Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
Virðulegi forseti. Góðir Íslendingar. Sú ríkisstjórn sem tók við 28. sept. sl. hóf feril sinn eins og allar ríkisstjórnir á Íslandi undanfarna áratugi með brýnum aðgerðum í efnahags- og atvinnumálum, en e.t.v. brýnni nú en um langt skeið.
Jafnframt því sem ég mun að sjálfsögðu fjalla um stefnu ríkisstjórnarinnar í mikilvægum málaflokkum mun ég lýsa fyrstu ráðstöfunum til endurreisnar atvinnulífinu. Áður sýnist mér þó rétt að fara nokkrum orðum um aðdraganda þeirra miklu erfiðleika sem við er að stríða. Vil ég með því móti leitast við að varpa ljósi á þau mein sem til grundvallar liggja og þau mistök sem hafa verið gerð.
Eftir hagstæða þróun í íslenskum atvinnu- og efnahagsmálum á árinu 1986 urðu um áramótin og í upphafi ársins 1987 ljós hættumerki. Umframeftirspurn eftir vinnuafli var orðin mikil, launaskrið var vaxandi og í kjölfar þess mikil þensla. Í kosningabaráttunni og í margra vikna tilraunum til stjórnarmyndunar tókst ekki að ná samstöðu um aðgerðir til þess að hamla gegn þessari hættu þótt hún í raun mætti vera hverjum manni ljós.
Við stjórnarmyndun í júlí 1987 urðu þeir flokkar sem að stjórninni stóðu því miður ekki heldur sammála um nægilega róttækar efnahagsaðgerðir. Þensla fór því enn vaxandi á árinu 1987. Viðskiptahalli myndaðist á ný og varð ríflega 7 milljarðar kr. Þessi þróun birtist m.a. í gífurlegri fjárfestingu, einkum á höfuðborgarsvæðinu og meiri innflutningi, t.d. bifreiða, en nokkru sinni fyrr. Síðasta ríkisstjórn ákvað þó að bíða með frekari efnahagsaðgerðir þar til í tengslum við kjarasamninga.
Eftir kjarasamninga í febrúar var gengi krónunnar fellt um 6%. Fljótlega kom þó í ljós að sú gengisfelling náði skammt. Í vaxandi verðbólgu fór staða atvinnuveganna á ný versnandi. Það jók jafnframt á erfiðleikana að verðfall varð á frystum afurðum á Bandaríkjamarkaði. Var svo komið í lok maí að útflutningsgreinarnar bjuggu á ný við mikinn halla. Var þá enn gripið til þess ráðs að fella gengið, nú um 10%. Jafnframt voru Akureyrarsamningarnir svonefndu lögboðnir fyrir alla þá hópa sem ekki höfðu samið.
Fyrirheit voru og gefin um ýmsar aðrar aðgerðir í efnahagsmálum. M.a. var því heitið að koma í veg fyrir víxlverkun verðlags, gengis, launa og fjármagnskostnaðar sem einkennt hefur íslenskt efnahagslíf í áratug og keyrt áfram skrúfu verðbólgunnar. Einnig var boðað að vinna að lækkun þess gífurlega fjármagnskostnaðar sem tröllriðið hefur fyrirtækjum og heimilum undanfarin missiri.
Því miður tókst ekki að standa við slík fyrirheit og var staða atvinnuveganna fljótlega orðin engu betri en fyrr. Eins og á árinu 1982 sannaðist enn að uppfærsluleiðin, þ.e. gengisbreyting, er ekki fær til þess að lagfæra stöðu útflutningsgreinanna nema um stuttan tíma, a.m.k. ef ekki er spornað gegn víxlverkunum með því að takmarka sem mest áhrif gengisfellinga á hina ýmsu þætti efnahagslífsins. Þetta
á ekki síst við um fjármagnskostnaðinn.
Eflaust eru skoðanir skiptar um orsakir þeirra efnahagserfiðleika sem þjóðin á nú við að stríða. Þó vil ég freista þess að fara um það nokkrum orðum, ekki síst til þess að skýra hvað liggur til grundvallar breyttri stefnu núverandi ríkisstjórnar.
