Námslán og námsstyrkir
Miðvikudaginn 02. nóvember 1988

     Flm. (Finnur Ingólfsson):
    Herra forseti. Ég þakka hv. þm. þann mikla áhuga sem þeir sýna þessu litla lagafrv. sem við höfum lagt fram nokkrir þingmenn. Ég vona að þessi áhugi verði til þess að þessu frv. verði skilað í gegnum þingið og það verði að lögum áður en þing fer heim.
    Ég verð að fá að svara nokkrum rangfærslum hv. 2. þm. Reykv. Birgis Ísl. Gunnarssonar og um leið spurningum sem hann beindi til mín. Ég sagði í minni framsögu að ég legði þann skilning í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar að það ætti ekki að gera neinar breytingar á lögunum um námslán og námsstyrki þar sem ekki kæmi fram stafur um það í stjórnarsáttmálanum. Ég hef lagt fram fsp. til menntmrh. í þinginu, sem er 65. mál, um það hvort hann hyggist skipa nefnd eða gera einhverjar breytingar á lögum um námslán og námsstyrki. Hann hefur nú svarað því í raun. Hann ætlar ekki að gera það. Hann ætlar að setja vinnuhóp til að leiðrétta það misgengi sem átt hefur sér stað í Lánasjóðnum í ráðherratíð fyrrv. menntmrh. og ég ætla að koma inn á það aðeins síðar.
    Hv. þm. Hreggviður Jónsson sagðist styðja frv., eftir því sem ég skildi best. Ég held að það hljóti að vera dálítið erfitt að ætla að styðja frv. sem menn skilja alls ekki, það kom berlega fram í hans máli að hann skilur ekki frv. Hann talaði ekki um neitt annað en þann útgjaldaauka sem frv. hefði í för með sér. Það kallar á engin útgjöld. Það er ekki verið að tala um neinn útgjaldaauka í frv. Það er hins vegar fyrst og fremst verið að tala um að haft sé samráð við námsmenn ef gera eigi breytingar á reiknaðri framfærslu. Hins vegar er í frv. ákvæði til bráðabirgða um að þessi nefnd taki strax til starfa þegar lögin taka gildi og hún leggi mat á framfærsluna eins og hún er við gildistökuna, samanborið við framfærslu námsmanna eins og hún var í maí 1982 þegar lögin tóku gildi. Það verður hins vegar að koma í ljós hvort þessi könnun leiðir til þess að gerð verði breyting á framfærslunni, en þá er sú ákvörðun auðvitað í höndum menntmrh. Það geta nefnilega skapast þær aðstæður að það þurfi að skerða námslánin. Því miður búum við þannig að það geta skapast þær aðstæður að við þurfum að skerða þau rétt eins og menn þurfa að grípa inn í launasamninga og það kannast menn við.
    Ég hef fyrst og fremst og hef alltaf, alla tíð, verið að gagnrýna vinnubrögðin við setningu reglugerðanna. Ég hef verið að gagnrýna vinnubrögðin. Ekki það að menn þurfi í neyð að grípa til breytinga á framfærslugrunninum, heldur hvernig að því var staðið öllu saman. Það er það sem ég er að gagnrýna og hef verið að gagnrýna og það er það sem frv. á að koma í veg fyrir, að menn hagi sér í framtíðinni í stöðu menntmrh. eins og tveir og mér liggur við að segja þrír síðustu hæstv. menntmrh. hafa gert.
    Af því að hv. 2. þm. Reykv. kom inn á það áðan að ég hefði hlaupist frá undirskrift minni á þeim tillögum sem við lögðum fyrir hæstv. þáv. menntmrh. Sverri Hermannsson um breytingar á lögunum um

