Frumvarp um efnahagsaðgerðir
Miðvikudaginn 26. október 1988

     Eiður Guðnason:
    Herra forseti. Vegna þessara ummæla hv. þm. Halldórs Blöndals, að hann hefði óskað eftir því sérstaklega að ráðherrar Alþfl. væru viðstaddir umræðurnar þegar hann hélt sína ræðu hér á dögunum, þá er rétt að það komi fram að hæstv. viðskrh. var þá að mæla fyrir máli í Nd. Hæstv. félmrh. hafði, að ég hygg, fjarvistarleyfi og hæstv. utanrrh. var staddur erlendis og held ég að hv. þm. Halldóri Blöndal hafi þetta allt verið mætavel kunnugt þegar hann óskaði eftir því að ráðherrar Alþfl. væru viðstaddir umræðurnar hér í deildinni.