Grunnskóli
Miðvikudaginn 02. nóvember 1988

     Menntamálaráðherra (Svavar Gestsson):
    Herra forseti. Eins og 1. flm., hv. 6. þm. Reykn., gat um hefur þetta frv. áður komið til meðferðar hér á hv. Alþingi og á sér orðið mjög langan aðdraganda í tíð margra menntmrh. eins og gengur. M.a. kom þetta til meðferðar á síðasta þingi og fékk þá ágætar umræður hér í hv. Ed. en hlaut ekki neina efnislega afgreiðslu af hálfu hv. menntmn.
    Það er rétt að geta þess í þessu sambandi að það mál sem hér er aðallega hreyft, þ.e. réttur foreldra til áhrifa, hefur verið mikið rætt að undanförnu og um það sem hugmynd eða hugmyndafræði út af fyrir sig er grundvallarsamstaða má segja í öllu skólakerfinu og hefur verið lengi. Þar eru hins vegar uppi eins og gengur mörg álitamál um það hversu langt eigi að ganga og í frv. eins og það liggur hér fyrir er ekki tekið á því þannig að tæmandi sé, enda er kannski ekki hægt að ætlast til þess vegna þess að sumt af því sem hér verður að taka á eru reglugerðaratriði, samráðsatriði við fræðslustjóra, skólastjóra. Skólaþróunardeild menntmrn. verður að koma þar við sögu og fleiri, enda er gert ráð fyrir því í 3. gr. frv. að menntmrh. setji reglugerð um störf og starfshætti skólaráðs og setji skólaráði erindisbréf.
    Það sem ég á við með því sem óljóst kann að teljast í þessu frv. eins og það liggur fyrir, án þess að það sé galli sem ræður úrslitum um málið út af fyrir sig að mínu mati, er ákvæðið í 1. mgr. 3. gr. um að 23. gr. grunnskólalaganna orðist svo:
    ,,Við hvern grunnskóla skal starfa skólaráð sem er stjórn skólans til ráðuneytis um innri mál hans, svo sem kennsluskipan, starfsáætlanir, skólatíma, slysavarnir og félagslíf í skólanum og fleira sem varðar daglega starfsemi skólans.``
    Mín spurning er þessi: Hvað þýðir ,,til ráðuneytis"? Hver er það sem á að ráða ef í odda skerst eða til tíðinda dregur og nauðsynlegt er að taka ákvarðanir í þessum málum sem ekki er kannski samstaða um í skólanum? Ég tel að í þeim efnum verði hins vegar að taka mjög skýrt á málum, t.d. ef stofnun af þessu tagi sem skólaráðið er á að fjalla um einstök atriði í kennsluháttum grunnskólans. Ég held að hv. þm. og aðrir sem um þetta fjalla verði helst að átta sig nákvæmlega á því hversu langt eða skammt á að ganga í þessu efni. Ég fyrir mitt leyti er ekki tilbúinn til að segja nákvæmlega til um hversu langt eða skammt á að ganga í þessu efni. Ég held að það sé hins vegar nauðsynlegt að hv. Alþingi geri sér ljóst að þegar svona mál yrði afgreitt með einhverjum hætti þarf að kveða skýrt á í þessum efnum vegna þess að ef svona mál eru óljós dregur það langan slóða á eftir sér og skapar vandamál inni í hverjum einasta skóla og kennslustofu í öllu landinu, og það er slæmt vegna þess að þetta eru viðkvæm mál. Þetta eru erfið mál sem snerta börnin og skiptir miklu máli að þar séu reglur eins skýrar og kostur er.
    Í sambandi við þá vinnu sem nú stendur yfir varðandi endursamningu og ákvarðanir um aðalnámsskrá grunnskólans er lögð mikil áhersla á þátt foreldranna og að gengið sé eins langt og hægt er á