námslán og námsstyrki, þá eru það auðvitað bara rangfærslur. Líkt og nú skipaði hæstv. þáv. menntmrh. sérstakan vinnuhóp til að gera tillögur um hvaða leiðir væru færar til þess að hækka endurheimtuhlutfall námslánanna sem samið var um á sínum tíma að skyldi vera yfir 90% en hefur ekki náðst nema upp í 88%. Við lögðum til ákveðnar tillögur, þessi vinnuhópur sem þá var að störfum, og lögðum þær fyrir hæstv. menntmrh. en undirstrikuðum að ef einhverjar breytingar skyldi gera skyldi það gert í samráði við námsmenn, enda voru námsmenn kallaðir til. Þeir komu með nýjar hugmyndir og lögðu til að aðrar leiðir yrðu farnar sem við höfðum ekki komið auga á. Þegar slíkar upplýsingar koma fram hljóta menn auðvitað að vilja taka slíkt til athugunar. Niðurstaðan varð síðan sú að það var hægt að fara aðra leið, leið sem skilaði nákvæmlega sama árangri hvað endurheimtuna snerti og sú leið sem nefndin hafði lagt til við hæstv. menntmrh. Ég féllst því á það með námsmönnum að betra væri að fara þá leið vegna þess að hún væri léttbærari fyrir námsmenn. Hins vegar gat Sjálfstfl. ekki fallist á það og ég skil ekki enn af hverju. Um þetta stóð ágreiningurinn og út af þessu slitnaði upp úr þessum viðræðum um lögin um námslán og námsstyrki á þeim tíma.
    Meðan hv. 2. þm. Reykv. gegndi embætti menntmrh. skipaði hann sams konar vinnuhóp sem ég átti einnig sæti í. Við höfðum lagt til ákveðnar tillögur í skýrsluformi. Þær taka annars vegar til þess að halda áfram tekjutengingunni við endurgreiðsluna og ná þannig hærra endurheimtuhlutfalli til sjóðsins en verið hefur og hins vegar að stokka kerfið algjörlega upp, hafa það tvískipt, framfærslustyrki til námsmanna að ákveðinni upphæð en eftir það lán. Þetta getur líka skilað verulega háu endurheimtuhlutfalli. Það er hins vegar spurning hvort þingið er tilbúið til þess að standa að svo róttækri breytingu.
    Eins og kom fram í máli hv. þm. Páls Péturssonar vorum við með það í huga að leggja frv. fyrir síðasta þing. Þá, alveg af óskiljanlegum ástæðum, gat hæstv. þáv. menntmrh. ekki með nokkru móti fallist á að það yrði lagt fyrir þingið. Og af hverju ekki? Honum fannst það víst vera móðgun við sig eða er það svo að öll þau mál sem upp koma og snerta námsmenn til hagsbóta geti Sjálfstfl. alls ekki fallist á? Það væri fróðlegt að fá svar við slíku.
    Þeirri spurningu hvort þingflokkur framsóknarmanna styðji frv. eða ekki hefur verið svarað af formanni þingflokksins. Ég býst við að þingflokkur Alþb. styðji frv. líka vegna þess að það var borið undir þingflokkinn. Einstökum þm. Alþfl. var ekki boðið upp á að vera meðflm. frv. Það kemur í ljós hvort þingflokkur Alþfl. styður frv. eða ekki. Menn verða hins vegar að átta sig á því að þetta er ekki ríkisstjórnarfrv. Þetta er frv. einstakra þm. og ef áhugi þm. verður eins mikill fyrir þessu máli eins og komið hefur fram í umræðunni í dag efast ég ekkert um að frv. fari í gegnum þingið.
    Hv. 2. þm. Reykv. Birgir Ísl. Gunnarsson kom inn á það áðan að það væri ekkert einkamál menntmrh.

þegar framfærslan væri skert. Það væri öll ríkisstjórnin sem bæri ábyrgð á slíku. Menn mega ekki gleyma því að ríkisstjórnin er fjölskipað stjórnvald og það er menntmrh. sem fer með ákvörðunaratriði er snerta reglugerðarsetningu. Það eiga menn að vita sem búnir eru að vera í ráðherradómi. Í tíð hæstv. fyrrv. menntmrh., Birgis Ísl. Gunnarssonar, hafa verið gerðar slíkar endemis dellur við breytingar á úthlutunarreglum úr sjóðnum að þessi rökstuðningur hans áðan fyrir því að þetta hafi verið gert í því skyni að draga saman útgjöld sjóðsins stenst bara alls ekki. Og eins og hæstv. menntmrh. kom inn á áðan eru útgjöldin vegna þessara vitlausu reglugerðarbreytinga hærri upphæð eða nálægt því sama og það kostar að hækka framfærsluna um 17% eins og skerðingin er í dag, eða á bilinu 17--20%. Menn hafa aukið útgjöld Lánasjóðsins á síðustu tveimur árum um 250 millj. kr. eða rúmlega það með því að færa framfærsluna frá þeim námsmönnum sem þurfa á henni að halda yfir til þeirra sem hafa háar tekjur og þurfa ekki á framfærslunni að halda. Menn mega ekki gleyma því í þessum efnum að þarna eru menn farnir að vinna gegn meginhlutverki Lánasjóðsins. Það er farið að lána fólki sem hefur nógar tekjur til að lifa af, það er farið að lána því vaxtalaus lán til að fjárfesta fyrir. Þetta eru hlutir sem mega ekki ske. Lánasjóðurinn á að vera og hann er framfærslulánasjóður þeirra sem þurfa á því að halda að fá aðstoð meðan þeir eru í námi. Þegar ég segi vaxtalaus lán er ég auðvitað ekki að tala um að lánin séu óverðtryggð. Þessi lán eru verðtryggð samkvæmt lánskjaravísitölu en það eru ekki borgaðir vextir ofan á verðtrygginguna.
    Hæstv. menntmrh. kom inn á það hér áðan í lokaorðum sínum að það væri fleira en bara Lánasjóðurinn sem skipti námsmenn miklu máli. Því er ég alveg hjartanlega sammála og ég hef lagt fram á þinginu þáltill. um byggingarsjóð fyrir námsmenn og ég fagna því að í því fjárlagafrv. sem lagt hefur verið fyrir þingið skuli sérstakur styrkur koma til Félagsstofnunar stúdenta til byggingar á námsmannaíbúðum. Ég lagði þessa sömu tillögu fyrir þingið í fyrra, en þingið treysti sér þá ekki til þess að afgreiða hana. Hún er leið til þess að leysa úr, ég segi brýnasta hagsmunamáli námsmanna. Námsmönnum, sem fá lán frá Lánasjóðnum í dag, er ætlað að borga í húsaleigu af því láni 5120 kr. Vita menn hvað námsmenn þurfa að greiða í húsaleigu sem leigja úti í bæ? Fyrir tveggja herbergja íbúð er það á bilinu 20--30 þús. kr. á mánuði og fyrir eitt herbergi er það á bilinu 15--20 þús. Hvernig haldið þið að námsmenn komist af með því að hafa 5120 kr. til þess að greiða húsaleigu?