Síðan 1985 má segja að hér á landi hafi verið fylgt hefðbundnum vestrænum leiðum í efnahagsmálum. Ætlað var að skapa jafnvægi með því að takmarka framboð fjármagns og láta markaðinn ráða vöxtum. Um þessa leið voru að vísu skiptar skoðanir, en þeir sem ráðið hafa stjórn peningamála í landinu höfðu sitt fram. Því verður hins vegar varla á móti mælt að ekki tókst að ná því jafnvægi sem að var stefnt. Að vísu virtist þróun peningamála vera jákvæð á árinu 1986. Þá óx sparnaður umfram útlán og raunvextir voru hóflegir. Hins vegar fór uppsveiflunnar í sjávarútvegi fljótlega að gæta eins og ætíð áður og umrætt jafnvægi fór ótrúlega fljótt úr skorðum. Þrátt fyrir mikla bindingu fjármagns og strangar kröfur um lausafjárstöðu viðskiptabankanna fór þensla vaxandi. Þrátt fyrir mikla hækkun vaxta dró lítið sem ekkert úr eftirspurn eftir fjármagni. Jafnvel gamalgróin fyrirtæki, sem ekki fengu þörfum sínum fullnægt hjá viðskiptabönkunum, leituðu út á fjármagnsmarkaðinn utan bankanna og greiddu þar raunvexti sem enginn venjulegur rekstur fær undir staðið til lengdar.
Í stað þess að skapa jafnvægi á peningamarkaðnum leiddi takmörkun eða stjórnun á útlánum viðskiptabankanna annars vegar en hins vegar svonefnt frjálsræði eða stjórnleysi á öðrum hluta fjármagnsmarkaðarins til þess að útflutningsgreinarnar urðu í fjármagnssvelti en atvinnurekstur sem telur sig geta velt kostnaðinum yfir í verðlagið sótti fjármagnið í verðbréfasölur og kaupleigufyrirtæki á óheyrilegum vöxtum. Á árinu 1987 urðu erlendar lántökur u.þ.b. 4 milljörðum meiri en gert var ráð fyrir. Nálægt helmingurinn af því fjármagni rann í gegnum greipar hinna nýju kaupleigufyrirtækja.
Þetta er stutt lýsing á stjórn efnahagsmála eftir leið peningahyggjunnar. Það var gert í nafni frelsis en hefur í raun leitt yfir þjóðina meiri höft í
viðjum fjármagnsins en við Íslendingar höfum áður þekkt. Ýmsir dyggir stuðningsmenn peningahyggjunnar munu að vísu telja að mistökin séu í því fólgin að ekki var enn hert að hengingarólinni með aukinni bindingu og enn meiri hækkun vaxta. Því er jafnan haldið fram að réttasta leiðin úr erfiðleikum atvinnulífsins og til hagræðingar í efnahagslífinu sé í gegnum gjaldþrot þeirra fyrirtækja sem ekki þola fjármagnssveltið og hina háu vexti.
Ég tel að síðasta ríkisstjórn hafi ekki fylgt þeirri stefnu. Þvert á móti er það sannfæring mín að flestum eða öllum í þeirri ríkisstjórn hafi verið ljóst að slíkan blóðvöll þolir íslenskt efnahagslíf ekki. Núv. ríkisstjórn hafnar með öllu slíkum hugmyndum.
Í þjóðhagsáætlun kemur fram að framfærsluvísitala hækki frá upphafi til loka þessa árs, m.ö.o. að verðbólgan á árinu verði rúmlega 25%. Það er sama verðlagshækkun og varð á síðasta ári en tvöföld
verðbólgan á árinu 1986. Viðskiptahalli í ár er talinn verða um 4,6% eða tæplega 12 milljarðar kr. Það er mikil breyting frá árinu 1986 þegar viðskiptajöfnuður var jákvæður.
Fyrir fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum voru botnfiskveiðar og vinnsla í heild rekin með halla sem að mati Þjóðhagsstofnunar nam 6%. Hallinn var talinn mestur á frystingu eða 8%, 3% í veiðum en söltun með 2% í jákvæða afkomu. Rækjuvinnsla var talin rekin með 3% halla. Þótt ekki liggi fyrir tölur um ullariðnaðinn og aðra útflutningsframleiðslu má fullyrða að þar hafi yfirleitt verið um hallarekstur að ræða. Þessar tölur lýsa þó ekki öllum erfiðleikum útflutningsatvinnuveganna. Í fyrsta lagi telja forustumenn fyrirtækjanna að fjármagnskostnaður sé mjög vanmetinn af Þjóðhagsstofnun, enda er í þeim útreikningum ekki tekið tillit til vanskila og mikils fjármagnskostnaðar sem því fylgir. Í öðru lagi hefur eiginfjárstaða fjölmargra fyrirtækja ef ekki allra rýrnað mjög á undanförnum mánuðum við stöðugan taprekstur.
