Umhverfisfræðsla
Fimmtudaginn 27. október 1988

     Flm. (Kristín Halldórsdóttir):
    Hæstv. forseti. Fámennið hér inni ber reyndar með sér að eldhúsið og Þórdís hafi meira aðdráttarafl á þingheim heldur en þessi þingsalur og það sem hér fer fram og þó að það komi ekki þessu dagskrármáli við þá get ég ekki stillt mig um að geta þess að mér fyndist athugandi, þegar þingfundir eru á þessum tíma, að gera hlé á fundi svo að samviskusamir þm. geti nært sig eins og aðrir. En það er nú annað mál.
    Till. var lögð fram snemma á síðasta þingi en hlaut ekki afgreiðslu okkur flytjendum til mikilla vonbrigða. Okkur finnst það satt að segja svo sjálfsagt sem í till. felst og jafnframt svo mikilvægt að það er okkur óskiljanlegt að hv. alþm. þurfi að velta mikið vöngum yfir svona till. Það er kannski þeim mun óskiljanlegra sem allir þingflokkar telja sig hafa áhuga og skilning á umhverfismálum og yfirleitt eru alltaf einhverjir úr öllum þingflokkum tilbúnir að lýsa stuðningi við mál sem hér koma fram og horfa til bóta í þessum málaflokki.
    Það sem hér er lagt til er að okkar mati grundvallaratriði ef við ætlum að snúa við óheillaþróun í umhverfismálum og ganga í lið með náttúrunni. Till. er á þskj. 6 og meðflytjendur eru hv. þingkonur Danfríður Skarphéðinsdóttir, Guðrún Agnarsdóttir, Guðrún J. Halldórsdóttir, Kristín Einarsdóttir og Málmfríður Sigurðardóttir. Till. er stutt, einföld og skýr, með leyfi hæstv. forseta: ,,Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að efla og samræma fræðslu um umhverfismál í grunnskólum og framhaldsskólum landsins og á meðal almennings.``
    Það er nú því miður svo, eins og stendur í grg. með till., að maðurinn sem svo lengi hefur litið á sig sem herra jarðarinnar er langt á veg kominn með að tortíma umhverfi sínu og þar með sjálfum sér og verði ekki snarlega snúið af þeirri braut erum við að bregðast afkomendum okkar með því að fá þeim í hendur verra umhverfi en okkur var trúað fyrir og við getum ekki afsakað okkur með því að við höfum ekki vitað betur.
    Staðreyndirnar blasa við allt í kringum okkur, studdar margháttuðum rannsóknum og mælingum sem upplýsa okkur um jarðvegs- og gróðureyðingu, ofnýtingu auðlinda og mengun í lofti, vatni og sjó sem stefnir öllu lífi í voða, jafnvel þótt unnt yrði að koma í veg fyrir mestu ógn lífs á jörðu, kjarnorkustyrjöld.
    Einstaklingar, samtök, ríkisstjórnir og alþjóðastofnanir svo sem Sameinuðu þjóðirnar hafa safnað upplýsingum og sett fram stefnumörkun um hvað gera má til úrbóta svo að maðurinn gangi ekki stöðugt á umhverfi sitt og tortími með því sjálfum sér að lokum. Mönnum er löngu orðið ljóst að það er ekki nóg að taka frá og friða skika hér og þar, þótt það sé líka nauðsynlegt. Við verðum að horfa á jörðina sem heild og skilja þær takmarkanir sem náttúran setur okkur um leið og við notum og njótum þeirra auðlinda sem hún gefur. Við verðum að skilja að maðurinn á ekki að vera drottnari náttúrunnar, heldur er hann hluti af henni.

