Hvalveiðibann
Þriðjudaginn 01. nóvember 1988

     Kristín Einarsdóttir:
    Virðulegi forseti. Eins og kunnugt er hefur Kvennalistinn ætíð lagt mikla áherslu á umhverfismál. Í stefnuskrá Kvennalistans stendur, með leyfi forseta:
    ,,Framtíð mannkyns veltur á því hvernig við umgöngumst náttúruna, hvernig við nýtum gögn hennar og gæði og hvort við berum gæfu til að bæta úr þeim spjöllum sem við höfum valdið henni.``
    Í anda þessara orða tel ég að allir ættu að vinna. Íslendingar hafa því miður ekki alltaf borið gæfu til að umgangast landið með þetta að leiðarljósi og þess vegna hrópa verkefnin á okkur. En þótt umhverfisvandamálin séu mikil hér á landi megum við ekki gleyma því að stór hluti þeirra er ekki bundinn við nein landamæri heldur eru þau alþjóðleg. Mengun hafs og lofts er sívaxandi vandamál og fyrr en varir getur hún ógnað lífsafkomu okkar. Fyrir stuttu var sýnd mynd í sjónvarpinu um afleiðingar af mengun Norðursjávar þar sem líf var nær horfið af stórum svæðum. Allt of oft heyrum við um skip sem losa eiturefni og geislavirkan úrgang í hafið. Ef þessu heldur fram leiðir það ekki til neins annars en tortímingar.
    Hér er til umræðu frv. til laga um hvalveiðibann sem gerir ráð fyrir að hvalveiðar verði óheimilar við Ísland til ársins 1993. Í febrúar árið 1983 samþykkti Alþingi þáltill. þar sem samþykkt var að mótmæla ekki samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um takmörkun hvalveiða. Með þeirri ályktun féllst þingið á að hvalveiðar í atvinnuskyni skyldu aflagðar á árunum 1986--1990, einnig að rannsóknir á hvalastofnum skyldu auknar og á grundvelli þeirra rannsókna verði tekin afstaða til hvalveiða eftir 1990.
    Það frv. sem við ræðum hér tekur ekkert tillit til þessarar samþykktar Alþingis né heldur ákvörðunar Alþjóðahvalveiðiráðsins um að endurskoða svokallaðan núllkvóta árið 1990. Nú er eitt ár eftir af því fimm ára tímabili sem ákveðið er að stöðva veiðar á hvölum í atvinnuskyni og eitt ár eftir af rannsóknaráætlun sem Hafrannsóknastofnun hefur unnið eftir undanfarin þrjú ár.
    Mér hefur gefist kostur á að fylgjast með umfjöllun um hvalamálið á vettvangi utanrmn. Alþingis sl. ár, en þar hef ég setið sem áheyrnarfulltrúi. Mér hefur fundist þetta mál hafa verið allt of lítið rætt þar og oftast hafa okkur verið kynntar niðurstöður um málsmeðferð stjórnvalda eftir að ákvarðanir voru teknar. Við höfum sl. ár fengið litla vitneskju um hvalamálið í nefndinni umfram það sem fram hefur komið í fjölmiðlum. Ég veit ekki hvort sami háttur var viðhafður á fyrri stigum málsins. Ég hefði einnig talið ástæðu til að kalla nefndina saman vegna nýjustu atburða, þ.e. hvernig Bandaríkjamenn reyna á bak við tjöldin að brjóta þá samninga sem þeir hafa gert við íslensk stjórnvöld.
    Ég tel mikilvægt að lokið verði við rannsóknaráætlun Hafrannsóknastofnunar, sérstaklega það víðtæka talningarverkefni sem á að fara fram næsta sumar undir forustu Íslendinga. Það væri mjög miður ef sá leiðangur yrði ekki farinn.

    Í þessu sambandi kemur upp spurningin hvort hvalveiðar varði stefnu í umhverfismálum og hver sé staða yfirstandandi rannsókna í því sambandi. Svo sannarlega er öll nýting auðlinda umhverfismál. Ekkert getum við undanskilið þegar náttúran er annars vegar og við fjöllum um verndun hennar. Ein okkar stærsta auðlind er fólgin í hafinu umhverfis Ísland. Við höfum reynt að stjórna nýtingu fiskistofnanna þó ekki hafi þar alltaf vel til tekist. Sumar tegundir hafa verið ofveiddar, en í seinni tíð hefur verið tekið meira mark á því sem sérfræðingar okkar á Hafrannsóknastofnun hafa lagt til.
    Tillögur þeirra hafa oft verið gagnrýndar og ekki hefur alltaf verið farið eftir þeim. Margir líffræðingar hafa einnig gagnrýnt Hafrannsóknastofnun fyrir rannsóknir á hennar vegum og mat á stofnstærðum fiska þótt fæstir hafi treyst sér til að koma með ráðleggingar um þessi efni sem ganga þvert á tillögur stofnunarinnar.
