Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon):
Hæstv. forseti. Góðir áheyrendur. Þær umræður, sem við höfum hlýtt á hér í kvöld og senn eru nú á enda, fara fram við þær aðstæður að óvænt stjórnarskipti hafa orðið í landinu. Vikum og mánuðum saman horfði íslenska þjóðin upp á ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar standa úrræðalausa frammi fyrir verkefni sínu og að lokum liðast í sundur á haustdögum, nánast taka sjálfa sig af lífi í beinni útsendingu eins og frægt er orðið. Og hvað var það nú sem varð ríkisstjórninni að falli? Margt má tína til, en ég læt tvennt nægja. Hið fyrra, sem ég áðan nefndi, óeiningu og upplausn sem ágerðist í kastljósum fjölmiðlanna uns svo var komið að þjóðin horfði daglega upp á forustulið stjórnarinnar berast á banaspjótum. Hið síðara var vitlaus og gjaldþrota stjórnarstefna.
Þrautaganga ríkisstjórnar Þorsteins Pálssonar síðustu mánuðina og dapurlegt andlát í öndverðri sláturtíð mun þegar frá líður þykja merkilegust fyrir þá sök að það markar endanlegt gjaldþrot frjálshyggjunnar á Íslandi. Frjálshyggjan með sínum okurvöxtum, frelsi til að okra, ofvexti og þenslu eyðslugeirans og tilheyrandi auðsöfnun fárra, hinna ríku, á kostnað vinnandi fólks og undirstöðuatvinnugreina, þessi frjálshyggja varð endanlega gjaldþrota samtímis ráðuneyti Þorsteins Pálssonar nú í haust. Málflutningur þeirra sjálfstæðismanna hér í kvöld bar þess líka glöggt vitni að sá flokkkur er í sárum. Rjúkandi rúst eftir gersamlega mislukkaða forustu fyrir lélegri ríkisstjórn sem hrökklast hefur frá völdum.
Talsmenn þeirra sjálfstæðismanna reyndu að tala sig hér upp í hita og jafnvel hávaða án þess að koma nokkurn tíma að efninu og þeirri staðreynd að stefna þeirra, vaxtafrelsið og frjálshyggjan, hefur beðið skipbrot, er gjaldþrota. Aðkoma nýrrar ríkisstjórnar var, eins og hér hefur áður komið fram og verið lýst í umræðunum, allt annað en góð og eru þó ekki öll kurl komin til grafar í þeim efnum enn þá. Við slíkar aðstæður var og er oft freistandi að halda sig sem fjærst stjórnvelinum og láta öðrum það eftir að glíma við aðsteðjandi erfiðleika. Við alþýðubandalagsmenn völdum ekki þá leið. Við ákváðum þvert á móti að ganga í þau verkefni sem óumflýjanleg og lífsnauðsynleg eru orðin, sem sagt að grípa til ráðstafana til að halda hjólum atvinnulífsins, einkum útflutningsstarfseminnar, gangandi, forða yfirvofandi hruni á landsbyggðinni og grípa til aðgerða gagnvart vaxtaokrinu og fjármagnsbraskinu með tafarlausri lagasetningu.
Því er ekki að leyna að við hefðum kosið harðari aðgerðir og skjótvirkari en nú hefur verið gripið til. En segja má að enn sé reynslutími í þessum efnum og eitt allra mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinnar á næstu mánuðum er að ná raunvaxtastiginu mun meira niður og koma böndum á fjármagnsmarkaðinn. Þrátt fyrir þær aðgerðir sem þegar hefur verið gripið til er ljóst að enn er við verulega erfiðleika að glíma. Launamenn hafa um hríð búið við rýrnandi kaupmátt
þó ríkisstjórnin hafi með gerðum sínum reynt að verja þá sem lakast standa. Einstaklingar og fyrirtæki bera enn á bakinu þungar byrðar af hinum gríðarlega fjármagnskostnaði sem hér var á góðri leið með að ríða öllu á slig.
Það mun taka tíma og verða okkur Íslendingum erfitt að vinna okkur frá þeim þrælabyrðum sem óstjórnar- og þensluskrúfa undanfarinna missira en þó fyrst og fremst hinn gríðarlegi fjármagnskostnaður hefur lagt á skulduga einstaklinga og atvinnurekstur. Það bætir svo ekki úr skák að skuldadagana ber upp á á samdráttarskeiði. Binda verður vonir við að það takist með lækkun verðbólgu og vaxta að skapa vinnufrið og stöðugleika til að leggja að nýju grundvöll að betri lífskjörum almennings og traustum rekstrargrundvelli atvinnulífsins.