Gífurlegur fjármagnskostnaður hefur sogað til sín fjármagn atvinnuveganna. Talið er að eigið fé frystingarinnar einnar hafi rýrnað um hátt á annan milljarð kr. á þessu ári. Þessi þróun gengur þvert gegn almennt viðurkenndri nauðsyn þess að treysta grundvöll atvinnulífsins með auknu eigin fé. Hlutfallslega lítið eigið fé fyrirtækja hér á landi veikir íslenskt atvinnulíf í vaxandi alþjóðlegri samkeppni.
Daglegar tilkynningar um gjaldþrot bera þess glöggt vitni. Flest hafa þau verið í verslun, viðskiptum og þjónustu, allmörg fyrirtæki í sjávarútvegi og iðnfyrirtæki, einkum í fata- og ullariðnaðinum, hafa þó einkum stöðvast. Lánastofnanir hafa þá haldið útflutningsfyrirtækjunum almennt gangandi lengur þótt staðan sé þar í mörgum tilfellum engu betri.
Þessi miklu gjaldþrot munu reynast mikil blóðtaka fyrir íslenskt efnahagslíf. Þau munu teygja anga sína ótrúlega víða. Sú óarðbæra fjárfesting sem að baki liggur hefur að sjálfsögðu aukið erlendar skuldir þjóðarbúsins. Þær þarf að greiða þótt af öðrum verði en þeim sem til fjárfestinganna stofnuðu. Við það mun afkoma þjóðarbúsins og sérhvers einstaklings versna. Þjóðin mun öll súpa seyðið af hinni margrómuðu frjálshyggju í peninga- og fjárfestingarmálum. Óheft hefði þessi þróun gjaldþrota- og framleiðslustöðvunar vafalaust leitt til meira atvinnuleysis en við höfum lengi þekkt og að sjálfsögðu gífurlegrar kjaraskerðingar. Ég óttast reyndar að því fari víðs fjarri að öll kurl séu komin til grafar.
Við þær aðstæður, sem ég hef nú lýst, hefur gengisfelling yfirleitt verið bjargráðið. Margendurtekin reynsla hefur hins vegar sýnt okkur að við þær aðstæður sem við búum við, miklar erlendar skuldir og vísitölutengingu m.a. fjármagns, er sú leið aðeins skammgóður vermir. Hún eykur fyrst og fremst verðbólguna og erfiðleikana þegar til lengri tíma er litið. Eftir að samstaða brást um niðurfærsluleiðina svonefndu var því ekki um annað að ræða en að fara
blandaða leið. Markmið fyrstu aðgerða ríkisstjórnarinnar er að koma í veg fyrir stöðvun útflutningsframleiðslunnar, treysta atvinnuöryggið í landinu og færa niður vexti og verðbólgu. Verður þeim nú lýst í fáum orðum.
Til þess að draga úr þörf fyrir sértækar aðgerðir í þágu einstakra útflutningsgreina var ákveðið að nota þá heimild sem fyrri ríkisstjórn hafði veitt til 3% lækkunar á gengi íslensku krónunnar. Þessi aðgerð lagar að sjálfsögðu bæði stöðu útflutnings- og samkeppnisgreina en veldur því miður hækkun á verðlagi um nálægt 2%. Hins vegar er lögð áhersla á ráðstafanir til þess að draga úr kostnaði. Lækkun vaxta og samræmd stjórn á fjármagnsmarkaðinum öllum mun, ekki síst þegar til lengri tíma er litið, reynast einna mikilvægust til lækkunar á kostnaði atvinnureksturs og heimila.
Ríkisstjórnin fól því Seðlabanka Íslands að hefja án tafar viðræður við viðskiptabankana um lækkun bæði nafnvaxta og raunvaxta. Þótt nokkur árangur hafi orðið er hann enn allt of lítill. Lækkun meðalraunvaxta útlána í 5--6% á næstunni er nauðsynleg. Ríkisstjórnin mun beita heimildum í 9. gr. laga um Seðlabanka Íslands í þessu skyni ef þörf krefur. Þess ætti þó varla að vera þörf í þeirri hraðminnkandi þenslu sem fram undan er.
