Matthías Bjarnason:
Herra forseti. Það verða alltaf nokkrar breytingar á umræðum um mál þegar upp undir vika líður á milli þess að málið er tekið fyrir í hv. deild. Þetta finnst mér nú ekki bera vott um samfellda starfsemi hv. deildar í afgreiðslu mála. Það hefði verið rétt að halda áfram með fyrstu tvö frv. sem var byrjuð umræða á en láta bíða að taka þetta mál fyrir og halda umræðunni áfram nokkurn veginn óslitið.
Saga hvalveiða og nýting hvala er svo að segja jafnlöng sögu þessarar þjóðar og af hvalveiðum hafa sprottið margar deilur og vígaferli allt frá söguöld. Hvalveiðar voru fyrst stundaðar að marki á 17. öld en þó voru þær mestar og afdrifaríkastar fyrir hvalastofnana á tímabilinu frá 1883 til 1915, en á þessu tímabili er áætlað að Norðmenn hafi drepið hér við land yfir 17 000 hvali og selt yfir 600 þús. tunnur af hvallýsi til Bretlands. Það var mikil umræða hér á landi um hvalveiðar á þessu tímabili og fannst mönnum óhóflega gengið til verks. Fundir voru haldnir bæði með og á móti hvalveiðum og sérstaklega var þetta áberandi og mjög mikill hiti í þessum málum á árunum frá 1899 til 1903. Andstaðan við þessar veiðar var mest meðal sjómanna á Norður- og Austurlandi enda voru hvalveiðar álitnar skýringin á því þegar síldveiðar brugðust. Eins skapaði það hvalveiðimönnum óvinsældir hve illa var gengið frá úrgangi frá hvalstöðvum og kröfur voru uppi um að skylda ætti hvalveiðimenn til að fullvinna úr hvalnum allar mögulegar afurðir. Víða höfðu bændur uppi mótmæli og eru t.d. eftirtektarverð mótmæli við hvalstöð við Álftafjörð vestra, en þar drapst fé unnvörpum vegna þess hve grútur var mikill í fjöru. Hins vegar má líka segja að af hvalstöðvum þótti stuðningur, einkum í afskekktum byggðarlögum, því þar bauðst bæði föst sumarvinna og ígripavinna við veiðar og vinnslu á hvalnum og með hvalveiðunum komu veltiár, fyrst á Vestfjörðum og síðan á Austfjörðum. Og það vekur eftirtekt að þegar Vesturheimsferðirnar voru sem mestar þá fjölgaði íbúum á þeim stöðum þar sem hvalveiðistöðvar voru.
Eftir að hvalveiði lagðist niður með öllu var nokkuð langt hlé en síðan hófust hvalveiðar að nýju, ef ég man rétt, 1935 en urðu ekki langlífar í það skiptið vegna þess að þær lögðust af í byrjun heimsstyrjaldarinnar 1939 og voru ekki upp teknar öll stríðsárin. En frá 1946 hefjast hvalveiðar aftur með tilkomu Hvals hf., sem stundað hefur þessar veiðar síðan. Þetta fyrirtæki hefur farið í einu og öllu eftir fyrirmælum stjórnvalda á hverjum tíma. Það hefur lagt fram mikið fjármagn til vísindastarfsemi hverju sinni.
Um hvalveiðar er deilt í heiminum. Ég ætla ekki að fara að ræða frekar það sem gerst hefur nú á undanförnum árum, það kom fram bæði í ræðum fyrri ræðumanna við þessa umræðu og sér í lagi í ræðu hæstv. sjútvrh. Við Íslendingar höfum ávallt viljað fara eftir því sem er skynsamlegt við veiðar og viljum ekki ganga það nærri stofnum, hvorki hvalastofni eða fiskstofnum, að þeim stafi útrýmingarhætta af. Þess vegna höfum við haft skipulag og reglur við þessar
veiðar á liðnum árum. En það hafa verið tekin upp mjög hörð og ákveðin vinnubrögð gagnvart okkur og nú er hart að okkur sótt í öðrum löndum og viðbrögð ríkisstjórna þeirra þjóða eru með ýmsum hætti, allt frá því að láta eins og þær viti ekki að þessi viðbrögð eigi sér stað gagnvart okkur eða hitt, að það er farið aftan að okkur með ýmsum hætti.