    Saga hvalveiða við Ísland er okkur til varnaðar þegar meta á hversu langt við eigum að ganga í nýtingu hvala. Ofnýting á auðlindum hafsins getur leitt til útrýmingar og þannig hurfu tegundir hvala af sjónarsviðinu hér við land fyrr á öldum. Þetta gildir m.a. um sandlægju sem er ein frægasta hvalategundin um þessar mundir vegna björgunarleiðangurs risaveldanna norðan Alaska á dögunum. Sá leiðangur vegna þriggja eintaka af þeirri tegund hefur kostað meira fé en ætla má að stór talningarleiðangur gæti kostað svipaður og áætlaður er á Norður-Atlantshafi á næsta ári.
    Fyrr á þessari öld var gengið mjög nærri mörgum þeirra hvalategunda sem þá voru veiddar. Við viljum ekki láta þetta endurtaka sig. Þess vegna tel ég mjög mikilvægt að við fáum sem fyrst vitneskju um stofnstærð þeirra hvalategunda sem eru á íslenskum hafsvæðum og hve mikið af stofnum er óhætt að nýta og hverja þarf að vernda tímabundið eða til frambúðar. Ég held að þeir séu fáir sem telja að friða eigi hvali umfram önnur dýr þótt vissulega sé hávær hópur manna þeirrar skoðunar. Af ofangreindum ástæðum hef ég talið rannsóknaráætlun Hafrannsóknastofnunar mikilvæga til að hægt sé að leggja fram gögn m.a. á vettvangi Alþjóðahvalveiðiráðsins sem gefi möguleika á að meta hvort og þá hve
mikið er talið óhætt að veiða úr hvalastofninum hér við land. Slíkar tillögur verða að byggjast á raunhæfu mati en ekki á skoti út í loftið.
    Fram hefur komið að líffræðingar eru ekki sammála um hve miklar upplýsingar er hægt að fá úr þeim rannsóknum sem Hafrannsóknastofnun vinnur nú að á hvalastofnunum tveim, langreyði og sandreyði. Í rannsóknaáætlun Hafrannsóknastofnunar er gert ráð fyrir að veiða ákveðinn fjölda dýra til rannsókna jafnframt því sem sala afurðanna stendur undir rannsóknakostnaði. Margir hafa efast um að rannsóknirnar sem gerðar eru á dauðum hvölum bæti einhverju verulegu við þá þekkingu sem við nú þegar höfum um þessi dýr. Í júlí 1987 sendi 21 líffræðingur

frá sér áskorun til ríkisstjórnarinnar um að hætta hvalveiðum í vísindaskyni. Í greinargerð með áskoruninni kemur fram að þessir líffræðingar telja að þær upplýsingar sem fást með veiðum séu þegar til eða hrökkvi skammt sem upplýsingar sem að gagni mættu koma. Aðrir líffræðingar, þar á meðal sérfræðingar Hafrannsóknastofnunar hafa talið rannsóknir á veiddum hvölum mikilvægar til viðbótar við talningar og aðrar rannsóknir á lifandi hvölum. Það er því erfitt á stundum fyrir þá sem ekki eru sérfræðingar á þessu sviði að meta og gera sér grein fyrir hvaða ráðleggingum á að fylgja. Þannig er því farið með mig þótt ég sé líffræðingur að mennt. Mitt sérsvið liggur langt frá þeim rannsóknum sem Hafrannsóknastofnun er að gera á hvölum. Ég hef t.d. aldrei getað áttað mig á því til hlítar hvaða forsendur eru notaðar til að ákveða þann fjölda dýra sem veiddur er til rannsókna. Ég tel mig hins vegar ekki þess umkomna að gerast dómari um alla þætti rannsókna Hafrannsóknastofnunar, m.a. á hvalastofnunum. Ég tel okkur geta treyst Hafrannsóknastofnun til að gera þær rannsóknir sem sérfræðingar hennar hafa talið nauðsynlegar miðað við það takmarkaða fé sem þeir hafa úr að spila. Þetta á bæði við rannsóknir á fiskistofnunum og rannsóknir á hvölum. Auðvitað þarf að hafa augun opin og reyna að gera sér grein fyrir hugsanlega breyttum forsendum í tímans rás og hlusta á gagnrýni, en það er ekki sanngjarnt að væna vísindamenn Hafrannsóknastofnunar um óheiðarleik og blekkingar eins og mér hefur fundist bera á varðandi þetta mál.
