Hvað er þetta frelsi sem menn voru að boða þegar svo stranglega er bundið í annan endann eins og gert hefur verið hér á landi hjá viðskiptabönkunum? Hvað er þá frelsið til vaxtaákvarðana þegar framboð fjármagnsins er svo takmarkað? Að sjálfsögðu er það ekkert. Með slíkri
bindingu og kröfum um lausafjárstöðu bankanna var að sjálfsögðu stuðlað mjög að vaxtahækkunum í því þensluástandi sem var.
Ég tek það fram að ég tel eðlilegt að draga úr fjármagni í atvinnulífinu, en það verður þá að ná til alls fjármagnsmarkaðarins en ekki viðskiptabankanna einna. Og þá verður vitanlega að fylgja því mjög strangt aðhald að erlendu fjármagnsstreymi inn í efnahagslífið. Það mistókst. Erlent fjármagn streymdi inn í íslenskt efnahagslíf langt umfram það sem gert hafði verið ráð fyrir, u.þ.b. 4 milljörðum umfram lánsfjárlög á árinu 1987. Afleiðingin varð sú að þær greinar sem bankarnir þjóna fyrst og fremst, þ.e. framleiðslugreinarnar, urðu í fjármagnssvelti, en aðrar greinar sem töldu sig geta og telja sig geta velt kostnaðinum út í verðlagið fóru yfir á hinn svokallaða ,,gráa markað``, tóku þar lán á vöxtum sem að sjálfsögðu enginn eðlilegur rekstur getur staðið undir. Afleiðingarnar sjáum við í dag. Ég tel þess vegna að mistekist hafi að ná jafnvægi í íslensku efnahagslífi með stjórnunaraðgerðum í gegnum peningamálin.
Ég er þeirrar skoðunar að slíkar stjórnunaraðgerðir þurfi svo sannarlega að ,,skraddarasníða``, ef ég má orða það svo, fyrir grundvallareinkenni hins íslenska efnahagslífs sem er í raun jafnvægisleysi. Hv. þm. hljóta að hafa skoðað sveiflurnar sem orðið hafa í íslensku efnahagslífi og rekja má beint til sveiflna í sjávarútvegi. Þar hafa aflabrögð aukist mikið á sumum árum og fallið strax á eftir, markaðir hafa breyst o.s.frv. og öllum má vera ljóst að þessi háþróuðu iðnaðarþjóðfélög í Evrópu búa við allt aðrar aðstæður að þessu leyti en við Íslendingar. Því segi ég að slíkar aðferðir þarf að laga að allt öðrum aðstæðum sem hér eru.
Ég viðurkenni að það er við erfiðleika að stríða að lækka vextina. Ég er hins vegar sannfærður um að það tekst, a.m.k. ef menn trúa á markaðshyggjuna í þessu sambandi því stórminnkuð þensla ætti að leiða til vaxtalækkunar. Ég þykist jafnframt fullviss um það að með því að beita 9. gr. seðlabankalaganna megi koma vöxtum hér í svipað horf og þeir voru 1986. Hins vegar hljótum við að viðurkenna að hið íslenska bankakerfi er ákaflega vanbúið í raun. Það er ákaflega óhagkvæmt, það eru litlar einingar og vaxtamunur er
miklu, miklu meiri en búandi er við og lagfæra þarf ef hið íslenska bankakerfi á að geta staðið sig eins og kröfur eru til þess gerðar um framtíð.
Ég hef nú komið inn á, hygg ég, aðra hluti sem hv. þm. Halldór Blöndal spurði um eins og t.d. varanlega bót á rekstrargrundvellinum. Ég hef rakið það sem við hljótum að skoða mjög vandlega í náinni framtíð og hugsanlega lækkun á raungengi eða hæfileikum atvinnuveganna íslensku til að standast það gengi sem nú er. Ef það mistekst er að sjálfsögðu ekki um annað að ræða en að skoða þau mál í grunn. Menn hafa spurt: Kemur þá til greina ný launafrysting? Ég vil leyfa mér að fullyrða að svo verði ekki.
