Þorv. Garðar Kristjánsson:
Hæstv. forseti. Ég kem nú hér ekki upp til þess að mótmæla því sem hv. 7. þm. Reykn. var að segja. Við erum sammála um það að það er nauðsynlegt að aðhafast eitthvað í húsnæðismálum Alþingis. Það er nauðsynlegt.
Ég held að það sé ekki tímabært núna að fara að rifja upp fyrri hugmyndir um að breyta um aðsetur Alþingis. Hv. þm. minntist á Þingvöll og það kemur nú ekki illa við mig. Ég hef sjálfur haldið því fram að það muni enda með því að Alþingi verði á Þingvöllum. Ég hef lýst þeirri skoðun minni mjög rækilega opinberlega. En ég hef ekki trú á því að það verði á næstu árum, ekki næstu áratugum. Í mínum huga gæti ég látið mér detta í hug eitt eða tvö hundruð ár. Ég held að við spillum tíma og það séu ekki rétt vinnubrögð annað heldur en að byggja á þeim grundvelli sem lagður var 1981. Það er eðlilegast að flýta framkvæmdinni því að það er ekki hægt að nota þetta hús, sem við notum nú sem Alþingishús, ef ekki er byggt nýtt hús til þess að hýsa þá starfsemi sem á að vera undir venjulegum kringumstæðum í Alþingishúsi en rúmast ekki í þessu húsi. Það er engin ástæða hvernig sem litið er á að hafa aðsetur Alþingis í sjö húsum fyrir utan Alþingishúsið sjálft. Það sjá allir.
Ég vildi aðeins vekja athygli á þessu. Ég veit að það eru fleiri en við, sem höfum talað í þessari umræðu, sem hafa áhuga á þessum málum. Auðvitað höfum við það allir og flm. líka. Ég dreg það ekkert í efa. En það eina raunhæfa í þessu að gera núna það er að framfylgja því samkomulagi sem gert var í þessum málum og allir alþingismenn stóðu að í minningu þess að Alþingishæusið varð 100 ára fyrir nokkrum árum.