Halldór Blöndal:
Herra forseti. Hafi verið ástæða til þess að leyfa hæstv. forsrh. að ljúka sinni ræðu á þessum degi er ekki síður ástæða til þess að leyfa öðrum þm. að komast að til andsvara. Ég held að það væri bæði drengilegt og rétt og mundi gefa gott fordæmi fyrir stjórn þingsins í vetur ef þannig yrði haldið á málum að maður, svona í upphafi þings, geti treyst því að vinnubrögðin yrðu með þeim hætti að stjórnarandstaðan geti vel við unað.