Hv. þm. Guðmundur Ágústsson kom fyrst inn á þetta með stuðning meiri hluta í báðum deildum sem ég hef þegar fjallað um. Hv. þm. sagði réttilega að verkafólkinu væri ekki um að kenna meginorsök vandans. Ég er þessu algjörlega sammála. Það er ekki háum launum sem slíkum, t.d. í frystiiðnaðinum, um að kenna. Menn verða hins vegar að gæta þess að það er fleira en laun verkafólks sem fylgja, t.d. fiskverðið. Laun verkafólks í frystiiðnaðinum eða launakostnaður í frystiiðnaðinum er í kringum 20%, hins vegar er fiskverðið í kringum 50%. Hingað til hefur fiskverð fylgt mjög náið hækkun launa. Og þá erum við komnir upp í 70% af kostnaðinum. Ég er þeirrar skoðunar að launasamningar undanfarið hafi verið tiltölulega sanngjarnir. Hins vegar hefur launaskrið verið ákaflega mikið og er talið að launaskrið hafi í mörgum tilfellum bætt 20% ofan á launagreiðslur. Það er úr þessu launaskriði sem þarf að sjálfsögðu að draga með minnkandi þenslu og þar horfir vænlega nú.
Hins vegar þegar svo er komið að atvinnuvegirnir eru að stöðvast vegna mikils kostnaðar og menn hafa, og ég er því sammála, hafnað því að fella gengið til að skapa þeim grundvöll, menn hafa reyndar líka hafnað niðurfærslunni eins og ég rakti áðan, er það ekki líkleg leið til þess að koma atvinnulífinu á fullan skrið á ný að hækka launin. Við höfum þess vegna orðið að grípa til þess úrræðis nú, sem er að sjálfsögðu þungbært og á vitanlega ekki að gerast nema í algerum undantekningartilfellum, að rifta þeim samningum, sem höfðu verið gerðir, á meðan á björgunaraðgerðum stendur. Ég vil leggja á það ríka áherslu að slík mannréttindi má að sjálfsögðu ekki leggja til hliðar nema um mjög skamma stund og eingöngu þegar um enn þá meiri þjóðarvoða er að tefla sem verður að forða frá.
Ég er þeirrar skoðunar að atvinnuleysi sem ég leyfi mér að fullyrða að hafi verið fyrir dyrum --- ég hef heyrt áætlanir um 10--15 þúsund manna atvinnuleysi í vetur ef ekkert er að gert --- sé enn þá meiri voði en þær skammvinnu aðgerðir sem gripið hefur verið til í þessu sambandi. Hv. þm. gerði grein fyrir stefnu Borgfl. og skal ég ekkert segja um það. Við höfðum tækifæri til að ræða það eina nóttina fyrir stjórnarmyndun eins og einnig hefur verið nefnt. Það er aðeins eitt atriði sem ég hygg að hann hafi nefnt
sem hugsanlega
leið, að nýir aðilar kæmu inn í atvinnureksturinn. Að sjálfsögðu kemur það til greina. Hins vegar hygg ég að ýmsum atvinnurekendum þyki nokkuð súrt að hafa orðið að starfa við óeðlilegan rekstrargrundvöll og tapað sínu eigin fé af þeim sökum, í mörgum tilfellum hefur það sogast til nýrra aðila í þjóðfélaginu, en þeir sömu nýju aðilar koma svo inn og eignast fyrirtækin. Ég held að menn verði að líta á hvernig þetta hefur þróast á undanförnum mánuðum. En ég tek þó undir það að í vissum tilfellum getur verið æskilegt að breikka grundvöllinn, m.a. með því að stuðla að því að sveitarfélög og aðrir aðilar á viðkomandi svæði geti komið inn til stuðnings.
Hv. þm. Guðrún Agnarsdóttir er ekki hér stödd og út af fyrir sig voru ekki margar spurningar frá henni til mín. Eitt atriði sem kom fram í hennar ræðu vil ég þó nefna. Hún sagði að samkvæmt athugunum Hagstofunnar þyrfti 187 þús. kr. til framfærslu. Þetta er nokkur misskilningur. Samkvæmt athugun Hagstofunnar þá ver meðalfjölskylda 187 þús. kr. til framfærslu, en það er alls ekki þar með sagt að það séu nauðþurftir heldur jafnvel töluvert betur. Þetta er nokkuð hærra heldur en ráðherra heldur eftir þegar hann hefur greitt skatta og ég held nú að í þessum tölum komi í raun og veru fram ofneysla hins íslenska þjóðfélags, mikil bifreiðakaup, rekstur bifreiðanna og fjölmargt fleira og oft með mikilli lántöku.
Hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson sagði réttilega að við eyðum umfram tekjur. Ég hygg að það komi fram í ofangreindum tölum. Það kemur m.a. fram í því að viðskiptahalli í ár verður að mati Þjóðhagsstofnunar tæplega 12 milljarðar kr. eða um 4,6% af vergri landsframleiðslu. Vitanlega getur það ekki gengið og hefur mjög hallað á verri veginn frá 1986 þegar viðskiptajöfnuður náðist í fyrsta sinn í 12 ár. Vitanlega undirstrikar þetta það sem hv. þm. sagði, við eyðum umfram efni. Með þessu er ég ekki að segja að þetta eigi við alla einstaklinga í þjóðfélaginu því þetta eru meðaltalstölur sem um er að ræða.
Það er rétt sem hv. þm. sagði að framlög til opinberra framkvæmda hafa mjög dregist saman. Hann taldi að þau væru nú komin niður í 5% fjárlaga, var það ekki rétt? ( ÞK: Þau hefðu nálgast það.) Farin að nálgast það, já. Ég ætlaði að segja að það er nú kannski aðeins lægra en ég hef heyrt og ég vona að það fari ekki svo lágt því að ég vil taka undir það með hv. þm. að opinberar framkvæmdir eigi mjög mikilvægu hlutverki að gegna í þessu þjóðfélagi, mjög mikilvægu. Í fjölmörgum tilfellum eru þær vitanlega nauðsynlegar til þess að skapa það jafnvægi og jafnræði á milli manna, hingað og þangað um landið, sem ég veit að við öll stefnum að. En þær hafa fallið, hann sagði úr 25%. Ég hef oft sagt í ræðum úr 17%, en þær hafa sannarlega fallið mjög á undanförnum árum. (Gripið fram í.) Já, já, ég veit það, þær voru miklu meiri hér á fyrri árum.
Hv. þm. taldi að Atvinnutryggingarsjóður bætti aðeins við nýjum lánum en bætti ekki eiginfjárstöðu fyrirtækjanna. Atvinnutryggingarsjóði er einnig
heimilað að lána eigendum til að bæta eiginfjárstöðu og getur því stuðlað að því að hún batni. En ég held hins vegar að Atvinnutryggingarsjóður vinni þarfasta hlutverkið með því að losa menn úr hengingaról vanskila og dýrra lána. Honum er fyrst og fremst ætlað það. Það er sannarlega viðurkennt að fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar skapa alls ekki viðunandi rekstrargrundvöll, alveg sérstaklega þegar til lengri tíma er litið, og á mörkum að þær geri það þennan skamma tíma sem þeim mörgum hverjum er ætlað að gilda, þó sumar séu til lengri tíma að sjálfsögðu. Þá er útilokað fyrir æðimörg fyrirtæki að lækka skuldir og að koma í skil þeim ýmsu vanskilum sem þau hafa lent í. Fyrirtækin eru líklega í dag sérstaklega í vanskilum við fjölmarga aðila í þjóðfélaginu sem þau eiga viðskipti við, við verslunina, við smiðjurnar, við netagerðina o.s.frv., svo að eitthvað sé nefnt. Og áhersla mun verða á það lögð í starfsemi Atvinnutryggingarsjóðsins að skuldbreytingar og viðbótarlán, sem verða á lægri vöxtum en nú er almennt í þjóðfélaginu og til lengri tíma, verði nýtt eins og frekast er kostur til að greiða eða gera upp skuldir við slíka aðila. Það er von okkar að með þessu móti verði unnt að koma í veg fyrir þá víðtæku stöðvun sem er að verða víða um land, bæði hjá sveitarfélögum og alls konar smærri atvinnurekendum sem tengjast útflutningsgreinunum. Það er ákveðin stefna ríkisstjórnarinnar að þessar skuldbreytingar og sérstaklega það nýja fjármagn sem kemur inn verði ekki hirt af viðskiptabönkunum. Ég veit að það hefur verið gagnrýnt og í mörgum tilfellum hefur það orðið svo, t.d. í sambandi við greiðslu uppbótar á freðfisk, að mjög er undan því kvartað að viðskiptabankarnir hirði það fjármagn. Það hefur verið rætt við viðskiptabankana og mér er kunnugt um það að einhverjir þessara banka hafi tekið tillit til þess og sjái í gegnum fingur sér, ef ég má orða það svo, og leyfi útflutningsfyrirtækjum að halda a.m.k. hluta af þeirri uppbót. Á þetta mun verða lögð mikil áhersla í starfsemi Atvinnutryggingarsjóðs. Ég vil því nú leyfa mér að fullyrða að Atvinnutryggingarsjóður sé afar mikilvægur alveg sérstaklega í því skyni að bæta greiðslustöðu fyrirtækjanna.