Útreikningi dráttarvaxta hefur verið breytt. Þeir reiknast nú sem
dagvextir. Vaxtamunur afurðalána hefur verið lækkaður um 0,7%. Grundvelli lánskjaravísitölu mun verða breytt þannig að verulega dragi úr misgengi fjármagnskostnaðar og launa. Það verður gert með því að auka vægi launa í grundvelli lánskjaravísiötlunnar. Jafnframt hefur verið ákveðið að heimila þeim sem þess óska viðmiðun við gengi. Að því er stefnt að afnema lánskjaravísitölu strax og jafnvægi í efnahagsmálum er náð og draga þannig úr víxlhækkun verðlags og fjármagnskostnaðar.
Í því skyni að samræma stjórn á fjármagnsmarkaðnum öllum hafa þegar verið lögð fyrir Alþingi frv. um verðbréfaviðskipti og eignarleigustarfsemi. Er í þeim m.a. gert ráð fyrir heimild til þess að binda hluta af ráðstöfunarfé verðbréfasjóða svipað og er gagnvart viðskiptabönkunum. Með ströngum reglum og eftirliti á að tryggja hag viðskiptavina svo fátt eitt sé nefnt. Stefnt er að því að skylt verði að skrá á nafn hvers konar skuldabréf og eigendaskipti á þeim og að bankar og fjármálafyrirtæki verði upplýsingaskyld gagnvart skattyfirvöldum.
Til þess að sporna gegn hækkun framleiðslukostnaðar, hækkun raungengis og þeirri hættu á gengisfellingu, sem því mundi fylgja, var óhjákvæmilegt að fella niður þær launahækkanir sem um hafði verið samið 1. sept. og 1. des. Á hinn bóginn var ákveðið að hækka laun um 1,25% 15. febr. nk. Laun bænda og fiskverð var og bundið til sama tíma. Ákvæði kjarasamninga um launabreytingar eftir 1. mars halda gildi sínu.
Með ýmsum ráðstöfunum er leitast við að mæta
þeim áhrifum sem aðgerðirnar hafa á afkomu einstaklinga og heimila. Í því skyni var tekjutrygging elli- og örorkulífeyrisþega og heimilisuppbót hækkuð um 3% frá 1. okt. sl. Settur verður á fót sérstakur skuldbreytingasjóður húsbyggjenda og heimila. Honum er ætlað að liðsinna fjölskyldum í alvarlegum greiðsluerfiðleikum. Til hans verður aflað 150 millj. kr.
Mikilvægust fyrir fjölda launafólks verður þá eflaust sú lækkun vaxta og breyting á lánskjaravísitölu sem ég hef lýst og sú verðstöðvun sem nú er. Með því að beita heimild í 7. gr. laga um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti hefur ríkisstjórnin ákveðið að óheimilt verði til 28. febr. 1989 að hækka verð vöru og þjónustu nema sem nemur hækkun á erlendu innkaupsverði og hækkun á verði á innlendum grænmetis- og fiskmörkuðum. Á þeim tíma mun verð á búvöru heldur ekki breytast en sú hækkun sem átti að verða 1. okt. greidd niður.
Gjaldskrár fyrirtækja á vegum ríkis eða sveitarfélaga og gjaldskrár sjálfstætt starfandi sérfræðinga verða einnig óbreyttar til 28. febr. 1989 að öðru leyti en því sem nemur hækkun á erlendu innkaupsverði aðfanga. Á verðstöðvunartímabilinu er einnig óheimilt að hækka húsaleigu.
Með þessum aðgerðum er mjög dregið úr þeim hækkunum sem að öðrum kosti hefðu orðið á rekstri atvinnufyrirtækja og heimila. Jafnframt er sú launaskerðing sem launafólk verður fyrir að verulegu leyti bætt. Með tilliti til þess að rekstrarafkoma frystingar og ullariðnaðar hefur verið hvað lökust var ákveðið að færa sérstaklega fjármagn til þessara greina.
Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins var heimilað að taka erlend eða innlend lán með ríkisábyrgð allt að 800 millj. kr. Andvirði lánsins er notað til greiðslu verðbóta vegna framleiðslu á freðfiski og hörpudiski á tímabilinu frá 1. júní sl. til 31. maí 1989. Þetta samsvarar um það bil 5% verðuppbót á freðfisk. Það er sú uppbót sem eðlilegt hefði verið að greiða úr Verðjöfnunarsjóði vegna verðfalls undanfarinna mánaða ef greinin hefði átt þar fjármagn. Þessi útborgun er þegar hafin. Þá hefur verið ákveðið að auka niðurgreiðslur á ull til ullariðnaðarins um allt að 40 millj. kr.
Í samræmi við ákvæði bráðabirgðalaga greiðir stjórn Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins verðbætur vegna framleiðslu á rækju frá 1. júní sl., enda hefur sú grein átt í miklum erfiðleikum og verðfalli. Í athugun er lækkun raforkuverðs til þess fiskiðnaðar sem býr við tiltölulega jafna sólarhrings- og ársnotkun. Þá mun uppsafnaður söluskattur fiskeldis og loðdýraræktar verða endurgreiddur með hliðstæðum hætti og til annarra útflutningsgreina. Að mati Þjóðhagsstofnunar munu ofangreindar aðgerðir leiða til þess að afkoma botnfiskvinnslunnar verður í járnum. Hins vegar er talið að botnfiskveiðar og vinnsla verði í heild með halla sem nemur um það bil 1%. Í þessum útreikningum er þó ekki tekið nema lítillega tillit til lækkunar á fjármagnskostnaði.
Augljóst er að slík afkoma mun ekki gera atvinnufyrirtækjunum kleift að greiða úr þeim miklu vanskilum sem safnast hafa í taprekstri undanfarinna missira. Því hefur verið settur á fót sérstakur sjóður sem nefnist Atvinnutryggingarsjóður útflutningsgreina. Sjóði þessum er ætlað að leysa úr fjárhagsvanda fyrirtækja í útflutningi með skuldbreytingu og hagræðingu. Sjóðurinn mun fá 2000 millj. kr. til ráðstöfunar á næstu tveimur árum. Af framlagi ríkissjóðs til Atvinnuleysistryggingasjóðs munu samtals 600 millj. kr. renna til þessa nýja sjóðs, enda er með þessum sjóði ekki síst stefnt að því að koma í veg fyrir mikið atvinnuleysi. Þá mun Atvinnutryggingarsjóður fá 200 millj. kr. árlegt framlag næstu tvö árin úr ríkissjóði. Framlag ríkissjóðs
verður því 1 milljarður kr. Jafnframt er sjóðnum heimilað að taka með ríkisábyrgð lán að upphæð 1 milljarður kr. Atvinnutryggingarsjóði er og ætlað að hafa milligöngu um skuldbreytingu á allt að 5000 millj. kr. Einnig er sjóðsstjórninni heimilt að verja umtalsverðu fjármagni til þess að auðvelda fyrirtækjum að ráðast í skipulagsbreytingar og hagræðingu.
Atvinnutryggingarsjóði útflutningsgreina hefur þegar verið skipuð stjórn. Hún er skipuð samkvæmt tilnefningu sjútvrh., fjmrh., viðskrh. og iðnrh. en formaður er skipaður af forsrh. án tilnefningar. Reglugerð fyrir sjóðinn hefur verið gefin út. Sjóðurinn hefur tekið til starfa og umsóknir eru farnar að berast inn í stríðum straumum.
Með þeim fyrstu aðgerðum sem ég hef nú rakið er vænst að takast megi að koma í veg fyrir það hrun sem við blasti í íslensku efnahagslífi. Með þeim verður þó fyrst og fremst óbeint dregið úr erfiðleikum verslunar, innlends iðnaðar og fjölmargra sveitarfélaga. Eins og staða þjóðarbúsins er er aðeins svigrúm til beinna aðgerða í þágu útflutningsgreinanna, enda byggir flest annað í þjóðfélaginu á þeirri framleiðslu.
Þess er þó ekki að vænta að komið verði í veg fyrir stöðvun allra útflutningsfyrirtækja. Hætt er við að ýmsir muni verða í erfiðleikum jafnvel þótt ríkisstjórnin sé ákveðin í því að fylgjast náið með þróun atvinnulífsins næstu vikur og mánuði og muni grípa til sérstakra aðgerða eins og aðstæður kunna að leyfa hverju sinni. Má sem dæmi nefna að ríkisstjónin mun leita leiða til þess að tryggja fiskeldi rekstrar- og afurðalán sem verði sambærileg við það sem aðrar útflutningsgreinar njóta.