    Íslendingum er tamt að telja umhverfismál í góðu lagi hér á landi, dyggilega studdir af erlendum ferðamönnum sem teyga að sér hreina loftið, dásama tært vatnið og falla í stafi yfir óbyggðum landsins. En þótt við búum enn við minni mengun en helstu iðnríki heims fer því fjarri að við höfum efni á að hreykja okkur og vitna ég nú m.a. til umræðna um fsp. hér fyrr í dag um mengun vegna álversins í Straumsvík. Þá má einnig minna á ofnýtingu fiskistofna, gegndarlausa gróðureyðingu og linku við endurheimt og varðveislu landgæða, hirðuleysi í umgengni um viðkvæm landsvæði, óskipulagðar veiðar villtra dýra, mengun frá verksmiðjum eins og áðan var minnst á, hömluleysi í notkun einnota umbúða sem sömuleiðis var til umræðu í fyrirspurnatíma fyrr í dag, óviðunandi ástand í frárennslismálum, kæruleysi um varnir gegn olíumengun, slæman frágang á úrgangi og sinnuleysi um endurnýtingu og endurvinnslu. Hér verður að snúa við blaðinu og ganga í lið með náttúrunni. Þessar staðreyndir allar blasa í rauninni við og enginn ber á móti þegar þær eru tíundaðar. Þó gengur ótrúlega hægt að merja fram nokkrar úrbætur og er það verulegt umhugsunar- og áhyggjuefni.
    Örfáar tillögur fengust samþykktar á síðasta þingi varðandi þessi mál og gekk ekki þrautalaust að fá þær í gegn þrátt fyrir fögur orð um úrbætur í starfsáætlun þáv. ríkisstjórnar.
    Ég minnist t.d. tillagna um blýlaust bensín sem m.a. hæstv. forseti kannast mætavel við og tillögu um setningu reglna um einnota umbúðir sem eftir mikla eftirgangsmuni fengust samþykktar í allshn. þar sem ég átti sæti. Hins vegar entist mönnum í hv. félmn. Sþ. ekki veturinn í fyrra til þess að ræða og taka ákvörðun um þá einföldu og skýru tillögu um umhverfisfræðslu sem er nú endurflutt á þskj. 6 en hafði málanúmerið 10 á síðasta þingi.
    Núv. ríkisstjórn gefur umhverfismálum þó nokkurt rúm og vægi í málefnasamningi sínum og lýsir þar yfir að fræðslustarf á sviði umhverfismála verði aukið. Forveri hennar gerði það reyndar líka, næstum orðrétt um sama efni, og nú er því að sjá hvort hugur fylgir eitthvað frekar máli hjá þeim sem
nú ráða. Meðferð till. gæti gefið vísbendingu um það og þykir mér nú afleitt og miklu miður að hæstv. menntmrh. er ekki viðstaddur þessa umræðu en fjarvist hans er með vitund og leyfi hæstv. forseta svo sem fram kom í upphafi þingfundar hér í dag. Hins vegar er hér alþekkt áhugafólk um þessi efni úr sama flokki og hæstv. ráðherra og á ég bæði við hæstv. forseta og hv. 2. þm. Austurl. og munu þau e.t.v. vera svo væn að bera þessi orð til hæstv. ráðherra.
    Það er skoðun okkar sem flytjum till. að stóraukin þekking og skilningur á náttúrunni sé það eina sem getur forðað manninum frá því að þurrausa auðlindir jarðar og eyðileggja það umhverfi sem hann lifir í og að því þarf að vinna án tafar með skipulegum hætti og á öllum stigum þar sem því verður við komið. Það er mála sannast að þrátt fyrir ákvæði um umhverfisfræðslu í grunnskólalögum og í lögum um náttúruvernd er slík fræðsla ákaflega tilviljanakennd og

af skornum skammti. Má vafalaust ýmsum um kenna en fyrst og fremst er þó sökin stjórnvalda því það er ekki nóg að setja ákvæði í lög, það verður einnig að skapa skilyrði til að framfylgja þeim. Það er t.d. til lítils að leggja Náttúruverndarráði þá kvöð á herðar að það ,,hafi forgöngu um fræðslu fyrir almenning um náttúru landsins og leitist við að efla áhuga á náttúruvernd, m.a. með útgáfustarfsemi, kynningu í skólum og fjölmiðlunartækjum`` eins og segir í lögum um náttúruvernd frá 1971, ef því er ekki gert kleift að ráða starfsfólk til að sinna þessari lagaskyldu.
    Náttúruverndarráð hefur vissulega sinnt umhverfisfræðslu eftir föngum þrátt fyrir manneklu og lítil auraráð og sjálfsagt er að geta um gagnmerka starfsemi Landverndar og fleiri samtaka áhugamanna sem hafa lagt sitt af mörkum í þessum efnum. Það er ákvæði í grunnskólalögum sem lýtur að umhverfisfræðslu, en því þarf að fylgja eftir með útgáfu námsefnis og þjálfun kennara. Annars kemur það fyrir lítið. Samkvæmt upplýsingum námsstjóra í náttúrufræðum, Þorvaldar Arnar Árnasonar, er umhverfisfræðslu sinnt í heldur vaxandi mæli í grunnskólum en er þó fyrst og fremst undir einstökum skólum og kennurum komið hvernig til tekst.