Hv. þm. taldi að lítið áynnist ef fleira kæmi ekki til. Ég hef rakið hér í upphafi þessarar ræðu þá lækkun raungengis sem Þjóðhagsstofnun telur að sé að verða og sé að sumu leyti orðin. Það er vitanlega lagfæring þegar til lengri tíma er litið. Ég hef einnig nefnt hér að menn gera sér vonir um verðhækkun á erlendum mörkuðum o.s.frv. og ætla því ekki að fara aftur út í það. Hv. þm. ræddi um orsakir vandans. Ég gerði það einnig í upphafi míns máls. Ég tel hann ekki síst vera mistök í grundvallarstjórnun efnahagsmála. Mistök þar sem kannski er engu sérstöku um að kenna öðru en því að þær leiðir sem hafa verið farnar hæfa í grundvallaratriðum ekki íslensku efnahagslífi, eins og ég hef áður rakið.
Hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson ræddi um mannréttindabrotin sem ég hef og þegar nefnt og legg enn áherslu á að vitanlega á ekki að gera nema í
algerum undantekningum og þá aðeins um skamman tíma og eingöngu til þess að forða enn meiri mannréttindaskerðingu. Svo lít ég á atvinnuleysi. Hv. þm. sagði að reglugerðin hefði ekki verið kynnt. Ég las hana nánast frá orði til orðs í framsöguræðu minni, en að sjálfsögðu geta hv. þm. nálgast hana. Það er velkomið að útvega þeim hana ef þeir óska.
Hv. þm. ræddi nokkuð um skaðlega fjölgun togara á árunum 1980--1983 þegar ég gegndi störfum sjútvrh. Það skal vissulega viðurkennt að þá varð nokkur fjölgun togara. Hins vegar var leitast við að draga úr þeirri fjölgun jafnt og þétt. Það tók nokkurn tíma. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar, og mig undrar að enginn skuli minnast á það, að aukning í verslunar- og skrifstofuhúsnæði hér á höfuðborgarsvæðinu sé skaðleg. Mér er sagt að ein Kringla hafi kostað eins og 17 togarar og ég vil þá leyfa mér að fullyrða að margir þessara togara hafi fært í þjóðarbúið ómetanleg verðmæti. Ég man að deilt var á mig fyrir það að leyfa endurnýjun togarans Guðbjargar á Ísafirði. Ég tel nú satt að segja að það hafi verið eitt af betri verkum sem ég gerði sem sjútvrh. Það skip hefur svo sannarlega ekki verið baggi á íslenskum þjóðarbúskap. Ég held að menn ættu að líta á þá staðreynd að núna á frjálshyggjuárunum tveimur, þremur síðustu hefur verslunarhúsnæði aukist í Reykjavík svo að það mun vera að fermetratölu svipað og í Kaupmannahöfn eða meira. Hvað skyldi það kosta þjóðarbúið? Hvað skyldi það kosta komandi kynslóðir í erlendri lántöku og hvað ætli það sé mikið sparifé sem í raun er tapað í þeim furðulegu framkvæmdum?
Hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson minntist á 3. gr. bráðabirgðalaganna og ef ég skildi hann rétt þá spurði hann á grundvelli hvaða gagna sú grein væri. Þar segir, með leyfi forseta:
,,Stofna skal sjóð er nefnist Atvinnutryggingarsjóður útflutningsgreina. Hlutverk sjóðsins er að veita lán til endurskipulagningar, hagræðingar og framleiðniaukningar hjá útflutningsfyrirtækjum. Jafnframt skal sjóðurinn hafa forgöngu um að breyta lausaskuldum fyrirtækja í útflutningsgreinum í föst lán til langs tíma.``
Ég verð að viðurkenna að ég áttaði mig ekki á við hvað hv. þm. átti þegar hann spurði um grundvöllinn fyrir þessari grein. Mér sýnist hann vera nokkuð ljós. Skýrt er tekið fram hvernig sjóðurinn á að starfa og byggist það náttúrlega á þeim erfiðleikum sem við þykjumst sjá á þessu sviði hjá langsamlega flestum útflutningsfyrirtækjum á landinu. En vera má að ég hafi misskilið þetta eitthvað. Hann spyr þá aftur ef hann óskar.
Hv. þm. taldi að vandamál útflutningsgreinanna væru notuð sem spilapeningar. Ég verð að viðurkenna að það fór einnig fyrir ofan mitt höfuð eða neðan. Ég skil það ekki. Ég held að erfiðleikar útflutningsgreinanna séu engum eða fáum ljósari en þeim hv. þm., sem er nú að vísu, sé ég, ekki hér inni svo að það er kannski til lítils að tala við hann. Það eru ekki spilapeningar. Það eru svo sannarlega erfiðleikar sem við öll stöndum frammi fyrir, þjóðin
í heild sinni, sem ég hef áður sagt að voru fyrri ríkisstjórn áreiðanlega ljósir þótt henni auðnaðist ekki að ná saman um aðgerðir til þess að bæta þar úr.
Hv. þm. talaði um jafnvægi í gengismálum. Hann gagnrýndi eins og margir fleiri þær aðgerðir sem til er gripið. En sú spurning er þá eðlileg af minni hálfu: Hvað vilja hv. þm.? Hvað vildi hv. þm.? Mælir hann með gengisfellingu til þess að bæta afkomu útflutningsgreinanna? Það hef ég ekki heyrt hér og ég efast um að nokkur boði það út af fyrir sig, en um leið og menn gagnrýna það sem til er gripið er eðlilegt að spurt sé: Hvað vilja menn fremur?
Hv. þm. Júlíus Sólnes taldi mig hafa stolist til að ræða við Borgfl. Það er nú misskilningur og ég vil leiðrétta það. Það vissi öll þjóðin nema kannski formaður Alþb., ég veit það ekki, að ég átti viðræður við Borgfl. næstum því daglega. Hins vegar var það ósk Borgfl. að koma ekki inn í þær umræður fyrr en lengra væri komið í viðræðum við Alþb. Því varð það ekki fyrr en á þeirri nóttu sem hann réttilega nefndi. En áður en til þeirra viðræðna var gengið ræddi ég við formenn annarra flokka sem í stjórnarmyndunarviðræðum áttu og þar var ekkert verið að stelast til neins. Þær viðræður voru ( Gripið fram í: Við formann Alþb.?) Líka við formann Alþb., í turnherbergi í Borgartúni, eða
Rúgbrauðsgerðinni eins og hún stundum er kölluð. En hlutir gerðust fljótt og ég hefði reyndar miklu fremur viljað hafa þær viðræður á annan veg heldur en þær svo urðu. Hins vegar voru þær viðræður athyglisverðar og ég fann að það var mikil málefnaleg samstaða á milli þeirra sem þarna ræddust við.
Ég er mjög sammála hv. þm. að lánskjaravísitölu ber að afnema og sannfærist um það betur og betur. Og reyndar samþykkti fyrri ríkisstjórn 20. maí að afnema alla víxlverkun, eins og ég hygg að það hafi verið orðað í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, víxlverkun verðlags, launa, fjármagnskostnaðar og gengis. Ég vona að samstaða geti orðið um að afnema lánskjaravísitölu strax og sæmilegt jafnvægi er orðið í íslenskum efnahagsmálum. Ég hef áður lýst þeirri skoðun minni að ekki sé rétt að banna vísitölu á laun en leyfa vísitölu á fjármagn. Ég hygg að hér sé um líkt að ræða og í Finnlandi 1967 þegar samið var um það við verkalýðshreyfinguna að afnema hvort tveggja og að því ber að stefna.
