Þorv. Garðar Kristjánsson:
Hæstv. forseti. Það er kannski engin ástæða fyrir mig að biðja um orðið því í máli síðasta ræðumanns og hv. 4. þm. Vesturl. komu ekki fram nein ný sjónarmið í þessu máli. Í síðustu orðum hv. flm. kom það fram eins og áður að hann hefur ekki trú á því að þessi þáltill. nái fram að ganga í raun og veru. Það er ekki eðlilegt að menn hafi trú á því, ef það er mikið atriði eins og hv. flm. gat um og ég var að vænta nánari skýringar á, að það væru bein tengsl á milli afstöðunnar til þessa máls sem við núna ræðum og hvalamálsins. Það liggur hjá garði að skýra það nánar. Og það eru heldur veigalítil rök þegar það er uppistaðan í málflutningi hv. 4. þm. Vesturl. að hv. 3. þm. Vesturl. hafi vitnað hér til nokkurra orða á dönsku. Ég held að það standi, það sem hefur verið í verki sjónarmið Alþingis og alþm. allt frá 1944, að láta merkið standa.