Matthías Á. Mathiesen:
Virðulegi forseti. Hæstv. fjmrh. hefur lagt hér fram greinargerð um afkomu ríkissjóðs janúar--september 1988 og gert grein fyrir þeirri skýrslu sem hann hefur lagt fram ásamt og með nokkrum þeim atriðum sem hann taldi eðlilegast og réttast að fylgdu þeirri skýrslu sem hann hér hefur gert grein fyrir.
Ástæðan fyrir þessari umræðu utan dagskrár hefur verið rakin hér m.a. af hv. 1. þm. Reykv. Ég tel það rétt og ég þakka hæstv. fjmrh. þessa greinargerð sem hann hefur lagt fram. Hún hefði kannski mátt koma fram fyrr, kannski áður en hann brá sér í Garðabæ til þess að gefa þar stórar yfirlýsingar á fundi þeirra alþýðubandalagsmanna til þess að forðast þær umræður, ef ástæða var til þess þá að forðast þær, sem fram hafa farið, en vissulega gáfu þær fyrrv. forsrh. og öðrum ráðherrum úr fyrrv. ríkisstjórn tilefni til þess að spyrja hæstv. ráðherra. Niðurstaðan af þeirri fyrirspurn er þessi skýrsla af hinu góða og af sama toga spunnið er það bréf sem ég ritaði forsetum þingsins í gær til þess að fá fram á Alþingi greinargerð um þau málefni sem við fjöllum um, þ.e. afkomu ríkissjóðs fyrstu níu mánuði þessa árs. Í þessu bréfi sem ég ritaði forsetum 28. okt. 1988 segir svo, með leyfi forseta:
,,Í framhaldi af skýrslu Ríkisendurskoðunar frá í ágúst um framkvæmd fjárlaga fyrri helming ársins 1988 og með skírskotun til yfirlýsinga um afkomu ríkissjóðs á þessu ári leyfi ég mér með vísan til 3. gr. laga nr. 12/1986, um Ríkisendurskoðun, að óska eftir því við forseta Alþingis að þeir feli Ríkisendurskoðun að gera skýrslu um stöðu A-hluta ríkissjóðs þann 30. sept. 1988 og horfur um afkomu í lok þessa árs. Í skýrslunni sem lögð verði fram til alþm. hið fyrsta verði m.a. gerð grein fyrir eftirfarandi:
1. Hvaða tekjustofnar hafa gefið minni tekjur en áætlun fjárlaga 1988 gerði ráð fyrir og orsakir þeirra breytinga metnar.
2. Hvaða útgjaldaliðir hafa helst hækkað frá áætlun fjárlaga 1988 og gerð grein fyrir ástæðum þeirra hækkana.
3. Yfirlit yfir aukafjárveitingar samþykktar til septemberloka 1988.
4. Yfirlit yfir starfsmannahald hjá ráðuneytum og ríkisstofnunum A-hluta til 30. sept. samanborið við sl. ár.
5. Hvaða áhrif efnahagsaðgerðir núverandi ríkisstjórnar hafi á afkomu ríkissjóðs á þessu ári.``
Ég taldi eðlilegt og rétt að vísa til laga sem sett voru á sl. ári um Ríkisendurskoðun og óska eftir því að skýrsla svipuð þeirri sem Ríkisendurskoðun gerði fyrr á þessu ári yrði nú gerð fyrir níu mánuði ársins og hún lögð fyrir Alþingi og þar sérstaklega skoðuð þau atriði sem hér er vikið að. Vissulega eru í þeirri greinargerð sem hæstv. fjmrh. hefur lagt fram vissar upplýsingar. Hins vegar er hér um að ræða þá stofnun sem Alþingi leitar til til þess að fá sínar upplýsingar og óskar eftir mati hennar, þ.e. hlutlausu mati á þeim atriðum sem hér greinir.
