Flm. (Stefán Valgeirsson):
Virðulegi forseti. Já, ég get víst ekki rætt þetta mikið en ég vil byrja á að spyrja að því, í sambandi við það sem hv. þm. Þorv. Garðar Kristjánsson sagði um að það hefði verið ráðgert fyrir löngu að byggja ráðhúsið á þeim stað sem hafin er bygging á: Hvers vegna þurfti þá borgarstjórinn í Reykjavík í októbermánuði sl. að skrifa skipulagsstjórn borgarinnar og biðja þá um að setja ráðhúsið inn á byggingarreit, þar sem það var ekki áður á þessu skipulagi? Hvers vegna var það? Í sambandi við hvort þarna er staðið löglega að málum eða ekki vitna ég bara aftur í það sem ég var að lesa upp, það sem minnihlutafulltrúar í borgarstjórn Reykjavíkur hafa látið frá sér fara um þessi málefni. Og ætlar meiri hlutinn eða fulltrúar hans hér að halda því fram að þeir séu ekki marktækir eða að ekkert sé athugavert við vinnubrögðin í þessu máli? Hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson reyndi enn að snúa út úr því sem ég sagði. Það sem ég var að vitna í í hans máli var að hann sagði: ,,er gert með nýrri lagasetningu``. Hvar er það í minni till.? Með nýrri lagasetningu? Það stendur í hans máli frá fyrri umr. En hann vill ekki viðurkenna það.
Virðulegi forseti. Ég vil aðeins segja það að lokum að sem alþm. hef ég ekki fengið nokkur gögn eða bein svör frá forsetum Alþingis um þetta mál og forseti borgarstjórnar Reykjavíkur hefur með bréfi til mín stuðlað að því að ég fái gögn um málið. Borgarstjórinn í Reykjavík hefur m.a. sagt till. óskiljanlega. Hins vegar hef ég orðið áþreifanlega var við að allur almenningur skilur fullkomlega hvernig meiri hluti borgarstjórnar Reykjavíkur vinnur. Og mér hafa borist ótal gögn sem benda til þess að ég hefði átt að leggja fyrir sameinað Alþingi till. um að sett væri á stofn rannsóknarnefnd þm. til þess að kanna málið eða í annan stað að óska eftir opinberri rannsókn á því hvernig meiri hluti borgarstjórnarinnar hefur staðið að þessari ráðhúsbyggingu. En hvers vegna? Hvernig mun hv. 4. þm. Vestf. Þorv. Garðari Kristjánssyni og öðrum forsetum Alþingis líða ef í ljós kemur að fara þarf með Alþingi héðan af þessu svæði síðar meir? Ég spyr?
Ástæðan fyrir mínum flutningi er einvörðungu að ég er að hugsa um það og vil að Alþingi verði hér í framtíðinni.