Hv. þm. spurði um hvaða tryggingar Atvinnutryggingarsjóður hefði. Ég skal fúslega viðurkenna að við höfum skoðað þetta sem nokkurn veikleika. Þó finnst mér of mikið úr því gert. Ég vek athygli á því að hann hefur 2 milljarða, annars vegar 1 milljarðs framlag úr ríkissjóði og hins vegar lán sem er með ríkisábyrgð. En jafnframt tekur hann þær tryggingar sem fáanlegar eru hjá þeim fyrirtækjum sem skuldbreytt er fyrir. Þótt mér sé fullkomlega ljóst að afar lítið svigrúm er, sérstaklega á grundvelli fasteignamats, vil ég þó vekja athygli á því að sjóðnum er heimilt að taka tryggingar í brunabótamati, í vélum og búnaði sem í mörgum tilfellum eru ekki veðsett. Svo er að sjálfsögðu ljóst að mjög mörg þau
fyrirtæki sem eiga inni eða eiga fjármagn hjá útflutningsgreinunum hafa engar tryggingar í dag. A.m.k. held ég að mönnum muni þá vera ljóst að í mörgum slíkum tilfellum er sú trygging sem sjóðurinn hefur í því fjármagni sem ég nefndi áðan, og vitanlega getur verið töluvert umfram það, skárri heldur en engin trygging hjá fjölmörgum fyrirtækjum nú. Meira að segja eru mörg þessi fyrirtæki með kröfur sem hafa ekki nokkurn forgang. En um það hefur verið rætt að skapa sjóðnum ef nauðsyn krefur frekari tryggingar, m.a. með samstarfi við viðskiptabanka. Ég var áður búinn að ræða um vaxtaokrið, sem hv. þm. nefndi svo, og ég get tekið undir það með honum.
Það voru engar spurningar frá hæstv. menntmrh. en ég get tekið undir það með honum að lánskjaravísitalan er mælir, þó hún sé að mínu mati miklu verri heldur en hitamælir því að hún leiðir til þess að hitinn hækkar í þjóðfélaginu og það er af þeirri ástæðu sem ég tel að við eigum að losna við lánskjaravísitöluna.
Hv. þm. Danfríður Skarphéðinsdóttir taldi að í stjórn Atvinnutryggingarsjóðs ættu að sitja fulltrúar atvinnuvega, launafólks og e.t.v. einhverra fleiri. Þetta kom til greina, við ræddum þennan möguleika en okkur sýndist hins vegar að stjórn sjóðsins yrði afar fjölmenn ef hinar ýmsu greinar teldust eiga þar fulltrúa. Frá því var horfið. En um það má vitanlega lengi ræða hvernig stjórn slíks sjóðs á að vera skipuð. Eiga þá allar greinar útflutnings að eiga þar fulltrúa? Ég er hræddur um að það yrði gagnrýnt ef þar sætu aðeins t.d. fulltrúar frystingar. Hvað um rækjuframleiðendur, hörpudisksframleiðendur o.s.frv. Horfið var sem sagt frá því og talið að sú leið væri of flókin.
Hv. þm. taldi, ef ég hef skrifað það rétt hjá mér, að atvinnuleysi kynni að verða í einhverjum mæli. Það er sannarlega áhyggjuefni. Við Íslendingar höfum lengi sameinast um að telja atvinnuleysi hið mesta böl. Að vísu man ég fyrir nokkrum árum að menn töluðu um að mátulegt atvinnuleysi væri eðlileg stefna í efnahagsmálum. ( Gripið fram í: Hæfilegt.) Var það hæfilegt, já, það getur verið að það hafi verið hæfilegt, en ég sé ekki mikinn mun þar á. En ég á erfitt með að sætta mig við það og við höfum séð svo mörg dæmi þess að hæfilegt atvinnuleysi verður mikið atvinnuleysi og þessi ríkisstjórn er ákveðin í því að sporna gegn því eins og hún frekast getur. Ég hef áður nefnt að mjög virðist vera að draga úr þenslu. Umframeftirspurn eftir vinnukrafti hefur hrunið úr um það bil 2500 stöðum í nálægt enga eftirspurn eða a.m.k. ekki eftirspurn umfram skráða atvinnuleysingja. Það er vissulega af hinu góða og væntanlega dregur þá mjög úr því launaskriði sem atvinnurekendur hafa talið hið erfiðasta í þessu þjóðfélagi og orsök mikils kostnaðar í launum.