Fyrr í þessum umræðum flutti hæstv. fyrrv. fjmrh.,
núv. utanrrh., nokkurs konar varnarræðu í sambandi við það mál sem hér hefur verið til umræðu og verð ég að segja, eins og hér var vikið að áðan: Stundum hefur sá hæstv. ráðherra gefið stórar yfirlýsingar, en mikið fannst mér honum brugðið í sinni ræðu í ræðustól hér áðan. Hann spurði: Hver ber ábyrgð? Auðvitað ber fjmrh. ábyrgð á fjmrn. Það liggur alveg ljóst fyrir. Ég er eiginlega hissa á því að hæstv. fyrrv. fjmrh. skuli yfirleitt velta því fyrir sér. Hitt liggur og ljóst fyrir, eins og hér hefur komið fram, að á aðgerðum ríkisstjórnarinnar ber auðvitað ríkisstjórnin öll ábyrgð og forsrh. Þorsteinn Pálsson og ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar ber auðvitað ábyrgð á því sem hún aðhafðist þann tíma sem hún sat.
Hæstv. utanrrh. rakti ýmis skjöl vegna þess að honum fannst að fram hefði komið að ýjað hefði verið að því að hann hefði verið með blekkingar og hv. 1. þm. Reykn. gat þess í hverju það hefði verið fólgið. Þegar skýrsla Ríkisendurskoðunar var birt í ágústmánuði kom í ljós að þar var niðurstaða sem var með töluvert öðrum hætti en menn höfðu gert sér grein fyrir um ríkisfjármálin. Áður hafði Þjóðhagsstofnun, sem metur stöðu þjóðarbúskaparins, sent frá sér skýrslu og hún komst að annarri niðurstöðu en hæstv. þáv. fjmrh. taldi að væri rétt og komst að annarri niðurstöðu heldur en fjmrn. undir hans stjórn taldi að Þjóðhagsstofnun hefði átt að komast að. Þjóðhagsstofnun er sjálfstæð og fer að sjálfsögðu ekki eftir því hvað eitt ráðuneyti segir. Þjóðhagsstofnun aflar sér að sjálfsögðu upplýsinga hjá öllum ráðuneytum og vinnur úr þeim. Niðurstaða Þjóðhagsstofnunar varð allt önnur en fjmrn. hafði gert ráð fyrir og látið frá sér fara og það varð því tilefni til þess að hæstv. fjmrh. lenti í orðaskiptum við Þjóðhagsstofnun og lýsti því yfir að það sem frá Þjóðhagsstofnun hefur komið væri, eins og sagt hefur verið, ,,rangfærslur að yfirlögðu ráði``, en það var haft eftir hæstv. þáv. fjmrh. í Alþýðublaðinu.
Nokkru seinna, eða 21. júlí, gaf fjmrn. út fréttatilkynningu. Að henni vék hæstv. fjmrh. áðan og hann sagði að þar hefði hann gert grein fyrir að áætlaður halli ríkissjóðs á árinu 1988 væri 1 milljarður. Þetta er ekki rétt. Ég er hér með fréttatilkynninguna þar sem segir: ,,Afkoma ríkissjóðs á fyrri
árshelmingi 1988 og horfur til ársloka.`` Þar stendur, með leyfi forseta: ,,Miðað við stöðuna, eins og henni hefur verið lýst hér að framan, stefnir í um það bil 700 millj. kr. halla á ríkissjóði á árinu í heild ef ekkert óvænt gerist.``
Það er svo í ágústmánuði sem skýrsla Ríkisendurskoðunar er lögð fram og það hefur verið vikið að henni í ræðum þm. og ég sé ekki ástæðu til þess að bæta neinu þar við, en vil geta þess að frá fjmrn. kemur skjal 26. ágúst sem segir að rekstrarafkoma ársins 1988 sé áætluð í mínus 693 millj. kr., þ.e. 700 millj. eins og hafði verið sagt mánuði fyrr. Aftur gerist það svo að hæstv. fjmrh. fellir sig ekki við útkomu þá sem Ríkisendurskoðun hafði fengið eftir mat á stöðu framkvæmda á
