Jafnréttisráðgjafar
Mánudaginn 31. október 1988

     Flm. (Hjörleifur Guttormsson):
    Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um jafnréttisráðgjafa, en tillöguna er að finna á þskj. 5. Flm. ásamt mér að þessu máli eru hv. þm. Kristín Einarsdóttir, Árni Gunnarsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og Valgerður Sverrisdóttir.
    Við fluttum tillögu sama efnis á seinni hluta síðasta þings, en síðan hefur bæst í hóp flm. síðasttaldi hv. þm., Valgerður Sverrisdóttir, og fagna ég þeim aukna stuðningi sem fram kemur í meðflutningi hennar. Tillagan er svohljóðandi:
    ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að ráða á vegum félmrn. þrjá jafnréttisráðgjafa til þriggja ára sem hafi það verkefni að vinna að leiðréttingu á stöðu kvenna í stofnunum og fyrirtækjum um land allt í samvinnu við starfsmenn og stjórnendur.
    Laun ráðgjafanna og annar kostnaður vegna starfa þeirra greiðist úr ríkissjóði.``
    Tillaga sama efnis fór til félmn. Sþ. eftir umræðu hér í fyrra og nefndin sendi till. til umsagnar m.a. til Jafnréttisráðs, sem á fundi sínum 3. maí sl. fjallaði um þessa tillögu, og er þessi umsögn Jafnréttisráðs birt sem fskj. með tillögunni. Ég vil vísa á kjarnann í þeirri umsögn sem kemur fram í upphafi þar sem segir: ,,Jafnréttisráð telur framkomna þáltill. mjög mikilvæga og tekur heils hugar undir bæði þáltill. og grg. tillögunnar.`` Fleira segir þar um þessi efni af hálfu Jafnréttisráðs og allt er það jákvætt varðandi það mál sem ég mæli hér fyrir.
    Hafi tillöguflutningur eins og þessi verið tímabær í fyrra eða fyrr á þessu ári, þá hefur ekkert dregið úr þýðingu þess að tekið sé á málum varðandi stöðu kvenna á vinnumarkaði, m.a. með þeim hætti sem ég mæli hér fyrir. Ég vísa til þess sem altalað er í samfélaginu að nú þrengir að í störfum. Fyrirtæki eru að fækka við sig starfandi fólki. Það er samdráttur í þjóðfélaginu, sumir tala um kreppu fram undan. Á hverjum halda menn að slík kreppa muni bitna ef litið er til stöðu kynjanna á vinnumarkaði? Ég hygg að það vefjist tæpast fyrir mönnum að svara þeirri spurningu.
    Verkefni jafnréttisráðgjafa eru hins vegar ekki þau ein að bregðast við slíkum teiknum, heldur almennt að bæta stöðu kvenna á vinnumarkaðinum, sinna þar undirstöðuþáttum til þess að leiðrétta það mikla misvægi sem þar er að finna varðandi hlut kvenna í ábyrgðarstöðum og varðandi launahlut kvenna, svo og fjölmargar hindranir sem konur rekast á í störfum innan fyrirtækja, jafnt hjá almennum vinnumarkaði sem hjá hinu opinbera, ríki og sveitarfélögum.
    Í grg. með þessari till. er vísað til nokkurra fyrirhugaðra verkefna jafnréttisráðgjafanna, eins og við flm. sjáum þau, til að ná fram leiðréttingu á stöðu kvenna. Þar er upp talið, með leyfi virðulegs forseta:
    Söfnun upplýsinga um hindranir í vegi jafnréttis og aukinna áhrifa kvenna á vinnumarkaði.
    Aðstoð við starfsmenn og stjórnendur fyrirtækja og stofnana við að móta og fylgja eftir áætlunum um jafnréttisaðgerðir.
    Upplýsinga- og skipulagsstörf þar sem m.a. verði miðlað reynslu milli fyrirtækja og stofnana um

