Jón Sæmundur Sigurjónsson:
Virðulegi forseti. Aðeins stutt athugasemd út af þeirri staðhæfingu 2. þm. Austurl. Hjörleifs Guttormssonar að Alþfl. sé oftast nær kaþólskari en aðrir varðandi eindrægni í samstöðu vestrænna ríkja. Þetta er alveg hárrétt hjá hv. þm. Þessi afstaða hefur oft verið mjög eindregin í röðum okkar alþýðuflokksmanna og hún er tilkomin að mestu leyti af eindregnum manneskjulegum sjónarmiðum.
NATO eða Atlantshafsbandalagið var stofnað upp úr seinni heimsstyrjöldinni. Allir þeir sem þekkja hörmungar þær sem menn urðu að lifa í þeirri heimsstyrjöld vita hvers virði það er að stofna bandalag um þau mannlegu gildi sem í þeirri heimsstyrjöld voru fótum troðin.
Nú er það hafið yfir allan vafa að mjög margt er líkt í þjóðfélagsskipan í Þýskalandi nasismans og í þeim austrænu ríkjum þar sem kommúnisminn ríkir. Allir þekkja þá þróun sem varð eftir seinni heimsstyrjöldina þegar Sovétríkin flæddu yfir hvert smáríkið á fætur öðru fyrir vestan þeirra landamæri og sölsuðu þau undir sig. Það var full ástæða fyrir lýðræðisþjóðir að standa vörð um þá lýðræðislegu hefð, um þau mannlegu gildi sem lýðræðisríki standa fyrir og mynda með sér samstöðu til varnar því að svipuð þróun gæti átt sér stað í þeirra löndum, í þeirra ríkjum.
Hv. 6. þm. Reykv. Guðrún Agnarsdóttir sagði að það yrði frekar að byggja upp varnir annars staðar í þjóðfélaginu heldur en út á við, heldur en með hernaðarlegum varnarbandalögum, og átti þá við einmitt öll hin mannlegu gildi sem ég vil halda fram að hinar lýðræðislegu þjóðir standi fyrir og einungis verða varin með því að sýna styrk út á við. Það er aðeins hægt í löndum þar sem friður ríkir að byggja upp barnaheimili, að byggja upp heilbrigðiskerfi, að byggja upp sómasamlegan ellilífeyri fyrir gamla fólkið, að byggja upp velferðarríki í frelsi, að styrkir múrar séu utan um slík menningarleg samfélög. Afleiðingin er auðvitað samstaða Íslendinga í varnarbandalagi NATO. Og enn frekari afleiðing er vera varnarliðsins hér á landi.
Af hálfu Alþfl. hefur hins vegar aldrei komið til greina að Íslendingar bindi sig í efnahagslegar viðjar með gjaldtöku fyrir veru varnarliðsins hér á landi. Það er í hæsta máta óeðlilegt í frjálsum samskiptum frjálsra lýðræðisþjóða að við gerumst þar eins konar leiguliðar.
Annað mál er það að leggja ber aukna áherslu á gagnkvæma afvopnun varnarbandalaganna beggja, þannig að hægt sé að draga úr spennu á alþjóðlegum vettvangi. Einungis með gagnkvæmum tilslökunum er hægt að búast við að friðvænlegar horfi í heiminum og þá má vera að það verði sameiginleg niðurstaða okkar og bandamanna okkar að ekki þurfi lengur her á Íslandi.
Að öðru leyti má vel vera að ýmis tæknileg útfærsla í samskiptum þjóðanna í sambandi við veru varnarliðsins hér þurfi endurskoðunar við í tímans rás og þá er auðvitað rétt að viðræður fari fram á milli
réttra aðila hvað það snertir.
Að lokum vildi ég aðeins taka undir ósk hv. 2. þm. Norðurl. e. sem sagði að hann vonaði að sú heiðríkja sem fegurst getur verið á Norðurlandi skuli ríkja í framtíðinni í samskiptum þjóða og manna.