En ég vil taka undir það hins vegar að þegar svo mikil breyting verður á 1 1 / 2 --2 mánuðum er mikil hætta á því að yfir markið skjóti og eitthvert atvinnuleysi verði. Ríkisstjórnin mun fylgjast eins náið
með því og frekast er unnt og ég hef m.a. falið Þjóðhagsstofnun að endurtaka þær athuganir sem hún hefur verið með miklu tíðar en áður hefur verið. Félmrn. gerir hið sama. Það hefur fjölgað mjög tilkynningum um uppsagnir. Þær urðu á sjötta hundrað í septembermánuði en voru í kringum sjötíu í sama mánuði í fyrra.
Hæstv. forseti hefur beðið mig að fresta ræðunni. Ég er reyndar kominn nokkurn veginn að lokaorðum hennar, en mun þó að sjálfsögðu verða við þeirri ósk.
Herra forseti. Eins og ég reyndar sagði áðan þá var nú komið að lokum minnar ræðu en það voru örfá atriði sem ég vil nefna og spurningar sem ég vildi svara. Ég sé að vísu að þeir hv. þm. eru ekki hér en ég kem þó inn á þau atriði. Hv. þm. Danfríður Skarphéðinsdóttir spurði um þær 600 millj. kr. sem gert er ráð fyrir í 23. gr. bráðabirgðalaganna. Þessi upphæð kemur í fyrsta lagi til vegna hækkunar á ellilífeyri og öðrum tryggingagjöldum sem ákveðin var í tengslum við þá gengislækkun sem varð um 3% og í öðru lagi til niðurgreiðslu á landbúnaðarafurðum sem einnig var ákveðin. Mig minnir að til þessa verði varið um 170 millj. kr. en eitthvað nálægt 300 millj. kr. til hækkunar ellilífeyris. Þetta eru þeir meginþættir sem um er að ræða. Hv. þm. spurði einnig um desemberuppbótina sem er í launasamningum. Ekki er gert ráð fyrir að hún verði felld niður.
Hv. þm. Egill Jónsson, sem er reyndar einnig fjarverandi, spurði um 18. gr., þ.e. breytingu á búvörulögum. Með þeirri breytingu sem fram kemur í 18. gr. er fellt niður það ákvæði búvörulaga sem gerir ráð fyrir áfangahækkun til bænda. Í staðinn er tekin inn í verðgrundvöllinn vaxtagreiðsla til bænda við verðlagningu sauðfjárafurða við slátrun. En það er rétt að fram kom að þessi ákvörðun hafði verið tekin af fyrri ríkisstjórn og samþykkt af öllum flokkum sem í þeirri ríkisstjórn sátu en kom ekki til framkvæmda fyrr en nú. Reyndar var þetta rætt allmikið á sl. vetri en talið rétt að bíða umfjöllunar Stéttarsambands bænda. Sú umfjöllun fór fram og eftir það var ákveðið að hrinda breytingunni í framkvæmd. Þess má reyndar einnig geta að þetta er til samræmis við það sem var í upphaflegu frv. um búvöru, búvörulögum eins og oft er nefnt. Þótti ýmsum óeðlilegt að slíkar áfangahækkanir fylgdu þar sem um staðgreiðslu er að ræða, en það var skýrt með því að vaxtakostnaður væri ekki reiknaður í grundvelli fyrir sauðfjárafurðir.
Ég hygg að ég hafi svarað spurningum og skal því ekki lengja mál mitt. Ég vil gjarnan taka undir það sem hv. þm. Salome Þorkelsdóttir sagði að það er hægara um að tala en í að komast. Það er áreiðanlega rétt og á ekki síður við í þessu tilfelli en mörgum öðrum. Ég hef leitast við að rekja hvers vegna þessi leið er valin til lagfæringar útflutningsgreinanna en ekki aðrar. Ég hef fjallað um þær aðrar leiðir sem menn hafa rætt um í slíkri stöðu og skal fúslega viðurkenna að það er langt frá því að allt sé gott sem lagt er til með þessum lögum. En þetta var niðurstaðan eftir mjög langa umfjöllun fyrri ríkisstjórnar og eftir að mistekist hafði þar að ná
samkomulagi.