Við getum deilt um það hvort of langt er gengið í þessum efnum. Flestir Íslendingar eru sammála um að skynsamlega hafi verið staðið að þessum veiðum og hvergi verið gengið of langt. Við skulum líta á efnahag okkar og sjá hvernig við stöndum. Sjórinn gefur okkur meira en 3 / 4 af því sem við seljum til erlendra þjóða og lífsafkoma okkar er háð því að við nýtum skynsamlega það sem sjórinn gefur. Þess vegna finnst mér það æðihart að gengið þegar farið er að rægja þjóðina á erlendum vettvangi, hvort sem það er í Bandaríkjunum, Vestur-Þýskalandi eða í einhverju öðru landi. Umhverfissinnar hafa nú uppi margvíslegar aðgerðir gagnvart okkur og ég verð að segja það að ég tel að margar þær aðgerðir séu afar róttækar og ósanngjarnar. Hins vegar eigum við mjög mikla samleið með umhverfissinnum. Við skulum ekki líta fram hjá því að Greenpeace-samtökin berjast einnig fyrir því að vernda umhverfi sjávarins, að koma í veg fyrir mengun í hafinu. Þar eigum við fullkomlega samleið með Greenpeace-samtökunum og öðrum umhverfissinnum. Það er lífsspursmál fyrir þessa þjóð að taka upp miklu harðari og ákveðnari baráttu fyrir verndun hafsins og hafsvæða í kringum okkur en gert hefur verið. Ég er ekki með þessum orðum að deila á einn eða annan heldur má segja að við höfum ekki frekar en margar aðrar þjóðir gætt þess að sinna umhverfismálum sem skyldi. En það gerum við ekki með því að hætta veiðum eða hætta að deyða stærstu dýr sjávarins ef við teljum að þessi dýr séu ekki í útrýmingarhættu og skaðlaust að þeim sé fækkað meira. En ef við friðum þau að öllu leyti þá erum við að kalla yfir okkur meiri ásókn í fiskistofnana, meiri ásókn þessara dýra sem þurfa sitt til þess að lifa á. Þetta þýðir að ef þau eru friðuð öll með tölu erum við um leið að gera fleiri sjómenn, verkamenn og aðrar atvinnustéttir í þessu landi atvinnulausar og við því megum við ekki.
Þá kem ég að því sem hlýtur að skipta afar miklu máli fyrir okkur, hvernig haldið er á þessum málum við aðrar þjóðir. Ég furða mig á þeirri tvöfeldni sem fram hefur komið hjá Bandaríkjastjórn nú nýverið og utanrrh. tók myndarlega á fyrir nokkrum dögum, og ég er honum alveg sammála, en mér finnst ekki við það unandi að ríkisstjórn eins og ríkisstjórn Vestur-Þýskalands láti eins og hún viti ekkert um hvað er að gerast. Við verðum því að grípa til okkar ráða og reyna að koma okkar sjónarmiðum betur og meira á framfæri. Ég geri mér ljóst að það er algjörlega útilokað að snúa við almenningsálitinu. Þetta er orðið að tilfinningamáli. Sjónvarpið í hverju landinu á fætur öðru sýnir litmyndir þar sem þessar veiðar eru sýndar og sjórinn er rauður af blóði þessara dýra. Þessar myndir hafa áhrif á hundruð þúsunda og
milljónir manna sem setja sig ekkert í spor þeirra þjóða sem verða að veiða þessi dýr. Það er ekki talað í Bandaríkjunum um dráp tugþúsunda smáhvela við Kyrrahafið. Það kemst ekkert að. Það er látið liggja á milli hluta. En lítil þjóð sem lifir á fiskveiðum hér norður í Atlantshafi er lítilsvirt víða, sérstaklega af sjónvarps- og fjölmiðlafólki, og búið að koma því þannig fyrir að litið er á okkur eins og einhverja ræningja sem eru að eyða lífríki jarðar.
