Eignarleigustarfsemi
Þriðjudaginn 01. nóvember 1988

     Ásgeir Hannes Eiríksson:
    Hæstv. forseti, hv. þm. Það eru tvö atriði sem mig langar að ræða varðandi þetta nýja frv. um eignarleigu.
    Það er í fyrsta lagi spurningin um leigugjaldið, hvort það er frádráttarbært til skatts eða ekki. Auglýsingar, sölumennska og önnur starfsemi hjá þessum fyrirtækjum gengu út á það á sínum tíma að gjaldið yrði allt saman frádráttarbært í bókhaldi til skatts.
    Í annan stað er það andinn í sjálfum samningnum sem fólk gerir þegar það gengur til viðskipta við fjármögnunarleigufyrirtæki. Ég er hérna með fyrir framan mig eyðublað sem heitir ,,Samningur um fjármögnunarleigu``. Aftan á þessu eyðublaði er smátt letur upp á 20 greinar. Það er í rauninni ekki um neinn samning að ræða í þeim skilningi sem ég legg í samning, að tveir menn setjast niður og ná samkomulagi sem báðir sætta sig við, standa síðan upp og eru báðir jafnánægðir. Þeir sem vilja versla við kaupleigufyrirtæki í dag eða eignarleigufyrirtæki verða að gjöra svo vel að sætta sig við þá skilmála sem eru í boði. Ef þeir eru ekki sáttir við þá að einu og öllu leyti geta þeir góðfúslega snúið sér annað eða étið hreinlega það sem úti frýs því það er ekki í nein önnur hús að venda þar sem boðið er upp á aðra eða vægari skilmála því að þeir eru allir í öllum höfuðatriðum eins. Andinn í þessum skilmálum er í stuttu máli á þessa leið: Leigutaki ber ábyrgð, leigutaki skal bæta, leigutaki beri kostnað. Þannig hljóða allar þessar greinar meira og minna og það eru tínd til ólíklegustu atriði sem leigutaki á að bæta, bera ábyrgð á, kosta og svo framvegis.
    Í 14. gr. þessa samnings sem ég hef er 5. liður svohljóðandi: Þar stendur: ,,Leigufyrirtækinu er heimilt að segja samningi þessum upp án fyrirvara séu eftirgreindar ástæður fyrir hendi.`` Síðan koma fjórar nokkuð almennar ástæður, en fimmta ástæðan er svohljóðandi: ,,Ef leigufyrirtækinu er bannað eða félaginu gert illmögulegt að standa við samning þennan eða á félagið leggjast verulegar kvaðir vegna samnings þessa . . . `` Þá er spurningin: Hvað þýðir það ef félaginu er gert illmögulegt að standa við samning þennan? Gæti það t.d. komið fyrir að eignarleigufyrirtækið fjárfesti í fasteignum, lenti í þeim háu vöxtum sem það tekur sjálft á þessum markaði og lenti í sömu gryfjunni og mörg þau fyrirtæki sem verið er að gera upp þessa dagana? Hver er þá ábyrgðin þegar félagið má innheimta, má taka hlutinn af leigutakanum, hver er þá ábyrgð félagsins á þeim eftirstöðvum og því sem þegar hefur verið greitt þegar enginn hlutur er lengur fyrir hendi þó svo að viðkomandi hafi staðið í skilum? Kannski er þetta dálítið öfgakennt dæmi, en það eru einmitt undantekningarnar sem menn verða að læra að þekkja og varast þegar svona samningar eru gerðir. Hluturinn sem leigður er í hvert skipti er eign leigufyrirtækisins. Leigutakinn er bara með hann í láni. Hann borgar af honum gjöld þangað til að leigufjárhæðin er öll sömul greidd og henni allri til skila haldið og þá á hann kost

á að kaupa hlutinn á 3% eða 5% af upprunalegu verði. En þetta dugir ekki eignarleigufyrirtækjunum vegna þess að þrátt fyrir að þau eigi hlutinn allan tímann krefjast þau að viðkomandi leigjandi, hvort sem það er einstaklingur eða fyrirtæki, beri ábyrgð á samningnum með því að skrifa upp á hann, ef um einstakling er að ræða þá að ábyrgjast greiðslur með öllum sínum eigum og allri sinni orku til að vinna fyrir sér næstu árin, og í annan stað er jafnvel tekið aukalega veð í fasteign til að tryggja hlut sem eignarleigufyrirtækið á sjálft. Þannig er leigutakinn ekki bara með hlutinn í láni og borgar fyrir hann leigu. Hann þarf líka að ábyrgjast hann og hann þarf líka að gefa fasteignaveð.
    Þetta finnst mér of langt gengið. Ég geri það að tillögu minni, og vona að hæstv. ráðherra sjái sér fært að láta ræða það mál og væntanlega bæta því inn í lögin um kaupleigur, að fólk verði ekki látið bera ábyrgð á hlut sem það á ekki umfram það sem felst í því að taka hann á leigu og borga af honum leigu. Það sé ekki látið ábyrgjast hann með persónulegri ábyrgð og því síður að það þurfi að leggja til fasteignatryggða ábyrgð svo leigan geti gengið upp. Þetta hefur komið fólki í koll. Þess eru dæmi að einstaklingar og fyrirtæki hafa orðið gjaldþrota með hluti á kaupleigukjörum, t.d. litla báta og annað, og þá er skaðinn orðinn margfalt meiri. Skaðinn verðu miklu meiri hjá einstaklingnum því kaupleigufyrirtækin fá að taka háa vexti af þessum leiguviðskiptum einmitt vegna áhættunnar sem þau taka. Fyrirtækin verða að lækka vextina ef þau frýja sig allri ábyrgð. Það gengur ekki upp að hafa bæði háa vexti og enga ábyrgð.