aðgerðir í jafnréttismálum svo og vitneskju erlendis frá.
    Stuðningur við mótun og framkvæmd sérstakra verkefna á vegum stofnana og fyrirtækja sem miða að því að bæta stöðu kvenna.
    Fræðslu- og útgáfustarfsemi um jafnréttismál og vinnumarkaðinn.
    Samvinna og tengsl við starfsmannafélög, verkalýðsfélög, atvinnurekendur, ráðuneyti og ríkisstofnanir svo og sveitarfélög um aðgerðir til að bæta stöðu kvenna.
    Hvatning til stærri fyrirtækja og stofnana um að koma upp jafnréttisráðgjöf á eigin vegum.
    Menn munu spyrja: Er líklegt að þrír jafnréttisráðgjafar muni fá miklu áorkað í þeim mörgu þáttum sem hér eru upp taldir? Það er rétt að þeir þyrftu að vera fleiri. En hér er ekki lagt meira undir en svo að tímabundið verði ráðnir þrír ráðgjafar til þessara verka til þess að safna reynslu af slíkri skipan mála þótt jákvæð reynsla á þessu sviði liggi fyrir hjá öllum hinum Norðurlöndunum, a.m.k. í Svíþjóð, Noregi og Danmörku. Finnar hafa einnig sinnt þessum málum en með nokkuð öðrum hætti, en þeir eru nú einnig að taka upp ekki ósvipað fyrirkomulag og gilt hefur í meira en áratug á hinum Norðurlöndunum.
    Í umræðu um þetta mál greindi ég frá því nánar en gert er í grg. hvernig að þessum málum er staðið erlendis, á hinum Norðurlöndunum, ekki síst í Noregi. Þar liggur fyrir dýrmæt og jákvæð reynsla af starfi jafnréttisráðgjafa og þar hefur framkvæmdarvaldið fylgt eftir lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla með allt öðrum og skilvirkari hætti en liggur fyrir hér á landi. Ég ætla ekki að fara að rekja þessi efni hér nú, en vísa til þess sem fram kom í umræðu 22. mars á þessu ári um þetta mál.
    Þá vil ég benda á það að vísir að starfi í þessa átt hefur farið fram í hinu samnorræna verkefni sem gengur undir heitinu ,,Bryt`` eða ,,Brjótum múrana``
og hefur miðstöð sína á Akureyri. Þar er sérstaklega um það að ræða að auka breidd í atvinnuþátttöku kvenna, auðvelda konum að leita inn á ný svið í atvinnulífi. Veruleg reynsla hefur safnast af þessu verkefni og hliðstæðri starfsemi á hinum Norðurlöndunum sem er rekin undir sameiginlegri verkefnisstjórn.
    Varðandi þessa áherslu, að breikka atvinnuþátttöku kvenna, tek ég undir þá gagnrýni sem heyrst hefur um það að slíkt leysi engan veginn allan vanda. Það liggur raunar fyrir á hinum Norðurlöndunum að menn hafa ekki náð að leggja grunninn að því verkefni með þeim hætti sem líklegt væri til verulegs árangurs. Þess vegna hefur vinna í þessa átt og áherslur þar að lútandi tekið breytingum á hinum Norðurlöndunum. Menn hafa áttað sig á að það þarf djúpstæðari breytingar en áróðurinn einan og hvatningu til kvenna til að leita inn á ný svið. Það þarf að bæta aðstöðu þeirra í fyrirtækjunum. Það þarf að breyta viðhorfum. Það þarf að taka á þessum málum í skólakerfinu og með skipulegum hætti innan stofnana og fyrirtækja.
    Norræna verkefninu ,,Bryt`` lýkur í lok næsta árs.

Það er hins vegar samdóma álit þeirra sem fylgst hafa með því verki að æskilegt sé að þar verði framhald á. Starf jafnréttisráðgjafa eins og hér er lagt til væru skynsamleg tengsl við þetta verkefni þó svo að við hugsum verkefni jafnréttisráðgjafanna mun víðtækara en kemur fram í starfi verkefnisins ,,Brjótum múrana``. Af opinberri hálfu hefur þó verið kostað svolitlu fjármagni til þessa verkefnis þannig að ekki er eingöngu um aukningu á fjármagni af opinberri hálfu að ræða nema þá í byrjun, en ég legg áherslu á það að Alþingi taki afstöðu til þessa máls, sem á að vera þinginu allvel kunnugt þar sem það hefur verið rætt hér á fyrra þingi, fyrir áramót þannig að það megi tengja afstöðu þingsins við afgreiðslu fjárlaga og koma þessum málum á skrið þegar á næsta ári.
    Ég ætla ekki, virðulegur forseti, að orðlengja þetta hér þó freistandi væri að bæta við margháttuðum upplýsingum sem þessu máli tengjast, svo og upplýsingum sem fram hafa komið nýlega hérlendis um stöðu kvenna á vinnumarkaði og þróun í þá átt. Ég vænti þess að þingið sjái sér fært og félmn. Sþ., sem ég legg til að fái málið til meðferðar, sjái sér fært að taka afstöðu til þess nú á næstu vikum þannig að vilji þingsins liggi fyrir áður en fjárlög verða afgreidd.