Ég vil benda hæstv. sjútvrh. á það hvort ekki sé reynandi, hvað sem líður tilfinningum okkar margra til Greenpeace og annarra umhverfissamtaka, að stofna til samvinnu við þessi umhverfissamtök um það að gera átak til þess að koma í veg fyrir mengun sjávar. Ég vil líka að meira sé gert af því að bjóða hingað á ráðstefnu fulltrúum þeirra ríkisstjórna sem hér eiga hlut að máli sem ekki vilja eða telja sig skilja okkar baráttu og koma þannig á framfæri við þá að þetta er lífsspursmál fyrir okkur, ekki þó kannski beint þessar vísindaveiðar eða hvalveiðar í vísindaskyni, því ef við hættum veiðum með öllu og friðum öll þessi stóru spendýr sjávarins, öll með tölu, allt frá sel til stærstu hvala, þá sjáum við fram á að hér verður aukning, eins og ég sagði áðan. Háhyrningarnir verða sífellt fleiri og fleiri, þeir þurfa sinn skammt af síld og loðnu og allt er þetta tekið af þeim stofni sem hér er og eftir því sem meira er tekið af honum þess minna hefur mannskepnan til þess að veiða og láta í sig.
Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir þau orð hans í ræðu hér fyrir viku er hann lét falla um það sem háskólarektor sagði í setningarræðu sinni. Ég tel það ekki hlutverk æðstu menntastofnunar Íslendinga að skipta sér af viðkvæmum pólitískum ákvörðunum. Ég tel að þar hafi sú virðulega stofnun og sá ágæti maður, háskólarektor, farið út fyrir sitt svið. Ég tel líka kominn tíma til að minna á, þó það skipti ekki máli í sambandi við hvalveiðar, í sambandi við tal manna í Háskóla Íslands um að leggja á sérstakan auðlindaskatt að það er stórpólitísk ákvörðun og sá skattur kemur á sjávarútveginn einan og þá sem beint og óbeint vinna við sjávarútveginn. Það má segja að sá skattur komi fyrst og fremst niður á fólkinu sem byggir þetta land, fyrst og fremst fólkinu utan höfuðborgarsvæðisins. Hér eru það ekki nema um 10% mannaflans sem vinna í sjávarútvegi á móti 90% í öðrum greinum. Þá er hér verið að leggja margfalt hærri skatta á fólkið sem lifir og býr úti á landi svo að ég held að þetta tal um auðlindaskattinn sé hættulegt tal, það er ósanngjarnt gagnvart því fólki sem stundar þennan atvinnuveg. Það er verið að skammta því og það hefur verið gert á undanförnum árum og sama er að segja í þessu tilfelli um landbúnaðinn. Má þá ekki alveg eins setja á auðlindaskatt fyrir verslun sem liggur vel við markaðssvæði þar sem viðskiptavinirnir eru flestir? Þannig má lengi telja og ég harma það eiginlega að þessi vinnubrögð skuli eiga sér stað með þessum hætti.
Sömuleiðis má segja það að hér sé um freklega íhlutun um innanlandsmál að ræða og skerðingu á
sjálfsákvörðunarrétti þessara þjóða. Hæstv. forseti Sþ. flutti hér efnislega vel uppbyggða ræðu þar sem vandlega var tínd saman atburðarás í hvalveiðum, en undir lok ræðunnar brá mér allharkalega þegar hv. þm. sagði --- og er að svara hæstv. sjútvrh. sem sagði áður: Eigum við að víkja fyrir hótunum? Hvað næst? Hvað verður okkur bannað að veiða næst? --- Þetta var gáfuleg spurning, segir hv. þm. Það getur nefnilega gerst, segir hv. þm., með hvað sem er vegna þess að það er löngu ljóst að engin þjóð á neinar auðlindir jarðarinnar. Við eigum auðlindir jarðarinnar öll saman og þeim verður ekki bjargað úr þeim háska sem þær eru í nú nema í friði og sátt við aðrar þjóðir og í samvinnu með þeim. Ekkert einasta mál sem varðar verndun umhverfisins er einkamál neinnar einnar þjóðar. Jörðin er og verður sameiginleg eign okkar allra. --- Það hefði verið gaman að beita þessum rökum við útfærslu landhelginnar gagnvart Efnahagsbandalaginu.
