Sólveig Pétursdóttir:
Hæstv. forseti. Hér hafa farið fram umræður um þáltill. sem fjallar um athugun á lagalegu réttmæti byggingar ráðgerðs ráðhúss við Reykjavíkurtjörn o.fl. Við Reykvíkingar erum ekkert hafnir yfir aðra Íslendinga, það er alveg rétt. En ég held að landsbyggðarfólkið yrði ekki ánægt ef þm. Reykv. færu að koma með þáltill. um málefni þeirra Íslendinga sem á landsbyggðinni búa um þeirra sveitarstjórnarmálefni.
Það er alveg með ólíkindum hvernig sumir hv. þm. tala um löglega kjörna fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur. Það er þeim greinilega mikill þyrnir í augum að meiri hluti Reykvíkinga hugsi á annan hátt en þeir sjálfir. En þetta verða þeir bara að sætta sig við. Efnislega er þetta mál um ráðhúsið afgreitt. Og þetta verða sömu hv. þm. líka að sætta sig við.
En þar sem þessi till. er hér til umræðu langar mig til þess að benda aðallega á tvö atriði. Í till. er talað um að forsetum Alþingis skuli falið að fá þrjá trausta lögfræðinga til að kanna lagaleg atriði málsins og gefa sérálit. Ég spyr: Hvernig á þetta mat að fara fram? Og hvar endar sú umræða ef þm. hafa forgöngu á því að draga íbúa þessa lands í dilka á þennan hátt? Eigum við kannski að fara að leggja mat á það hvaða þm. eru traustir? Á að skipa sérstaka matsnefnd um það t.d. hvaða þm. eru nógu traustir til þess að gerast ráðherrar? Þetta hlýtur að vera vert umhugsunar. Seinna atriðið sem ég vildi nefna er að í lok till. segir: ,,Skal forsetum Alþingis falið að láta vinna að því fyrir dómstólum að stöðva framkvæmdirnar þar til ótvírætt liggur fyrir að framkvæmdirnar séu lögmætar.`` Hér er löggjafarvaldið að seilast til dómsvaldsins. Það er að sjálfsögðu mjög alvarlegt mál því þrígreining valdsins er grundvallaratriði í hinu íslenska lýðræðisþjóðfélagi. Þetta verða hv. þm. að hafa í huga og þetta atriði hlýtur einnig að skipta máli í umræðum um það hvort þessi till. teljist þinghæf.