Mengunarvarnir hjá Íslenska álfélaginu hf.
Fimmtudaginn 27. október 1988

     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að lengja þessar umræður mikið og reyndar ekki að bæta miklu við það sem kom fram í mínu svari. Ég vil aðeins ítreka það út af ummælum hv. síðasta ræðumanns að sem stendur er unnið að þessum tillögum, þessari tillögugerð af hálfu Hollustuverndar ríkisins, sem er sá aðili sem ég hlýt að beita fyrir mig í þessu efni, og það er fullt samkomulag um það hvernig framgangur málsins verður síðan. Hollustuverndin og heilbr.- og trmrn. koma inn í umræðu um hvernig staðið verði að þessum mengunarvörnum. Það er líka ljóst af þessu svari að menn eru ekki ánægðir með hvernig þeim málum er fyrir komið í dag, þ.e. mengunarvarnir eru ekki eins og menn höfðu sett sér. Mengunin er meiri en við verður unað. Hún er ekki innan þeirra marka sem menn höfðu sett sér. Það hlýtur að vera meginmarkmiðið að finna á því lausn. Meginmarkmiðið er að fá menn til þess að fallast á að það þurfi að gera sömu ráðstafanir til mengunarvarna og annars hliðstæðs atvinnureksturs hér á landi og hliðstæðs atvinnureksturs í nágrannalöndunum.
    Þetta er aðalatriðið. Hvað varðar tilvitnun í grein í Þjóðviljanum fyrr á þessu ári, þá er það líka ljóst að mín krafa eða ósk var sú í upphafi að þetta fyrirtæki sætti sömu lögum og reglum og önnur og það væri starfsleyfisskylt. Samkomulag varð, eins og hér er líka búið að koma fram ítrekað, milli ráðuneytanna um málsmeðferðina. Ég vil láta reyna á hana og sagði það í mínu fyrra svari að ef slíkt samkomulag næðist ekki yrði að taka málið upp að nýju á milli ráðuneytanna og það mun ég að sjálfsögðu gera til að fylgja eftir því meginmarkmiði að þessi mengunarmál séu í því horfi sem menn geti talið viðunandi.