    Erum við þá ekki að brjóta gegn alþjóðasamþykktum með hvalveiðum til rannsókna? Í því sambandi er gjarnan vísað í 65. gr. hafréttarsáttmálans sem fjallar um sjávarspendýr. Hún hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Ekkert í þessum hluta skerðir rétt strandríkis eða vald alþjóðastofnunar eftir atvikum til að banna, takmarka eða setja reglur um hagnýtingu sjávarspendýra með strangari hætti en kveðið er á um í þessum hluta. Ríki skulu starfa saman með verndun sjávarspendýra í huga og skulu hvað hvali snertir einkum starfa á vettvangi viðeigandi alþjóðastofnana að verndun og stjórnun þeirra og rannsóknum á þeim.``
    Ísland hefur haft samvinnu innan Alþjóðahvalveiðiráðsins á þessu sviði. Gagnrýni á Íslendinga á alþjóðavettvangi og raunar einnig hér á landi hefur einkum beinst að því að með rannsóknum okkar séum við að brjóta alþjóðalög og samþykktir. Að vísu hefur gagnrýnin verið mjög grautarleg, sambland af tilfinningum, líffræðilegum skýringum og lagalegum svo oftast er engan veginn ljóst á hvaða forsendum hún er sett fram.
    Í Morgunblaðinu þann 5. sept. 1987 gerði Agnar Ingólfsson prófessor athugasemd vegna viðbragða Hafrannsóknastofnunar við áskorun líffræðinganna 21 sem ég minntist á áðan. Þar segir hann m.a., með leyfi forseta:
    ,,Við höfum aldrei haldið því fram að vísindaveiðar

væru brot á samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins. Samkvæmt stofnsamningi ráðsins getur sérhvert aðildarríki veitt eins marga hvali og það kýs í vísindaskyni. Hitt er svo annað mál að við teljum rangt að kenna hvalveiðar okkar við vísindi, enda hefur Alþjóðahvalveiðiráðið samþykkt tilmæli til okkar um að hætta þessum veiðum.``
    Hins vegar segir annar af þeim 21, Gísli Már Gíslason prófessor, í Dagblaðinu þann 24. okt. sl., með leyfi forseta:
    ,,Það er ekki hægt að segja að við förum eftir stefnu Alþjóðahvalveiðiráðsins í vísindaveiðum okkar eins og forsrh. hefur haldið fram.``
    Þannig virðast þessir líffræðingar ekki á einu máli í þessum efnum. Sérfræðingar utanrrn. hafa eins og prófessor Agnar túlkað samþykktir og alþjóðasáttmála þannig að ekki sé um brot á þeim að ræða af okkar hálfu. Ýmsir hafa viljað túlka hafréttarsáttmálann á þá leið að okkur beri skylda til að fara að ályktunum Aþjóðahvalveiðiráðsins jafnvel þótt þær brjóti í bága við stofnsáttmála ráðsins. Þetta er túlkunaratriði sem seint verður komist til botns í, en Íslendingar verða auðvitað að vera á verði um sína hagsmuni í alþjóðasamskiptum.
    Það hefur hins vegar vafist fyrir mér hvers vegna þeir sem eru á móti 8. gr. sáttmálans, sem fjallar um rétt þjóða til að veiða hvali til rannsókna, beita sér ekki fyrir breytingum á henni. Þá þarf ekki lengur að deila um túlkun. Það skiptir hins vegar ekki öllu máli hvaða skoðun við höfum á lagalegri hlið málsins. Nú er komin upp ný staða í málinu. Grænfriðungar og
margir aðrir hafa haldið því fram að við brjótum lög og samþykktir og að við séum að drepa síðasta hvalinn. Þeir hafa rekið harðan áróður gegn okkur á alþjóðavettvangi. Þessi áróður hefur leitt til þess að einstaka fyrirtæki, sem kaupa af okkur fisk, eru farin að halda að sér höndum um kaup á fiskafurðum. Því miður er ekki séð fyrir endann á því máli. Að vísu er nú upplýst að annað þýsku fyrirtækjanna, Aldi, sem fullyrt var að ætlaði að hætta að kaupa af okkur lagmeti, hefur endurskoðað afstöðu sína eftir að upplýsingar um málið bárust því í hendur. Auðvitað hljótum við að meta viðskiptalega stöðu okkar hverju sinni, en mér virðist engan veginn einsýnt að við hættum rannsóknum á íslensku hafsvæði vegna hótana einstakra fyrirtækja.
