Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Þó ég hafi komið fyrr á þessum morgni í ræðustól get ég ekki orða bundist af því tilefni sem hér gefst með umræðum um 6. mál, till. til þál. um umhverfisfræðslu. Ég ætla að vísu ekki að fara mjög mörgum orðum um þetta mál hér og nú. Ég ræddi þetta í fyrra þegar hliðstætt mál var flutt hér snemma á þingi, lýsti eindregnu fylgi við tillöguna og leyfði mér að minna á það í leiðinni að einhvern tíma fyrr á árum hefði ég reynt að vekja athygli á þessu máli, bæði utan þings og einnig innan, með tillöguflutningi. Það er því ánægjuefni að þetta mál skuli nú vera flutt af heilum þingflokki hér öðru sinni, ekki ánægjuefni að það skuli hafa strandað í fyrra heldur hitt að flm. skuli ekki hafa gefið upp vonina að fá vilja þingsins í ljós varðandi þetta mál.
Ég var í hópi þeirra sem reyndu að greiða götu þessarar tillögu í gegnum félmn. þingsins, en hún fékk ekki þær undirtektir sem vert var á þeim vettvangi og mig minnir að því hafi verið borið við að það væru svo góð áform uppi hjá framkvæmdarvaldinu í þessu máli að ekki væri ástæða til þess af hálfu löggjafarsamkomunnar að lýsa vilja sínum í málinu. Þetta heyrum við býsna oft í sambandi við mál sem eru flutt á Alþingi, að menn hlaupa til og vilja standa á höfundarréttinum eða deila um hver höfundarrétturinn sé í góðum málum. Ég hef aldrei skilið það viðhorf. Ég hef alltaf litið svo til að framkvæmdarvaldinu hljóti að vera akkur í því að hafa vilja þingsins, ég tala nú ekki um ef hann fellur í sama farveg og hugmyndir eru uppi um hjá framkvæmdarvaldinu að þoka málum áfram, því að það er nú einu sinni Alþingi sem þarf líka að koma til til að framkvæmdarvaldið geti gert eitthvað með sín góðu áform, þ.e. ef fjármagn þarf að koma til eins og sannarlega er þörf á í tengslum við þetta mál og framgang þess. Af tveimur ástæðum er ég heldur bjartsýnni á framgang þessa máls, ekki vegna orða stjórnarsáttmála einna, þau hafa því miður ekki alltaf haft innistæðu, heldur vegna hins að ég veit um góðan hug núv. menntmrh. til þessa máls. Hann hefur rætt það við mig, og er það þó ekki hans sem ráðherra að segja til um hvort þetta mál eigi að fá hér framgang eða ekki, heldur okkar þingmanna almennt og hans þar á meðal. Ég vænti þess, þar sem ég á sæti í félmn. og er reyndar formaður hennar nú, að við þurfum ekki að bíða mjög lengi eftir því að á þessu máli verði tekið á vettvangi nefndarinnar og úr því fáist skorið hvort vilji er fyrir því að það komi aftur inn í þingsali. Ég vænti þess að það reynist vera áður en árið er allt.
Undir mál hv. 1. flm. get ég tekið í einu og öllu, það ágæta mál sem hún flutti. Og vegna þess að hún minnti á að þó að hér væri ýmislegt í skárra horfi en verst gerist erlendis, eru samt umhverfisspjöllin sem orðið hafa á Íslandi í 1100 ára sögu búsetu svo stórfelld að í rauninni er leitun á Evrópulöndum sem eru jafnilla farin vegna búsetunnar og Ísland. Þar á ég auðvitað við eitt stærsta umhverfisvandamál hérlendis, gróður- og jarðvegseyðingu sem blasir við hverjum
manni og mikið er talað um að ráða þurfi bót á. Umhverfisfræðsla gæti orðið til þess að menn stæðu þar betur á vaktinni, væru þar betur vakandi um nauðsynlegar úrbætur eins og á svo fjölmörgum öðrum sviðum þar sem þekkingin og rétt hugarfar þurfa að ryðja brautina.