Frumvarp um efnahagsaðgerðir
Miðvikudaginn 26. október 1988

     Eyjólfur Konráð Jónsson:
    Herra forseti. Ég vil aðeins vekja athygli á því sem öllum mætti nú vera ljóst að ríkisstjórnin dregur lappirnar í þessu máli, hún ætlar að fresta umræðunni til næsta þriðjudags og þetta er 1. umr. í fyrri deild. Það er ekki við stjórnarandstöðu að sakast að stjórnin komi ekki sínum málum fram. Það er alveg ljóst að það er upplausn í ríkisstjórnarliðinu og þeir þora ekki að ræða málin.