Heimahjúkrun
Fimmtudaginn 27. október 1988

     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Virðulegur forseti. Hv. 3. þm. Reykv. hefur beint hér til mín fsp. um heimahjúkrun sem þingmaðurinn hefur gert ítarlega grein fyrir og aðdraganda þess máls og þeirrar lagabreytingar sem fsp. snýst um. En það hefur dregist nokkuð að gerður hafi verið samningur milli Hjúkrunarfélags Íslands og Félags háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga annars vegar og Tryggingastofnunar ríkisins hins vegar um greiðslu fyrir heimahjúkrun.
    Fyrir þessu eru einkum tvær ástæður. Hin fyrri er sú að lengi vel var ágreiningur milli hjúkrunarfélaganna og Tryggingastofnunarinnar um þær reglur sem gilda skyldu um skilyrði fyrir greiðslum sjúkrasamlaga vegna heimahjúkrunar. Ágreiningur þessi tók m.a. til þátta eins og hver ætti að staðfesta nauðsyn hjúkrunar og hjúkrunarþörf, hver ætti að gefa út tilvísun á hjúkrun, hvort það væru læknar eingöngu eða hvort fleiri heilbrigðisstéttir eða heilbrigðisstofnanir gætu gefið slíka tilvísun. Hjúkrunarfræðingarnir töldu að ýmislegt í þessum reglum stæðist ekki gagnvart lögum og reglurnar mundu hindra störf hjúkrunarfræðinga við heimahjúkrunina.
    Lögfræðingur Tryggingastofnunar ríkisins var fenginn til að skera úr ýmsum ágreiningsatriðum í þessum efnum. Á fundi tryggingaráðs 12. febr. 1988 var ákveðið að láta ekki þessi ágreiningsatriði standa í vegi fyrir því að samningaviðræður væru teknar upp við hjúkrunarfélögin. Sl. vor voru samningar í gangi milli hjúkrunarfélaganna og Tryggingastofnunarinnar þar sem reynt var að komast að samkomulagi um grundvöll að gjaldskrá og notkun hennar. Síðasti samningafundur var í júnímánuði og náðist ekki samkomulag á þeim fundi. Samningar lágu síðan niðri í sumar og hafa ekki verið teknir upp að nýju nú á haustmánuðum.
    Síðari ástæðan er sú að í bráðabirgðalögum ríkisstjórnarinnar frá 28. sept. sl. er ákvæði um að hækkun launa og hvers konar endurgjalds fyrir unnin störf sé óheimil til 15. febr. 1989. Því lítur heilbr.- og trmrn. svo á að ekki sé heimild til að gera nýja samninga um útgjöld Tryggingastofnunar ríkisins eða gera breytingar á eldri samningum til hækkunar meðan lögin eru í gildi. Þetta hefur ráðuneytið tilkynnt tryggingaráði með bréfi dags. 5. okt. sl.
    Hitt er svo aftur á móti annað mál og um það kunna að vera skiptar skoðanir hvort skynsamlegt hafi verið að gera þá breytingu á 43. gr. almannatryggingalaganna þess efnis að hjúkrunarfræðingar geti tekið að sér að veita einstaklingum heimahjúkrun á grundvelli greiðslna úr sjúkrasamlögum. Meginrökstuðningur fyrir þessari breytingu á sínum tíma var það álit manna að stór hluti menntaðra hjúkrunarfræðinga væri ekki í starfi á heilbrigðisstofnunum vegna hins óreglulega vinnutíma og vegna þess hversu erfitt er að samræma vaktavinnuna ýmsum öðrum þáttum hins daglega lífs, svo sem heimilisstörfum, vinnutíma maka,

áhugamálum fjölskyldu o.s.frv.
    Tilgangur þessara breytinga var því sá að hvetja hjúkrunarfræðinga sem ekki eru starfandi inni á sjúkrastofnunum til starfa við heimahjúkrunina. Ýmsar efasemdir eru hins vegar uppi um að það muni takast með þessu móti og á það hefur einnig verið bent að hugsanlega geti þessi breyting leitt til þess að þeir hjúkrunarfræðingar sem nú eru í starfi inni á sjúkrastofnunum muni hætta þar störfum til að sinna heimahjúkruninni. Ef þetta yrði niðurstaðan hefur þessi breyting á almannatryggingalögunum ekki náð tilgangi sínum heldur þvert á móti því að eitt stærsta vandamál sem sjúkrastofnanirnar standa frammi fyrir í sínum rekstri í dag er skortur á hjúkrunarfræðingum.
    Ég er þeirrar skoðunar að gerð kjarasamninga við starfsstéttir í heilbrigðismálum sé í ógöngum. Því hef ég rætt það við hæstv. fjmrh. hvort ekki sé rétt að breyta skipulagi við gerð þeirra og mun ég á næstu vikum í samvinnu við hann koma á markvissari vinnubrögðum við þessa samningagerð. Tel ég rétt að mál það sem hér er til umræðu komi inn í þá athugun og nauðsynlegt að tillögur eða niðurstöður þess liggi fyrir fyrir miðjan febrúar nk.