Verðbréfaviðskipti
Þriðjudaginn 01. nóvember 1988

     Ólafur Þ. Þórðarson:
    Herra forseti. Ég fagna því að komið er fram frv. til laga um verðbréfaviðskipti og verðbréfasjóði. Það vakti aftur á móti nokkra athygli mína þegar þessi umræða fór fram að hv. 1. þm. Reykv. lét að því liggja að hann fagnaði framlagningu frv. og jafnframt bar hann það af sér að í seinustu ríkisstjórn hefði verið andstaða af hálfu Sjálfstfl. gegn því að frv. yrði lagt fram. Þegar á leið þá ræðu kom aftur á móti í ljós að það var engin ánægja hjá hv. 1. þm. Reykv. með 30. gr. frv. Hann taldi að hún ætti engan rétt á sér.
    Nú er það svo að sú grein er að sjálfsögðu hluti af frv. og þess vegna hljóta menn, ef þeir fagna frv., að taka hana með eða þeir eru á öndverðu máli. Ég held að það sé ákaflega hæpið að gera ráð fyrir að í þessu landi geti verið annars vegar bankar og sparisjóðir sem þurfi að sæta þeim reglum að Seðlabankinn ákveði að viss hluti af því fjármagni, sem þeir eru með undir höndum, skuli bundinn í Seðlabankanum, en hins vegar séu aðrir aðilar sem megi stunda inn- og útlán og þurfi engri bindiskyldu að hlíta. Mér sýnist að ef það ráðslag er haft séu menn raunverulega að vinna að því að flytja fjármagnið út úr bönkum og sparisjóðum yfir til verðbréfasjóða. Þess vegna lít ég svo á að þessi grein, 30. gr., hljóti að eiga fullan rétt á sér. Ef það er aftur á móti svo að menn, vegna andstöðu við þá miðstýringu sem Seðlabankinn hefur, eru alfarið á móti bindiskyldu, bæði hjá bönkum, sparisjóðum og verðbréfasjóðum, er út af fyrir sig samræmi í þeim málflutningi. Ég hygg að Íslendingar verði að una því að ef gerð yrði úttekt á stöðu mála hér á landi hvað varðar starfsmannafjölda sem vinnur í bönkum og sparisjóðum og við ávöxtun fjármagns komi í ljós að sá starfsmannafjöldi er mjög mikill í prósentum miðað við önnur lönd.
    Nú er það svo að auðvitað þurfum við að gæta hagræðingar á öllum sviðum og þær hugmyndir, sem uppi hafa verið um að reyna að sameina banka og hagræða á þessu sviði, hafa ekki náð fram að ganga, því miður. Ég tel aftur á móti að þegar frv. hefur verið samþykkt, sem ég vona að verði, skapist grundvöllur fyrir því að hafa eðlilega stjórnun, yfirstjórnun, á þessum málum jafnt og öðrum þáttum í peningakerfinu og á ég þá við þá stjórnun sem er til staðar með lögum, bæði gagnvart sparisjóðum og bönkum.
    Ég held einnig að það hljóti að koma upp í umræðunni, þegar þessir hlutir verða skoðaðir nánar, hvort það geti verið eðlilegt að tekjur af verðbréfum, umfram einhverja lágmarksávöxtun, eigi að vera skattfrjálsar. Hví skyldi maðurinn, sem vinnur sér inn tekjur með verkum sínum, þurfa að greiða af þeim skatta og skyldur en sá aðili, sem aflar þeirra með vöxtum af verðbréfum, vera þar fyrir utan? Auðvitað eru þetta hlutir sem löggjafarþingið þarf að taka afstöðu til. Hins vegar virðist mér að þá þurfi náttúrlega mjög að gæta þess hvort um er að ræða lága ávöxtun eins og verið hefur lengst af í

bankakerfinu eða hvort um einhverja mikla ávöxtun er að ræða sem hugsanleg getur verið af verðbréfaviðskiptum.
    Hitt er svo önnur saga og annað mál að það er útlit fyrir að það stjórnleysi sem ríkt hefur á þessu sviði verði til þess að skaða þó nokkuð marga einstaklinga sem hafa glæpst á því að treysta verðbréfasjóðum fyrir fjármagni sínu. Mér er hins vegar ekki ljóst hvort þeir sem höfðu þetta mál til meðferðar í seinustu ríkisstjórn höfðu uppi ákveðna stefnu sem þeir vildu framkvæma, og þá hver hún var ef munurinn hefur ekki verið meiri en sá að þeir hafi alfarið verið á móti 30. gr., en fróðlegt væri að heyra það hér í umræðunni hvað það var sem orsakaði það að þetta mál var tafið eins og mér er kunnugt um að gert var.