Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Það hafa orðið miklar umræður um þetta mál sem er ekkert undarlegt eins og það er allt vaxið. Ég var einn af þeim sem á sínum tíma vildu mótmæla því að við byggjum okkur undir það að hætta að veiða hvali. Það hljómar kannski undarlega í eyrum hér miðað við þær umræður sem hafa farið fram í þjóðfélaginu að ég er enn þá sannfærðari um það nú en þá að það sé rétt.
Þetta hvalamál er auðvitað mikið tilfinningamál, en ef menn halda að við getum lifað í þessu landi án þess að deyða dýr, þá er málið einfalt. Það er óhugsandi. Ég sem ungur drengur og ungur maður tók það alltaf nærri mér þegar kom að hausti og þurfti að fara með féð í bæinn eða að slátra því heima fyrir. En lífið er bara svona. Við búum á þeim stað á jörðinni þar sem við getum ekki lifað á grænmeti t.d. allt árið. Það er óhugsandi. Ég held að það sé rétt að ræða af hreinskilni um þetta mál. Ég hef haft það fyrir sið að gera það og þá vil ég segja það að ég er ekki í nokkrum vafa um það fyrir mitt leyti að það sem hefur skaðað okkur mest í þessu máli er umræðan í þjóðfélaginu, er það að margir okkar landsmanna hafa hlustað um of á þau öfgaöfl sem vinna á móti okkur í þessu máli. Mér þykir hryllilegt að sjá hval deyddan. Mér þykir það. Það er ekki málið. Menn eru að tala hér um meiri og minni hagsmuni. Hver getur í raun og veru á þessari stundu kveðið upp um það hvort eru meiri og minni hagsmunir?
Ég veit um það að fréttamenn héðan hafa hringt til þessara samtaka úti í löndum til þess að fá að vita hvað sé að gerast í þessum málum. Þessir fréttamenn hafa svo komið með það hér í fjölmiðlum hvað sé verið að gera. Þessi samtök segja frá því hvernig umræðan er hér á landi og segja að menn séu að láta undan í þessu máli, menn séu á flótta í þessu máli. Og það er gengið á lagið og þetta er stigmagnað. Og við bætist tillöguflutningur hér á hinu háa Alþingi og umræður um þetta mál. Því miður hef ég sannfæringu fyrir því að það skaði okkur mjög mikið í þessu máli nema við ætlum að gefast upp. En hvar lendum við þá? Hvað verður næst? Verður ekki farið að friða þorskinn? Auðvitað er það okkar aðalmál. Það eru umhverfismálin í heild. En það er allt annað mál.
Mér er sagt að í seinni tíð hafi sjaldan eða aldrei verið eins mikið af hval og hrefnu í kringum landið eins og nú. Það segja mér skipstjórar fyrir norðan, fyrir austan, fyrir vestan. Sum af þessum dýrum lifa á því sjávarfangi sem við þurfum að draga úr veiði á vegna þess að við teljum að þessir stofnar þoli ekki sóknina. Ég hef t.d. orðið vitni að því að úr hrefnumaga hefur komið á annað hundrað kg af fiski. Ég hef orðið vitni að því. Ég hef líka orðið vitni að því að selurinn hefur tekið lax. Ef þessum dýrum fjölgar úr hófi fram hvaða hagsmunir eru þá í húfi? Hvaða hagsmunir eru þá í húfi?
Það kann að vera að meiri hluti Alþingis og meiri hluti þjóðarinnar, kannski þeir sem eru minnst í snertingu við lífið sjálft vilji að við gefum allt á
bátinn í þessu máli. Það kann að vera. En er það skynsamlegt? Er það köld skynsemi sem tekur slíka ákvörðun? Ég stend a.m.k. í þeirri meiningu að það sé umdeilanlegt hvort meiri eða minni hagsmunir eru í húfi að láta undan í þessu máli. Ég hef reynt að kynna mér umræðuna erlendis um þetta mál og hún er á þann veg að þetta stigmagnar afstöðuna. Þessi samtök segja að íslenska þjóðin sé að gefast upp í þessu máli.