Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir):
Virðulegi forseti. Ég skal verða við óskum sem fram komu hjá hv. síðasta ræðumanni. Það var 29. júní sl. sem félmrn. úrskurðaði að byggingarleyfi fyrir ráðhúsi skyldi óhaggað standa. Engar nýjar málsástæður hafa komið fram í kærum sem ráðuneytinu hafa borist eftir það sem að mati ráðuneytisins gefa tilefni til breytinga á þeim úrskurði. Málinu er lokið af hálfu ráðuneytisins og þeir sem ekki una þeim úrskurði að því er varðar byggingarleyfið fyrir ráðhúsið og niðurstöður ráðuneytisins geta auðvitað leitað til dómstólanna.
Hitt er annað mál að sjö til átta kærur sem ráðuneytinu hafa borist vegna ráðhússmálsins segja auðvitað sína sögu. Þegar úrskurðurinn var kveðinn upp um byggingarleyfið taldi ráðuneytið ástæðu til að átelja vinnubrögð borgaryfirvalda vegna undirbúnings byggingar ráðhúss Reykjavíkur og taldi að í veigamiklum atriðum hefði málsmeðferð borgaryfirvalda verið mjög ámælisverð. Í úrskurði ráðuneytisins kom fram að vinnubrögðin hefðu einkennst af fljótfærni og vanvirðingu fyrir skipulags- og byggingarlögum og reglugerðum tengdum þeim. Auk þess hafi réttur hins almenna borgara til að tjá sig um fyrirhugaðar framkvæmdir verið fyrir borð borinn. Ráðuneytið taldi því ástæðu til þess að átelja vinnubrögð borgaryfirvalda.
Ég verð að segja það að í starfi mínu sem ráðherra sem fer með skipulagsmál hafa vinnubrögð borgaryfirvalda oftsinnis vakið furðu mína og fylla þær kærur vegna skipulagsmála hér á höfuðborgarsvæðinu sennilega einn tug sem ráðuneytinu hafa borist á því rúma ári sem ég hef gegnt starfi félmrh. Það er vissulega áhyggjuefni að svo skuli vera og á þessum tíma hefur ráðuneytið tvívegis þurft að fella úr gildi byggingarleyfi hér á höfuðborgarsvæðinu. Því er það mín skoðun að það sé mjög brýnt að borgaryfirvöld endurskoði sín vinnubrögð í skipulagsmálum í heild sinni. Ég held að þær kærur sem ráðuneytinu hafa borist beri þess glöggt vitni að það sé nauðsynlegt.