grundvelli gildandi framhaldsskólalaga í þeim efnum. M.a. höfum við tekið um það ákvörðun að þegar gengið verður frá aðalnámsskrá grunnskólans til útgáfu, sem ég hef von um að verði í apríl í vor eða svo, verði nú þegar kallað í fulltrúa foreldrafélaga auk auðvitað fulltrúa kennarasamtakanna, fulltrúa Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands. Það eru ekki til nein samtök foreldrafélaga í landinu og þess vegna verðum við að fara þá leið að biðja skólaþróunardeildina um að velja eins og tvö foreldrafélög af handahófi, eitt í þéttbýli og annað í dreifbýli þar sem aðstæður eru ólíkar, til þess að starfa í samráðsnefnd við undirbúning að útgáfu og frágangi aðalnámsskrár grunnskólans.
    Í þessari vinnu sem fram fer við undirbúning að aðalnámsskrá grunnskólans er lögð mikil áhersla á samvinnu og gagnkvæmt upplýsingastreymi milli heimila og skóla. Það er nokkuð sem er alveg ljóst að samrýmist að öllu leyti og er að öllu leyti eðlilegt, það er upplýsingastreymið milli heimila og skóla. Þar tel ég að sé sjálfsagt að leggja alveg tilteknar kvaðir á skólana, jafnvel ríkari en verið hafa. Síðan verður auðvitað að skýra betur í slíkri námsskrá hlut skólans í uppeldinu og reyna að draga fram skyldur skólans með hliðsjón af skyldum foreldranna að svo miklu leyti sem það er á færi reglugerðargjafans að taka ákvarðanir í þeim efnum.
    Það er mat skólaþróunardeildar menntmrn. að eðlilegt sé að í aðalnámsskránni geti komið fram hvatning til foreldra um samvinnu en aðalnámsskráin sé hins vegar ekki réttur vettvangur til að skylda foreldra í þessu efni. Rökin fyrir því að lögð er áhersla á það í drögum að aðalnámsskrá, eins og þau liggja fyrir núna, að gert er ráð fyrir að þar komi fram hvatning til foreldra um samvinnu, eru m.a. þau að skólamenn í öllu landinu óska eftir því að aðalnámsskráin búi þannig að skólanum að foreldrarnir geti komið þar við sögu eins og kostur er.
    Hins vegar er nauðsynlegt að velta mjög vandlega fyrir sér einstökum atriðum í þessu efni. Eiga foreldrarnir aðeins að fjalla um það sem má kalla ytri umgjörð skólastarfsins? Hver á hlutur foreldra að vera í fræðslu? Á
skólinn að skipta sér af heimilishögum? Eiga foreldrar að hafa áhrif á val námsbóka? Eiga foreldrar að hafa áhrif á kaup á námsbókum? Eiga foreldrar að hafa áhrif á skipulag skólastarfs? Eiga foreldrar að hafa áhrif á kennsluhætti, bæði almennt og í einstökum atriðum? Eða á að einskorða áhrif foreldra við ytri mál eins og félagslíf, tómstundastörf, skólasvæðið o.s.frv.? Hvaða merkingu á að leggja í orðið ráðuneyti í þessu frv.? Allt þetta eru atriði sem þarf að skoða og við höfum tekið um það ákvörðun í menntmrn. að vinna að vissum lagfæringum á grunnskólalögunum. Það er ágæt samstaða um grunnskólalögin í grundvallaratriðum eins og þau eru, þann anda sem þar er um að ræða og þau grundvallaratriði sem þar er lögð áhersla á. Hins vegar eru lögin einfaldlega orðin fjórtán ára gömul og reynslan hefur fært okkur margt, nýjar upplýsingar, sem nauðsynlegt er að taka

tillit til. Þess vegna er það almenn skoðun að athuga þurfi grunnskólalögin og einstaka þætti þeirra.
    Ég vil þess vegna segja það, herra forseti, að ég tel að það sé mjög vel við hæfi að hv. Alþingi fjalli um grunnskólalögin og einstaka þætti þeirra. Jafnmikilvægt málefni og það er sem hér er hreyft á auðvitað að vera viðfangsefni þingsins.
    Í þessari virðulegu deild voru flutt nokkur frv. um skólamál á síðasta þingi, m.a. myndarlegt frv. frá þingkonum Kvennalistans um þau mál sem hlaut ágæta umræðu í þinginu. Vafalaust er margt í þessum efnum sem hægt er að laga í skólastarfinu almennt án þess að þurfi að kosta þar til stórkostlegum nýjum fjármunum. En það er auðvitað sá stóri vandi sem skólakerfið stendur frammi fyrir að það kostar dálítið og það er erfitt að bæta þar við svo nokkru nemi. Þess vegna verðum við að reyna að finna leiðir til þess að bæta skólastarfið án verulega aukinna útgjalda.
    Þessi hugmynd, sem er verið að fjalla um, þ.e. tengsl foreldra og skóla, er góð hugmynd. Við þurfum hins vegar að vanda okkur við það hvernig hún yrði útfærð.