fjárlögum ársins 1988, og semur greinargerð sem hann leggur fram. Þar gagnrýnir hann þá skýrslu á ýmsan hátt og segir m.a., með leyfi forseta, í skjali sem dagsett er 16. ágúst:
,,Af þessu má ljóst vera að margar þær fullyrðingar sem fram eru bornar í skýrslu Ríkisendurskoðunar krefjast nánari útskýringa og svara. Krafan hlýtur því að vera sú að þau svör liggi fyrir áður en málið fær frekari umfjöllun. Í fjmrn. er nú unnið af kappi við að afla þeirra.`` Það efaðist enginn um það að þar væri unnið af kappi, enda var skjalið frá fjmrn., frá nýrri hagdeild sem hæstv. þáv. fjmrh. hafði sett á laggirnar, en eins og menn muna voru bæði settar upplýsingadeild og hagdeild á laggirnar í fjmrn. til þess að sjálfsögðu að koma á framfæri öllum þeim upplýsingum sem fjmrn. taldi sig þurfa að koma á framfæri og auðvitað var það hagdeildin sem útbjó allar þær upplýsingar sem þurfti að koma á framfæri. Ég sé hins vegar að núv. hæstv. fjmrh. lætur ekki stimpla það sem frá honum kemur með hagdeild fjmrn., heldur er það á ábyrgð hans sjálfs. Ég held að það sé líka jafnskynsamlegt til þess að menn fari nú ekki að rugla því saman hvort það sem segir í þessum skjölum sé komið frá hagdeild hæstv. fyrrv. fjmrh. eða frá hæstv. núv. fjmrh.
Þetta var umsögn fjmrn., hagdeildarinnar, um skýrslu Ríkisendurskoðunar og það stóð svo ekki á því að frá fjmrn. kæmi skjal. Það er lagt fram á ríkisstjórnarfundi 1. sept. 1988, fjárlagagerð fyrir árið 1989, það er verið að undirbúa fjárlögin fyrir 1989. Þar er fyrst fjárlagafrv. fyrir 1989, staða 31. ágúst 1988. Með leyfi forseta segir þar:
,,Rekstrarafkoma ríkissjóðs samkvæmt þessum drögum er sem hér segir samanborið við 1988: Endurskoðuð áætlun fyrir 1988 mínus 693 millj.,,, 700 millj., og enn erum við komin fram í september, 1. sept., þegar þessi tala er nefnd og síðan kemur fjárlagafrv. sem unnið er að fyrir 1989 og það er með halla upp á rúmlega 3,2 milljarða.
Enn er komið með skjal og það er 2. sept., daginn eftir. Nú er það greiðslu- og eignadeild fjmrn. sem hefur komist í að gera skýrsluna fyrir ráðherrann og þá er staðan aðeins farin að breytast því að þá er verið að gera samanburð á hugmyndum fjmrn. og Ríkisendurskoðunar. Ráðherrann kemst að þeirri niðurstöðu, þ.e. greiðslu- og eignadeildin, að nú verði hallinn 1 milljarður 170 millj. í rekstri en greiðsluafkoman 870 á móti rekstrarhalla sem metinn var hjá Ríkisendurskoðun upp á 1,8 milljarða eða 1 milljarð 830 millj. kr.
Af þessu er ljóst að frá hæstv. fyrrv. fjmrh. eru að koma upplýsingar til ríkisstjórnar, til ráðherra, fram í septembermánuð sem segja: Hallinn á ríkisfjármálunum 1988 verður 700 millj. Í ágústmánuði er hins vegar gerð grein fyrir þessu af upplýsingafulltrúa ríkisstjórnarinnar, Bjarna Sigtryggssyni, í Morgunblaðinu, þar sem hann segir, með leyfi forseta, nákvæmari tölur um halla ríkissjóðs væntanlegar. Þá segir hann þar á einum stað: ,,Þá hefur ráðuneytið sett þann fyrirvara að yrði ekki
gripið til sérstakra ráðstafana mundi 180 millj. kr. vaxtakostnaður vegna landbúnaðarmála bætast við 700 milljónirnar.`` Þarna er dæmið orðið 870 millj. og það er einmitt sú tala sem var í skjalinu frá 2. sept. og var greiðsluafkoma dæmisins.