Auðvitað fórum við í hvert landhelgisstríðið á fætur öðru til þess að tryggja tilveru okkar, yfirráð yfir fiskimiðum okkar umhverfis landið. Þetta er það sem hver þjóð gerir í heiminum sem á land að hafinu, að tryggja sér yfirráðaréttinn yfir fiskimiðunum. Þar hefur okkur tekist mjög vel til og við höfum gengið á undan í forsvari fyrir öðrum þjóðum með 200 mílna fiskveiðilögsögu. Þetta var stórt átak og mjög mikilvægt. Með því komum við erlendum skipum út úr, ekki þriggja eða fjögurra sjómílna fiskveiðilögsögu,
heldur út úr 200 sjómílna fiskveiðilögsögu. Þetta eigum við ein. Hitt eigum við sameiginlegt með öðrum þjóðum að það hvílir sú skylda á okkur að ganga um þessa eign okkar eins og siðaðri þjóð sæmir.
Við ráðum ekkert yfir skógum eða námum annarra þjóða sem eiga nytjaskóga eða námur. Það er þeirra að nytja þá. Við eigum hins vegar réttinn til þess að krefjast þess að þjóðir heims nái saman í því að mengun frá einu landi eða einu svæði nái ekki inn á annað. Þess vegna erum við að mótmæla t.d. úrvinnslustöðvum kjarnorku sem fleygja úrgangi í hafið. Þar erum við verulega hrædd. Þar eigum við hvort sem okkur líkar betur eða verr, hvort sem okkur líkar við þessa umhverfissinna eða samtök þeirra, ég get tekið undir margt sem ráðherra sagði í þeim efnum en kannski ekki alveg allt, ég vil ekkert endilega bjóða þá sérstaklega velkomna hingað með aðalbækistöðvar sínar, en ég vil mjög gjarnan fá skynsamari og betri menn þeirra hingað til viðræðna um þessi mál og við gætum staðið saman í þessum efnum.
Það gildir alveg það sama um þetta mál og landhelgismálið, að alltaf eru þeir sem eru andstæðingar okkar opnir fyrir því hvað sagt er hér heima, hvað sagt er hér á Íslandi. Jafnvel þó að maður hefði verið á annarri skoðun en þegar frv. sem hér liggur fyrir var flutt hefur það gerst síðan að þetta hefur orðið til þess að það hefur verið ráðist að okkur og það er ekki tilgangur flm. þessa frv. Það er ég
alveg sannfærður um. Það er flutt í góðum tilgangi. En þegar að okkur er ráðist verðum við að vera eins og einn maður til varnar. Við vorum það í hverju landhelgisstríðinu á fætur öðru. Það voru alltaf til menn sem sögðu: Er ekki farið of geyst? Þurfið þið ekki að fara gætilegar en þið gerið og höldum við þetta út? Við héldum þetta út að lokum. Það var oft erfitt, en við náðum að lokum því að sigra og það var einn bjartasti dagur, síðan ég hóf afskipti af stjórnmálum, sem ég lifði þegar samningarnir voru gerðir við utanrrh. Bretlands úti í Osló í maí 1976 og þá sérstaklega þegar breskir togarar fóru út fyrir 200 mílna fiskveiðilögsögu.
