Námslán og námsstyrkir
Miðvikudaginn 02. nóvember 1988

     Birgir Ísl. Gunnarsson:
    Herra forseti. Það fer að styttast í fundartímanum og ég skal ekki hafa mjög mörg orð í annað skiptið sem ég tek til máls um þessa tillögu. Ég vil beina örfáum orðum bæði til hv. þm. Páls Péturssonar og hv. þm. Finns Ingólfssonar varðandi hugleiðingar þeirra um hvort ríkisstjórn sé fjölskipað stjórnvald eða ekki og hvar ábyrgðin liggi. Það er alveg ljóst í mínum huga og ég hef aldrei efast um það að ábyrgð á að setja eða breyta reglugerð um Lánasjóð ísl. námsmanna liggur auðvitað hjá menntmrh. Það er hins vegar alveg sama hversu fínar reglugerðir menn hafa og hversu há menn vilja hafa lánin í reglugerðum, ef peningarnir eru ekki til, skipta reglugerðirnar engu máli. Það var nákvæmlega það sem gerðist 1987, þegar reglugerðinni var breytt, að þáv. ríkisstjórn, í heild, tók ákvörðun um að skerða fjármagn til Lánasjóðs ísl. námsmanna og þar með var hæstv. þáv. menntmrh. neyddur til þess að laga reglugerðina að því fjármagni sem í boði var og þessa ákvörðun tók auðvitað ríkisstjórnin öll. Það er ríkisstjórnin í heild sem tekur slíkar meginákvarðanir um það hversu háum upphæðum eigi að verja í einstaka málaflokka, a.m.k. þegar við erum komnir í fjárhæðir sem þessar.
    Fjvn. var líka sammála þessu og lagði þetta til, þannig að Framsfl. getur ekki hlaupist undan þessari ábyrgð eins og báðir þessir tveir hv. þm. eru að gera, eins og Framsfl. gerir alltaf þegar á móti blæs og um óvinsæl mál er að ræða. Þá sjáið þið alltaf undir iljar honum á harðahlaupum burtu frá ábyrgðinni. Það er það sem hefur komið fram í ræðum þessara hv. þm. hér í dag og reyndar í þeim tillöguflutningi og þeim málatilbúnaði sem hér er viðhafður.
    Hvað snertir hæstv. menntmrh. þarf hann auðvitað ekkert að kveinka sér undan því þó að málefni Lánasjóðs ísl. námsmanna komi mjög á dagskrá núna. Hann hefur sjálfur gefið tilefni til þess meir en nokkur annar. Hæstv. ráðherra talaði nefnilega á síðasta kjörtímabili nákvæmlega eins og menn gerðu í Innansveitarkróníku um hreppsnefndina í Mosfellssveit eins og hv. þm. Páll Pétursson vitnaði til áðan. Hann taldi ríkisstjórnina vera skemmtinefnd þar sem menn væru bara að skemmta sér. Allur hans málflutningur á síðasta kjörtímabili benti til þess að þetta væri bara grín og gaman og ein skemmtun. Menn þyrftu ekki að hafa neinar áhyggjur af peningum. Þess vegna hafði hæstv. ráðherra mjög stór orð og hann lofaði miklu. Hann lofaði námsmönnum miklu. Hann lofaði þeim að umsvifalaust skyldi reglugerðinni breytt, þetta skerðingarákvæði numið úr gildi. Og ekki nóg með það, hann sagði: Það er skilyrði fyrir setu Alþb. í ríkisstjórn að þetta ákvæði verði tekið upp í málefnasamning. Hvar er það í málefnasamningnum? Hv. þm. Finnur Ingólfsson rifjaði það upp áðan. Það er hvergi stafkrók að finna um Lánasjóðinn í málefnasamningnum.
    Hæstv. ráðherra er kominn á harðahlaup undan þessum stóru orðum sínum, þessum stóru loforðum. Ég skal segja hæstv. ráðherra það að það mikið þekki ég til málefna Lánasjóðs ísl. námsmanna að ef hann

ætlar að afnema skerðingarákvæðin á þann hátt að skerða lán til þeirra sem hæst hafa launin nær hann engum verulegum fjárhæðum í því efni. Það er því mikill misskilningur ef hæstv. ráðherra heldur það að hann geti komist undan þessum loforðum sínum með þessum léttleika eins og hann reynir að gera hér. Það að breyta útlánareglunum í þeim dúr sem hann er að reyna að telja okkur trú um og telja námsmönnum trú um að skili sama árangri er ekki rétt. Hann nær ekki þessum 17% sem skerðingin varð með þessum kúnstum sem hann er að lýsa hér fyrir okkur. Hitt er svo annað mál og það er auðvitað meginatriði sem er nauðsynlegt að ræða. Það eru ekkert mjög há laun sem námsmenn mega hafa áður en farið er að skerða námslánin. Ég beitti mér fyrir breytingum í því skyni að menn mættu hafa hærri laun áður en farið væri að skerða lánin hjá þeim og ástæðan fyrir því var sú að ég fékk inn á borð til mín svo hrikaleg dæmi um það að námsmenn, sem höfðu slysast til þess, ég segi slysast, jafnvel af sínum óvilja að hafa hærri laun, t.d. læknanemar í læknanámi á spítölum eða menn í störfum tengdum sínum námi, misstu námslánin og stóðu verr uppi eftir en áður. Ég er alveg sannfærður um að þegar hæstv. ráðherra fer að skoða þetta dálítið betur verður hann sama sinnis og ég í því efni. Þetta er ekki spurningin um að vera með einhvern ójöfnuð. Þetta er spurningin hvort eigi að refsa mönnum fyrir það að vinna eða fá tekjur.
    Hv. flm. tala um að þetta sé sakleysislegt frv., sem það vissulega er á yfirborðinu, og það sé svo bara menntmrh. að ákveða hvort hann fari eftir því, það sé menntmrh. síðan að ákveða hvort hann vilji framfylgja því ákvæði til bráðabirgða þegar búið er að leggja mat á framfærsluna. Það er staðreynd að við vitum það í dag hvert matið eigi að vera. Við höfum þetta mat. Það liggur fyrir eins og hv. þm. Kristín Halldórsdóttir rifjaði upp. Þetta er spurningin um 500 millj. kr. í aukaútgjöld fyrir Lánasjóð ísl. námsmanna. Þetta er sú spurning. Og þið eruð ekki tilbúnir að gera neinar tillögur um þessa útgjaldaaukningu fyrir Lánasjóð ísl. námsmanna. Það verður auðvitað fylgst með því hér við afgreiðslu fjárlaga hvort þið komið með tillögur af því tagi. Að því leyti er þessi tillaga ekki sakleysisleg því hún gerir, sérstaklega ákvæði
til bráðabirgða, ráð fyrir því að þegar búið er að segja a sé sagt b, að þegar búið sé að leggja formlegt mat á þennan framfærslukostnað hljóti hann að verða greiddur. Það er mergurinn málsins. Þetta er ekki bara spurningin um eitthvert form, þetta er spurningin um efni. En úr því að þessi tillaga á svo víðtækan stuðning hjá bæði Framsfl. og Alþb., eins og hér kemur fram, mun ég auðvitað greiða fyrir því í menntmn. Nd., þar sem ég á sæti, að frv. renni í gegn. Ég tel nauðsynlegt að það verði afgreitt fyrir jól til þess að við höfum það alveg svart á hvítu hvaða fjármagn Lánasjóður ísl. námsmanna þurfi á að halda til þess að hægt sé að framkvæma þann vilja sem virðist vera fyrir hendi hjá meiri hluta Alþingis í þessu efni.