Hér stöndum við frammi fyrir því að fjmrn. er búið að gefa frá sér greinargerðir. Hæstv. utanrrh., fyrrv. fjmrh., rakti áðan ástæðurnar fyrir því hvernig komið væri og þá lagði hann út af þeirri greinargerð sem hæstv. núv. fjmrh. hefur lagt fram. Hann taldi upp fjölmörg atriði upp á milljarða sem auðvitað breyttu dæminu sem ríkisstjórnin hafði fjallað um og samþykkt, en mér er spurn: Mundi hann ekki eftir því sem gert hafði verið þegar hann kom út af ríkisstjórnarfundi eða fékk fjmrn. ekkert um þetta að vita eða var ákvörðunin tekin og stungu menn höfðinu í sandinn og létu sem ekkert væri?
Ég fæ ekki séð hvernig hæstv. fyrrv. fjmrh., utanrrh., getur í raun og veru sagt Alþingi frá því að slíkar ákvarðanir hafi verið teknar, komið og sagt: Ég mat ríkissjóðshallann 700 millj. kr. Það skjal sem hann las svo upp úr áðan og ég vakti athygli á í sambandi við þingsköp hafði ég aldrei séð og það hefur ekki verið lagt fram á ríkisstjórnarfundi og eftir að hann var kominn úr ræðustól sagði ég það við hann og ég held hann hafi sagt að hann muni ekki hvort það hafi verið lagt fram á ríkisstjórnarfundi eða ekki.
Þegar svo kemur fram í septembermánuð verða menn varir við hver staðan er hjá Seðlabankanum og hún segir alltaf nokkuð um það hvernig útkoman muni vera og ég trúi því að hæstv. núv. fjmrh. hafi alveg gert sér grein fyrir því strax
þegar hann fékk dagmiðana í fjmrn. inn á sitt borð og sá hvernig viðskiptareikningurinn stóð í Seðlabankanum hver útkoman yrði þegar árinu væri lokið, þegar komið væri fram á gamlársdag ef ekkert yrði að gert í neinum efnum hvað snerti tekjuauka eða því að draga úr útgjöldum ríkissjóðs.
Í upphafi árs eða um síðustu áramót er viðskiptareikningurinn hjá Seðlabankanum í skuld um 870 millj. kr., að mér er tjáð, en hins vegar er skuldin í lok september eða um mánaðamót september og október tæpir 8 milljarðar og í septembermánuði er mér tjáð að meðaltal skulda hafi verið um 9 milljarðar í Seðlabankanum en samkomulag viðskiptaaðilans, þ.e. ríkissjóðs, við Seðlabankann hafi gert ráð fyrir að meðalskuld septembermánaðar yrði 3,6 milljarðar. Hér er því um að ræða mismun upp á 5,4 milljarða svo að það er kannski ekki óeðlilegt þó að hæstv. fjmrh. hafi látið tölurnar vera töluvert hærri þegar hann var á fundinum suður í Garðabæ og nefnt þar 5, 7, 9, ég man ekki hverjar þær voru þegar hann lauk talningunni en hér segir staða ríkissjóðs, eins og hún var við Seðlabankann 30. sept., okkur nokkuð hver útkoman muni verða.