    Það hefur því miður verið lítil eftirspurn eftir námskeiðum í umhverfisfræðslu fyrir starfandi kennara og í framhaldsskólum er mjög lítið um umhverfisfræðslu nema að því marki sem vistfræði er innifalin í líffræði. Það er því deginum ljósara að það þarf að styrkja grunninn og byggja myndarlega ofan á hann.
    Á ráðstefnu sem haldin var á vegum UNESCO í Tiblisi árið 1977 voru markmið umhverfisfræðslu skilgreind á eftirfarandi hátt:
    1. Að vekja athygli einstaklinga og hópa á umhverfi sínu og þeim vandamálum sem þar bíða úrlausnar.
    2. Að auka þekkingu og skilning fólks á náttúrunni og umhverfi sínu í heild svo það geri sér betur grein fyrir áhrifum gerða mannsins.
    3. Að efla viðhorf ábyrgðar gagnvart umhverfi og vilja til að vinna að náttúruvernd og fegrun umhverfis.
    4. Að þjálfa nemendur í að skilgreina og leysa umhverfisvandamál.
    5. Að auka hæfni til að vega og meta ákvarðanir og athafnir út frá margvíslegum forsendum, svo sem vistfræðilegum, fjármálalegum, félagslegum, fagurfræðilegum, hagfræðilegum, uppeldislegum o.s.frv.
    6. Að stuðla að þátttöku í fyrirbyggjandi aðgerðum.
    Á sömu ráðstefnu var enn fremur samþykkt að í umhverfisfræðslu bæri að leggja áherslu á eftirfarandi atriði:
    1. Að umhverfisfræðsla þurfi að fjalla um umhverfið í heild, bæði náttúruna og það sem menn hafa gert, bæði náttúrufræði og samfélagsfræði.
    2. Að umhverfisfræðsla þurfi að vara ævilangt og fara fram á öllum skólastigum, auk hvers kyns fræðslu utan skóla.
    3. Umhverfisfræðsla á að vera ófagbundin að mati

þessarar ráðstefnu og hluti af kennslu í öllum námsgreinum á öllum skólastigum. Í námsskrá og kennsluleiðbeiningum ber að taka sérstakt tillit til umhverfisfræðslu.
    Ég vil þó nefna í þessu sambandi að þó að ég sé sammála því að umhverfisfræðsla eigi að vera hluti af kennslu í öllum námsgreinum tel ég engu að síður að það þurfi að leggja sérstaka áherslu á hana sem slíka.
    4. Það þurfi að fræða um nánasta umhverfi og síðan málefni héraðsins, landsins og heimsins alls.
    5. Áherslu þarf að leggja á þau vandamál sem efst eru á baugi á hverjum stað, en taka jafnframt mið af sögunni og spá um nánustu framtíð.
    6. Fræðslan eigi að stuðla að því að einstaklingar, fjölskyldur, félög og þjóðir taki ábyrgð á umhverfinu.
    7. Umhverfisfræðsla þurfi að stuðla að því að tekið sé fullt tillit til verndunarsjónarmiða og hugsanlegra skaðlegra afleiðinga þegar verk eru skipulögð.
    Hæstv. forseti. Um allan heim er nú smám saman að glæðast skilningur manna á og vitund um nauðsyn þess að ganga um náttúruna með virðingu og nærgætni, bæta fyrir náttúruspjöll og sjá til þess að afkomendur okkar fái notið a.m.k. sömu náttúrugæða og núlifandi kynslóðir. Sú hugarfarsbreyting gengur þó allt
of, allt of hægt. Mannkynið gæti fallið á tíma. Íslendingar gætu orðið fyrirmynd annarra í þessum efnum ef vilji væri fyrir hendi. Til þess þarf markvissa öfluga umhverfisfræðslu í skólum og á meðal almennings. Aukinn skilningur er lykilorðið og sá er tilgangurinn með flutningi þessarar till. sem ég legg til að verði vísað til síðari umr. og til hv. félmn. Sþ. að lokinni þessari umræðu.