Nú segja menn: Það er allt annað og það þolir ekki samanburð að tala um landhelgismálið og þessi hvalamál. Víst er það rétt að hvalveiðarnar eru auðvitað sáralítill hluti á við landhelgismálið, það skal fúslega viðurkennt. Þjóðir heims voru með okkur, segja menn, í landhelgismálinu. Það var nú eitthvað annað. Þær voru æðimargar á móti okkur, en hins vegar sáu þær margar að sér því að þær fóru sama veginn og við á eftir. Hins vegar eru enn þá til andstæðingar okkar í Bretlandi sem ekki fyrirgefa okkur, en þeir eru fáir. Hinir eru svo margfalt fleiri sem hafa séð það og skilið að við gerðum það sem okkur var lífsnauðsyn að gera og Bretar gerðu svo síðar sjálfir ásamt fleiri þjóðum. Hvalamálin eru meira tilfinningamál og það er reyndar aldrei gaman, sérstaklega fyrir menn sem aldrei hafa skotið úr byssu, ekki einu sinni á ref eða mink, að tala um að það sé verið að drepa dýr. En við bara verðum að gera þetta. Við erum veiðimannaþjóðfélag og við verðum að halda þessum stofnum niðri hvað þetta snertir. Hitt er svo annað mál að því er enn þá talið mjög áfátt hversu mannúðlega þessar veiðar eru stundaðar og því eigum við að vera opnir fyrir. Það er eðlilegt að andstaða við þetta sé hjá mörgum þegar maður les t.d. í Ferðabók Þorvaldar Thoroddsens frásögn af hvölum sem koma inn á fjörð eins og Arnarfjörð vestra þar sem þeir koma annað hvert ár og eiga sín afkvæmi sem eru svo aftur skutluð af mönnum, en þá var líka lífsbaráttan hörð og hungrið svarf oft að. Þetta eru hlutir sem við mundum ekki sætta okkur við nú og enginn okkar mundi taka undir.
Ég minni á og bið fólk að hafa það hugfast að við höfum aldrei á seinni árum selt veiðirétt okkar fyrir viðskipti. Efnahagsbandalagið hefur hvað eftir annað sent menn hingað til þess að fala veiðirétt innan íslenskrar fiskveiðilögsögu. Þá hafa menn farið til fundar við þá og við höfum mikilla hagsmuna að gæta, en þetta er hlutur sem við getum ekki gert og megum ekki gera og um það erum við sennilega öll sammála, þessi þjóð sem þó sjaldan getur verið sammála því að þrasgjarnari þjóð finnst varla. En þó þegar mest á ríður er þessi þjóð sammála.
Ég held að við eigum fyrst og fremst að hafa það hugfast að við þurfum að umgangast fiskimiðin með mikilli varúð, okkar hafsvæði, en umfram allt verðum við að koma í veg fyrir að sú mengun sem núna magnast í næsta nágrenni við okkur berist hingað. Ég
held að það sé verðugra verkefni fyrir vini okkar á Norðurlöndum að hugsa um mengunina í Eystrasalti og Norðursjónum og þar með Þjóðverja, Breta, Hollendinga, Belga og allar þessar þjóðir sem þar eiga hlut að máli. Ég er alveg sannfærður um það að ef við tökum upp og höldum áfram því sem við höfum verið að gera t.d. í sambandi við framkvæmd Parísarsamningsins og þær tillögur sem við vorum að flytja þar, ef við höldum áfram í þeim dúr og undirbúum verulega góða ráðstefnu til þess að hafa forustu um að koma í veg fyrir mengun sjávarins held ég að þessar þjóðir, sem ég nefndi áðan, eigi miklu frekar að hugsa um mengunina í kringum sig, hvernig allt sé komið hjá þeim, og þá dreg ég ekki Norðmenn undan, ekki Oslóarfjörðinn o.fl. Þá held ég að þeir ættu fyrst og fremst að hugsa um það að eiga samleið með okkur Íslendingum í þeim málum og gera þar verulegt átak því að dráp á nokkrum
hvölum sem hér eru nú drepnir í vísindaskyni verður ekki það sem eyðir lífríkinu í kringum okkur Íslendinga. Þar við bætist, sem skiptir öllu máli, að við getum ekki friðað þessi dýr, hvort sem það eru þessar hvalategundir, selur, háhyrningur eða hrefna, því að það er of dýrt fyrir þjóðfélag sem vill teljast til menningarþjóðfélaga og gerir háar kröfur, hver einn einasti þegn þess, til lífsins. Við verðum að hafa þetta allt inni í myndinni þegar við tölum um þessi mál og ég hygg að það sé skynsamlegast fyrir okkur Íslendinga að tala sem gætilegast, bæði hér á Alþingi og hér innan lands um þessi mál en reyna aftur að snúa vörn í sókn með því að sækja fast fram um verndun hafsvæða og gagnvart mengun í sjónum.