Ríkisstjórninni er vel ljóst að fyrstu aðgerðir hennar tryggja ekki rekstrarafkomu útflutningsgreinanna þegar til lengri tíma er litið. Því verður hins vegar ekki á móti mælt að reksturinn er lagfærður að ýmsu leyti, væntanlega um nokkra framtíð, en að öðru leyti bættur þann tíma sem um sértækar aðgerðir er að ræða. Staðreyndin er að við verðum að vinna okkur jafnt og þétt út úr erfiðleikunum. Við gerum það ekki með nýjum kollsteypum.
Ýmsir telja að verðhækkun muni verða á sjávarafurðum að vori vegna uppskerubrests í
Bandaríkjunum. Sjálfir hafa framleiðendur sagt að lítil verðbólga sé einhver mikilvægasta kjara- og rekstrarbótin. Á árinu 1989 gæti hún orðið aðeins um 6%. Við þær aðstæður og þolanlegan fjármagnskostnað er vafalaust umtalsverð hagræðing möguleg. Allt slíkt mun bæta samkeppnisstöðuna.
Vissulega er framtíðin óviss en svartsýni er alls ekki tímabær. Ríkisstjórnin mun fylgjast náið með horfum og mun í samráði við atvinnurekendur og verkalýðshreyfingu gera þær ráðstafanir sem kunna að vera nauðsynlegar til að tryggja rekstrargrundvöll og atvinnuöryggi.
Fjárlagafrv. fyrir árið 1989 hefur verið lagt fram. Gerð þess hefur verið miklum erfiðleikum háð. Komið hefur í ljós að fjárlagahalli á árinu 1988 verður meiri en talið var. Því veldur m.a. snöggur samdráttur í efnahagslífinu sem dregur úr tekjum ríkissjóðs, stórum meiri vaxtakostnaður en gert var ráð fyrir og kostnaður við ýmsar efnahagsaðgerðir sem ríkisstjórnin hefur gripið til. Er nú talið að rekstrarhalli á árinu 1988 gæti orðið rúmir 3 milljarðar kr. Á yfirstandandi ári er engin leið til að jafna þennan halla þótt leitast verði við að draga úr honum. Þetta er að sjálfsögðu skaðlegt. Þjóðhagsstofnun telur að á yfirstandandi ári hafi bæði einkaneysla og fjárfesting hins opinbera dregist mjög saman eftir gífurlega aukningu, sérstaklega einkaneyslu, á árinu 1987. Halli á ríkissjóði hefur án efa stuðlað að því að þensla hefur haldist lengur og vextir verið háir.
Að óbreyttu væri halli upp á 4,5 milljarða kr., a.m.k. á ríkissjóði, á árinu 1989. Þótt fram undan muni vera verulegur samdráttur er slík afkoma ríkissjóðs óþolandi. Hún mundi annaðhvort leiða til of mikillar eftirspurnar eftir innlendu fjármagni og því hárra vaxta eða erlendrar lántöku sem skuldastaða þjóðarbúsins fær vart borið. Ríkisstjórnin hefur því leitað allra leiða til að jafna þennan halla. Gert er ráð fyrir að gera það annars vegar með niðurskurði í rekstri og hins vegar með aukinni tekjuöflun eins og fram kemur í frv. til fjárlaga. Hvorugt er auðvelt. Mun verða lögð áhersla á að auka ekki skatta á þeim sem hafa lægri tekjur eða eiga minni eignir.
Í hinu íslenska velferðarkerfi, sem við getum á margan hátt verið stoltir af, hafa útgjöld til heilbrigðis- og tryggingamála stöðugt farið vaxandi og nema nú um það bil 40% ríkisútgjalda. Með fjölgun aldraðra og bættri heilbrigðisþjónustu stöndum við eins og öll önnur velferðarríki frammi fyrir hraðvaxandi útgjöldum á þessu sviði. Ekki er um annað að ræða en taka þessa þjónustu til gagngerðrar endurskoðunar. Með tilliti til þess hve lífskjör hafa stórlega batnað á síðustu árum og áratugum virðist ekki óeðlilegt að endurskoða þau markmið sem sett voru í upphafi við allt aðrar aðstæður. Þannig leyfi ég mér að efast um að til þess hafi verið ætlast í kringum 1937 þegar tryggingakerfinu var komið á fót að ellilífeyrir yrði greiddur af almannatryggingum jafnvel til hátekjumanna.