    Það eru ekki mörg ár síðan Bandaríkin voru með hótanir í okkar garð vegna hvalamálsins. Þann 9. ágúst 1986 sagði Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sem þá var þingkona Kvennalistans, í viðtali við Þjóðviljann vegna samninga þá um sumarið við Bandaríkjamenn, með leyfi forseta:
    ,,Ég á ekki von á því að þessu máli sé lokið. Enn er svo margt óljóst í því. Það er til að mynda alveg eftir að skilgreina ýmislegt, svo sem hvernig flokkun afurðanna verður, hvernig þær koma til með að skiptast og við höfum enga vissu fyrir því að Bandaríkjamenn verði sammála okkar skilningi í því máli.
    Þá er heldur ekki ljóst hvort Japanar kaupa af

okkur hvalkjöt og ýmislegt sem bendir til að svo verði ekki. Þá er komin upp alveg ný staða sem kemur til með að flækja málið enn.
    Svo eru grænfriðungar farnir af stað vestra og ég hef áhyggjur af þeirra áróðri og hvaða afleiðingar hann getur haft á sölu fiskafurða okkar í Bandaríkjunum.
    Loks tel ég ekki ósennilegt að Bandaríkjamenn þrýsti á Japana um að kaupa ekki af okkar hvalafurðir og þeir munu áreiðanlega ekki leggja fiskveiðiréttindi sín innan bandarískrar lögsögu í hættu með því að kaupa af okkur hvalkjöt þannig að ljóst er að málinu er hvergi lokið.``
    Þarna reyndist Sigríður Dúna sannspá. Bandaríkjamenn hafa reynt að þrýsta á Japana og áróður grænfriðunga hefur haft áhrif á sölu fiskafurða okkar þó ekki sé ljóst hve víðtæk þau áhrif eru. Ég tel fyllstu ástæðu til að við athugum vel okkar gang, metum allar aðstæður og könnum hvort ástæða sé til að endurskoða rannsóknaráætlun Hafrannsóknastofnunar eins og reyndar hefur verið gert áður. Mér þykir mjög slæmt, þegar aðeins eitt ár er eftir af rannsóknaráætluninni, ef ekki er hægt að fara í talningarleiðangurinn sem fyrirhugaður er næsta sumar í samvinnu við önnur ríki. Heildarniðurstaða úr rannsóknum þessa tímabils hlýtur að vera mun rýrari ef ráðgerðar rannsóknir á næsta ári falla niður. Íslendingar hafa haft frumkvæði um þessar rannsóknir, m.a. talningarverkefni, og við höfum lagt meira til þessara mála en aðrar þjóðir.
    Virðulegi forseti. Eins og ég sagði áðan þurfum við að endurskoða og endurmeta stöðu okkar hverju sinni. Það er hins vegar óþarfi að vera með taugatitring og upphrópanir og skipa fólki í tvær ósættanlegar fylkingar. Við verðum að vinna saman þó við séum ekki alltaf sammála. Ég hef oft verið mjög ósátt vegna framgöngu íslenskra stjórnvalda í þessu máli á alþjóðavettvangi, svo og hér heima, en það breytir ekki því að ég tel að við eigum að vinna saman að lausn málsins. Við getum deilt um hvort þessi eða hinn vísindamaðurinn hefur rétt fyrir sér, hvort þessi eða hin lögskýringin sé rétt, en slíkar deilur þurfa að leiða til niðurstöðu. Við eigum að afla allra tiltækra gagna í málinu. Miklu skiptir að reyna að átta sig á staðreyndum að svo miklu leyti sem vitneskja liggur fyrir. Ákvarðanir af hálfu stjórnvalda og Alþingis þarf að byggja á skýrum forsendum og rökum.
    Væntanlega gefst kostur á að ræða þessi mál ítarlega á vettvangi sjávarútvegsnefndar deildarinnar sem tillaga er um að fái þetta frv. til meðferðar. Ég tel þó að frv. sé á misskilningi byggt og ekki vera til stuðnings okkar málstað. Það er engin lausn að binda hendur okkar varðandi hvalveiðar í fimm ár, m.a. þar sem endurmeta á stöðuna innan Alþjóðahvalveiðiráðsins innan tveggja ára. Ég tel brýnt að utanrmn. ræði málið áfram og ítarlegar en hingað til hefur verið gert. Þannig gefst vonandi tækifæri til að meta stöðuna og taka ákvarðanir í samræmi við það.
    Hvalir eru einn hlekkur af mörgum í lífkeðju

hafsins. Það sem máli skiptir er að varðveita þessa keðju órofna þannig að hver hlekkur haldist. Það eiga Íslendingar sem veiðiþjóð að hafa skýrt í huga, þjóð sem lifir í svo nánum tengslum við náttúruna. Við ættum öðrum fremur að gera okkur grein fyrir að framtíð mannkyns veltur á því hvernig við umgöngumst náttúruna og hvernig við nýtum gögn hennar og gæði eins og vikið er að í stefnuskrá Kvennalistans sem ég vitnaði til í upphafi ræðu minnar.