Frumvarp um efnahagsaðgerðir
Miðvikudaginn 26. október 1988

     Forseti (Jón Helgason):
    Áður en hv. 2. þm. Norðurl. e. kemur í stólinn vildi ég geta þess, sem kannski hefur komið fram áður, að ég hafði látið það koma fram við nokkra hv. þm. í deildinni að ég mundi fresta umræðunni áður en hv. 2. þm. Norðurl. e. bar fram þessa ósk sína, sem ég hafði ekki heyrt fyrr en fundurinn hélt áfram.