Við gerð þessa fjárlagafrv. hafa allar leiðir til sparnaðar verið þaulskoðaðar en þess þó gætt að draga
sem minnst úr velferðarkerfinu. Ýmsir
munu þó eflaust telja sinn hlut skertan. Því er helst til að svara að ríkisstjórnin hefur ekki treyst sér til frekari skattheimtu.
Vegna þeirra miklu erfiðleika sem við blasa í atvinnu- og efnahagslífi hef ég talið nauðsynlegt að fjalla allítarlega um fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinnar. Um leið og ráðist er gegn hinum bráða vanda verður hafin framkvæmd þeirrar stefnu sem lýst er í málefnasamningi stjórnarflokkanna. Tími minn leyfir aðeins að lýsa nokkrum höfuðatriðum.
Meginverkefni ríkisstjórnarinnar verður að treysta grundvöll atvinnulífsins, stöðu landsbyggðarinnar allrar og undirstöðu velferðarríkis á Íslandi. Ríkisstjórnin mun í senn byggja á framtaki einstaklinga og samvinnu og samstarfi á félagslegum grunni. Samræmd stjórn ríkisfjármála, peningamála og gengismála, sniðin að íslenskum aðstæðum, verður grundvöllur efnahagsstefnunnar. Stefnt verður að stöðugleika í gengismálum. Lært verður af reynslu undanfarinna ára og leitast við að halda jafnvægi í þjóðarbúinu með aðhaldi í ríkisfjármálum og peningamálum en ekki hikað við að grípa í taumana með beinum aðgerðum ef þörf krefur. Í því skyni verður lögð áhersla á samræmd lög og reglur fyrir fjármagnsmarkaðinn í heild þannig að hann gegni betur sínu mikilvæga hlutverki. Með betra skipulagi viðskiptabanka verður leitast við að gera bankakerfið hagkvæmara og draga úr vaxtamun.
Í atvinnumálum verður lögð áhersla á hagvöxt og skynsamlega nýtingu sameiginlegra auðlinda þjóðarinnar. Tekið verður í því sambandi fyllsta tillit til byggðasjónarmiða. Byggt verður á athafnafrelsi einstaklinga og félaga og frjálsræði í milliríkjaviðskiptum. Hvatt verður til ábyrgðar eigenda þannig að arðsemissjónarmið ráði ákvörðun.
Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir jafnvægi í byggðaþróun. Í því skyni munu sveitarfélögin í landinu m.a. verða efld, lög um tekjustofna sveitarfélaga verða endurskoðuð með það að markmiði að auka sjálfstæði og jafna aðstöðu. Ráðstafanir munu verða gerðar til að jafna flutningskostnað og kostnað við síma, húshitun og skólagöngu. Byggðasjóður mun verða efldur og fleiri ráðstafanir gerðar til þess að snúa við þeirri byggðaröskun sem hefur orðið undanfarin ár.
Á sviði fræðslu- og uppeldismála verður m.a. unnið að því að koma á samfelldum skóladegi og átak gert til þess að jafna menntunaraðstöðu í landinu. Stuðningur við vísindarannsóknir verður aukinn svo fátt eitt sé nefnt.
Góðir Íslendingar. Að mati Þjóðhagsstofnunar munu þjóðartekjur dragast saman um 5--6% á yfirstandandi ári og því næsta. Við þær aðstæður er óhjákvæmilegt að kaupmáttur minnki. Mikilvægast er að sá samdráttur verði sem mest af því að úr yfirborgunum og yfirvinnu dragi án þess að komi til atvinnuleysis. Talið er að aðeins dragi úr viðskiptahalla á næsta ári. Engu að síður er áætlað að hann verði um 11--12 milljarðar kr. Erlendar skuldir þjóðarinnar munu að
sjálfsögðu vaxa að sama skapi. Þetta er ekki viðunandi niðurstaða, en lengra verður varla komist á árinu 1989 án þess að draga meira úr kaupmætti eða hækka verð á afurðum okkar erlendis. Ég óttast að þessi spá Þjóðhagsstofnunar lýsi aðeins þeim hluta jakans sem upp úr stendur. T.d. munu gjaldþrot vegna afar óskynsamlegra fjárfestinga og ofneyslu í nafni frjálshyggjunnar mörg ekki komin upp á yfirborðið. Keðjuverkun mun teygja sig víða. Spurningin er hvar hún verður stöðvuð.