Þegar allt þetta er skoðað hljótum við að spyrja: Hvernig var unnið að þessum málum í fjmrn.? Ég vil ekki kannast við að slík vinnubrögð hafi verið þar og ég vil ekki fyrr en allt um þrýtur trúa því að ekki sé
hægt að breyta þar um og tryggja það að eitt af hlutverkum fjmrh., yfirmanns fjmrn., sé að sjálfsögðu að gera ríkisstjórn og Alþingi grein fyrir hlutum eins og þeir eru réttastir á hverjum tíma. Meiri kröfu er ekki hægt að gera. Þegar menn setja á stofn heila hagdeild, heila upplýsingadeild, til viðbótar við það sem áður var, hefði maður mátt búast við að ekki yrði neinn mörg hundruð millj. kr. mismunur sem væri verið að tala um. Nú yrði þetta kannski komið ofan í 10 millj. eða eitthvað örlítið því þarna væri svo vel að þessum málum unnið.
Þegar farið er yfir þetta og það skoðað þá sjáum við best hversu skynsamlegt það var fyrir Alþingi að breyta lögunum um Ríkisendurskoðun. Það mál tók langan tíma og ég held ég muni það að það er fyrst 1977 frekar en 1976 að hæstv. núv. sjútvrh. Halldór Ásgrímsson flytur frv. um það að Ríkisendurskoðun verði flutt frá fjmrh., úr því ráðuneyti, því að Ríkisendurskoðun var þar sérstök deild eða sér ráðuneyti sem slíkt, yfir til Alþingis undir stjórn forseta Alþingis og þá sem slíkt eftirlitsaðili í sambandi við fjárlög því að hér er fjárveitingavaldið. Að svo miklu leyti sem ekki er um að ræða aukafjárveitingar eru þær í höndum fjmrh. en góðir fjmrh. veita ekki slíkar aukafjárveitingar að mínum dómi öðruvísi en að Alþingi hafi þá fyrst tekið ákvörðun um að í viðkomandi útgjöld skuli ráðist og að um misreikning hafi verið að ræða eða þá að ríkisstjórn tekur ákvörðun um að fjármunum skuli varið til ákveðinna hluta og stjórnarflokkarnir hafa fjvn. að baki sér eða þann meiri hluta sem þar er og málið sé þar kynnt. Þannig tel ég að eigi að nota það vald því að vissulega þurfa ráðherrar undir ákveðnum kringumstæðum að gera hluti sem ber að á þeim tíma sem Alþingi ekki situr en þurfa afgreiðslu og þá að það sé gert í samráði við þann aðila þingsins sem er í fjvn. og fer með fjárlögin þegar þau eru til umræðu á þingi.
Það er þess vegna sem ég skrifaði forsetum Alþingis bréfið og taldi að í framhaldi af þeirri skýrslu sem Ríkisendurskoðun gerði í sumar sé hægt á tiltölulega skömmum tíma að bæta við og vinna skýrsluna til 30. sept. og ég er sannfærður um að bæði forsetar þingsins og hæstv. fjmrh. eru mér sammála um að það væri mjög gott ef hægt væri að ljúka þessari vinnu áður en fjárlagaumræðan færi fram þannig að til viðbótar við þær upplýsingar sem hæstv. fjmrh. hefur lagt fram lægi fyrir sú skýrsla sem beðið var um í viðkomandi bréfi.
Ég tel að umræðurnar sem hér fara fram séu, eins og málum var komið, af hinu góða. Þær verði til þess að Alþingi fái þær upplýsingar sem það þarf að hafa. Ég held að sá ráðherra sem brennur á hefði átt að sitja hér til þess að vera til staðar þegar þessar umræður færu fram því að vissulega er ekki að þessu leyti neitt við hæstv. núv. fjmrh. að sakast. Hitt liggur svo ljóst fyrir, og hefur verið bent á það af ræðumönnum hér á undan mér, að ýmislegt hefur hann sagt sem hann að sjálfsögðu verður látinn standa reikningsskil af þegar fjárlagaumræðan fer fram og
fjárlagaafgreiðslan síðar á þessu þingi. Þá hefur dæmið að sjálfsögðu snúist við. Þá verður það sú stefna í fjárlagafrv. fyrir árið 1989 sem menn fjalla um í meira mæli, svo og stöðu ríkisfjármálanna eins og reikna má með að hún verði við lok þessa árs.