Í þeim ráðuneytum landbúnaðar- og samgöngumála sem ræðumaður hefur með að gera í ríkisstjórninni er við mörg erfið úrlausnarefni að glíma. Á sviði landbúnaðar vil ég sérstaklega nefna erfiða stöðu yngri bændafjölskyldna, ekki síst í sauðfjárbúskap, sem hafa mátt þola mikinn samdrátt og kjararýrnun á undanförnum árum. Þar er í raun komið langt út yfir þau mörk sem réttlætanleg eru hvað lífsskilyrði fjölmargra þeirra verst settu snertir. Kjarajöfnun ásamt mörkun nýrrar framleiðslustefnu, sem tekur meira mið af landkostum til búrekstrar og tillit til félagslegrar aðstöðu fólks í strjálbýlinu og byggðasjónarmiða, eru að mínu mati einhver brýnstu verkefnin á vegum landbrn. Ríkisstjórnin greip í upphafi ferils síns til aukinna niðurgreiðslna á búvörum og hefur verð búvara því ýmist staðið í stað eða lækkað neytendum til hagsbóta og vonandi fylgja þessum aðgerðum einnig jákvæð áhrif í sölu þessara vara og bætt markaðsstaða. Alvarlegir erfiðleikar loðdýraræktarinnar hafa verið til skoðunar og nefnd hefur unnið að tillögum um rekstrarfjárvanda í fiskeldi, svo nokkuð sé nefnt af þeim verkefnum sem undir landbrn. heyra.
Framkvæmdum á sviði samgöngumála verða því miður þröngar skorður settar á næsta ári eins og öðrum opinberum framkvæmdum þó þörfin sé þar ærin og arðsemi samgöngubóta óumdeilanleg. Á sviði vegamála bíða mörg stórverkefni, m.a. jarðganga- og brúargerð og vegagerð við þéttbýli og er að því stefnt að sameina slík stórátök í flokki stórverkefna samhliða langtímaáætlun um
almennar framkvæmdir í vegamálum.
Eitt af þýðingarmestu verkum þessarar ríkisstjórnar er að snúa við þeirri óheillaþróun sem ríkt hefur hér á landi í byggðamálum undanfarin ár. Í því skyni hyggst ríkisstjórnin beita sér fyrir margs konar ráðstöfunum til að jafna aðstöðu fólks á landsbyggðinni. Má í því sambandi nefna að Pósti og síma hefur þegar verið falið að skila samgrn. tillögum um hvernig jafna megi í áföngum símakostnaðinn í landinu með það í huga að gera sem fyrst landið allt að einu gjaldsvæði. Hér er ekki tími til að víkja að fjölmörgum öðrum ráðstöfunum sem brýna nauðsyn ber til að gera ef jafnvægi á að nást í búsetuþróun í landinu. Reynslan sýnir að taka verður á málefnum
byggðanna í heild, ekkert síður þjónustu- og umhverfisþáttum og öllu hinu félagslega umhverfi mannsins en atvinnulífinu.
Alþb. gekk inn í þessa ríkisstjórn vitandi vel að erfiðleikar væru fyrir stafni, en þörfin fyrir gagngera stefnubreytingu var brýnni en nokkru sinni fyrr. Landsbyggðin kallaði á breytingar. Skólafólk kallaði á breytingar. Undirstöðuatvinnuvegirnir kölluðu á breytingar. Krafan um gjörbreytta stefnu í efnahagsmálum og félagslegar úrlausnir var orðin sterk. Innganga Alþb. í ríkisstjórn var svar við slíkri kröfu: Aðgerð til að koma hinum hörðu íhalds- og frjálshyggjuöflum út úr ríkisstjórninni. Sl. fimm ár höfðu þau öfl verið þar fimm árum of lengi. Alþb. vinnur það til, til að koma félagshyggjunni að og frjálshyggjunni út, að axla ábyrgð og taka áhættu af þátttöku í ríkisstjórn sem tekur við vondu búi við erfiðar aðstæður.
Alþb. mun ekki hlaupa frá ábyrgð sinni og mun starfa af heilindum og alvöru innan þessarar stjórnar svo lengi sem hún situr. Alþb. mun sem sósíalískur flokkur, flokkur íslenskra vinstri manna, nú sem fyrr setja ofar öðru áherslu sína á jafnrétti og jöfnuð í lífskjörum og óskert sjálfstæði þjóðarinnar.
Góðir áheyrendur. Vonandi boðar það gjaldþrot frjálshyggjunnar sem hér var vikið að í minni ræðu undir forustu formanns Sjálfstfl. langa fjarveru íhalds- og frjálshyggjuaflanna frá ríkisstjórnum á Íslandi og betri tíð fyrir félagsleg og mannúðleg viðhorf. Með þeim óskum hef ég lokið máli mínu, hæstv. forseti, og býð góðar stundir.