Þegar ný ríkisstjórn tók við 28. sept. sl. var atvinnulífið þannig á hraðri ferð fram af hengifluginu, hneppt í hnappheldu fjármagnsfjötra og tapreksturs. Þegar litið er yfir farinn veg undanfarinna missira er eðlilegt að spurt sé: Hvernig gat svo farið?
Í sjávarútvegi hefur verið góðæri og kaupmáttur einstaklinga og fjölskyldna meiri en nokkru sinni fyrr. Það er kaldhæðnislegt að einmitt í slíkum einkennum velmegunarinnar skuli felast broddur erfiðleikanna. Leitt er til þess að vita að enn einu sinni skuli sannast að við kunnum ekki fótum okkar forráð þegar vel árar. Ef leita á skýringar er hún e.t.v. helst sú að menn hafa ekki gert sér grein fyrir hvert stefndi. Það kann að vera gild afsökun fyrir ýmsa einstaklinga og e.t.v. stjórnendur sumra fyrirtækja, en varla fyrir þá sem ráða eiga landsmálum. Að vísu hefur ótrúlega oft heyrst, og heyrist jafnvel enn hjá þeim sem treysta á almennar aðgerðir í peningamálum sem einu réttu leiðina til að stjórna efnahagsmálum þjóðarinnar, að í raun sé ekkert að og réttast sé að gera ekki neitt. M.ö.o.: Hagræða á í gegnum gjaldþrotin. Slíkir menn sitja í fílabeinsturnum og vita ekki um hvað er að ræða. Atvinnuleysi yrði gífurlegt. Byggðarlög og einstaklingar yrðu rúin sjálfsbjargarmætti og sjálfstrausti. Fjármagnið yrði á fárra höndum. Langan tíma mundi taka að byggja upp á ný úr þeim ragnarökum.
Sú ríkisstjórn sem nú situr mun ekki hlíta slíkum ráðum. Hún mun ekki hika við að grípa inn í þróun mála til að forða þjóðarvoða. Í því skyni hefur reynst óhjákvæmilegt að víkja til hliðar um skamma stund mikilvægum mannréttindum. Það ber að sjálfsögðu að forðast í lengstu lög. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að atvinnuleysi sé eitthvert versta böl sem fyrir íslensku þjóðina getur komið. Ég leyfi mér að fullyrða að við Íslendingar
höfum verið nær miklu atvinnuleysi nú en nokkru sinni fyrr frá því fyrir síðustu heimsstyrjöld.
Ríkisstjórnin mun ekki treysta á handahófskennda frjálshyggju. Hún mun leggja áherslu á að skapa þann grundvöll sem gerir atvinnulífinu kleift að vinna sig jafnt og þétt en örugglega út úr erfiðleikunum. Ríkisstjórnin mun sníða stjórn efnahagsmála að íslenskum aðstæðum. Því ætlar ríkisstjórnin að ráða.
Eflaust sýnist ýmsum sú mynd dökk sem ég hef dregið upp af ástandi og horfum í atvinnu- og efnahagsmálum. Það er rétt. Hins vegar vil ég leggja á það áherslu að ég er bjartsýnn þegar til lengri framtíðar er litið. Ég efast um að aðrar þjóðir eigi fleiri góða kosti en við Íslendingar. Vísa ég m.a. til
þess mikla auðs sem felst í ómenguðum náttúruauðlindum þessa lands og ekki síður hugvits einstaklinga og atorku þeirra. Margendurtekin reynsla sýnir okkur hins vegar að slíkur auður kemur að litlum notum ef ekki ríkir jafnvægi í efnahagsmálum, stöðugleiki í verðlagsmálum, neysla í hófi og viðunandi afkoma atvinnuveganna. Við þær aðstæður mun afkoma þjóðarbúsins og heimilanna jafnt og þétt batna. Slíkur bati mun reynast traustari og varanlegri en kollsteypur þær sem við Íslendingar höfum reynt allt of lengi.
Ég þakka þeim sem hlýddu.